Fréttablaðið - 30.11.2018, Side 8

Fréttablaðið - 30.11.2018, Side 8
ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 8 81 54 1 1/ 18 GEFÐU FRÍ UM JÓLIN með gjafabréfi Icelandair Símaveski, heyrnartól, snúrur og allt fyrir símann. Símaveski.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind „Annars vegar var ljóst að skilyrðin yrðu ekki uppfyllt og hins vegar teiknaðist upp sú staða að það var töluvert meiri áhætta en menn töldu þegar þeir lögðu af stað. Þegar þetta tvennt lagðist saman þá var niðurstaðan augljós,“ segir Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Icelandair, í samtali við Frétta- blaðið. Fallið hefur verið frá kaupum Icelandair Group á WOW air en Icel- andair greindi frá því fyrr í vikunni að ólíklegt væri að allir fyrirvarar í kaupsamningnum, sem var undir- ritaður 5. nóvember, yrðu uppfylltir fyrir hluthafafund félagsins sem haldinn verður í dag. Aðspurður segir Úlfar að einhugur hafi verið á meðal stjórnarmanna Icelandair um ákvörðunina. „Við sáum fram á að fyrirvararnir yrðu ekki uppfylltir og þurftum því að komast til enda í þessu máli. Við erum að reka Icelandair og þurfum að sinna því. Fyrst og síðast þurfum við að hugsa um hagsmuni félags- ins,“ segir Úlfar en á meðal fyrirvar- anna var áreiðanleikakönnun sem var framkvæmd af Deloitte. „Við höfðum ekki séð áreiðan- leikakönnunina sem slíka af því að það var ekki búið að klára hana formlega en við heyrðum atriði úr henni á síðustu dögum.“ Ekki búið að semja um afskriftir Eins og Fréttablaðið greindi frá í  gær hefðu skuldabréfaeigendur WOW air getað þurft að samþykkja tugprósenta afskriftir af höfuðstól sínum til að kaup Icelandair á WOW air næðu fram að ganga. Úlfar segist ekki vita hvernig viðræðum á milli skuldabréfaeigenda og WOW um afskriftir hafi miðað. „Það var algjörlega á forræði WOW air og við vitum ekki stöðuna á því. Við vitum bara að það var ekki búið að klára það,“ segir Úlfar og Bogi Nils Bogason, starfandi for- stjóri Icelandair, hafði sömu sögu að segja í samtali við Fréttablaðið. „Nei, það var ekki komið á hreint,“ sagði Bogi. Eins var ekki komið á hreint hversu stóran hlut Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air, fengi í Icelandair en samkvæmt kaup- samningnum gat Skúli fengið á bilinu 1,8 til 6,6 prósent hlutafjár í Icelandair. Það réðist af niðurstöðu áreiðanleikakönnunarinnar. „Það var heldur ekki komin niður staða í það enda hluti af heild- armyndinni. Þess vegna vorum við að miða við það að endanleg niður- staða gæti ráðist á föstudagsmorgni en síðan var þessi sameiginlega ákvörðun tekin af því að staðan á fyrirvörunum var með þeim hætti sem hún er,“ segir Úlfar. Lítil áhrif á hótelsöluna Icelandair hóf nýlega formlegt sölu- ferli á dótturfélagi sínu, Icelandair Hotels, en stefnt er að því að ljúka sölunni á fyrsta fjórðungi næsta árs. Aðspurður segir Úlfar að vissulega hafi verið rætt innan fyrirtækisins hver áhrifin yrðu ef allt fer á versta veg hjá WOW air. „Hver sem niðurstaðan verður með WOW air þá verða einver áhrif til skemmri tíma en til lengri tíma eru þau minni og það liggur alveg ljóst fyrir að þeir aðilar sem hafa verið að skoða hótelin eru ekki að velta fyrir sér næstu mánuðum heldur næstu árum og áratugum. Þetta er stór fjár- festing.“ Þá þvertekur Úlfar fyrir að Icel- andair hafi komið upplýsingum varð- andi fjárhagsstöðu WOW air á fram- færi við Samgöngustofu eins og fullyrt var við Fréttablaðið. „Samgöngustofa hefur aðgang að öllum upplýsingum sem hún þarf með beinum hætti þannig að hún þarf ekki milligöngu Icelandair eða nokkurs annars til að fá upplýsingar,“ sagði Úlfar. Fréttablaðið spurði Boga Nils sömu spurninga og hann svaraði í svip- uðum dúr. „Ég held að Samgöngu- stofa sé í sambandi við flugrekendur og geti kallað eftir gögnum en Sam- göngustofa myndi aldrei kalla eftir gögnum frá þriðja aðila. Samgöngu- stofa er í beinu sambandi við WOW air með þeirra mál alveg eins og hún er í beinu sambandi við okkur um okkar mál,“ sagði Bogi Nils. thorsteinn@frettabladid.is Einhugur um að hætta við kaupin á WOW air Stjórnarformaður Icelandair segir einhug um að hætta við kaupin á WOW air hafa ríkt innan stjórnarinnar. Hvorki var komið á hreint hver stór hlutur Skúla í Iceland­ air hefði orðið né hvort samkomulag næðist við skuldabréfaeigendur WOW air. Hlutabréfaverð Icelandair lækkaði um 12,66 prósent í Kauphöllinni í gær vegna málsins FréttabLaðIð/ErnIr E i g n i r f j á r f e s t i n g a r s j ó ð s i n s GAMMA: Credit Fund drógust saman um 3,5 prósent í gær en sjóðurinn tók þátt í skuldabréfaút- boði WOW air sem lauk um miðjan september ásamt GAMMA: Total Return Fund. GAMMA: Credit Fund, sem er með um 8 milljarða króna í stýr- ingu, keypti fyrir 1,8 milljónir evra í útboðinu. Skuldabréfin í WOW air nema því um 3,2 prósentum af heildareignum sjóðsins. GAMMA: Total Return Fund, sem er með um 2,4 milljarða í stýringu, fjárfesti hins vegar aðeins fyrir 200 þúsund evrur. Í skuldabréfaútboðinu tryggði WOW air sér fjármögnun upp á samtals 60 milljónir evra, jafnvirði 8 milljarða króna, og voru íslenskir aðilar með um 37 prósent af heild- areftirspurninni, eða sem nemur 22 milljónum evra. – tfh Sjóður GAMMA dróst saman um 3,5 prósent Það liggur alveg ljóst fyrir að þeir aðilar sem eru að skoða hótelin eru ekki að velta fyrir sér næstu mánuðum heldur næstu árum. Úlfar Steindórs- son, stjórnarfor- maður Icelandair, 1,8 milljónir evra fjárfesti GAMMA: Credit fund í skuldabréfaútboði WOW air 3 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U r6 F r é T T i r ∙ F r é T T A b L A ð i ð 3 0 -1 1 -2 0 1 8 0 5 :1 3 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 9 8 -D F D 0 2 1 9 8 -D E 9 4 2 1 9 8 -D D 5 8 2 1 9 8 -D C 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 2 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.