Fréttablaðið - 30.11.2018, Page 8
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
8
81
54
1
1/
18
GEFÐU FRÍ UM JÓLIN
með gjafabréfi Icelandair
Símaveski,
heyrnartól, snúrur
og allt fyrir
símann.
Símaveski.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind
„Annars vegar var ljóst að skilyrðin
yrðu ekki uppfyllt og hins vegar
teiknaðist upp sú staða að það var
töluvert meiri áhætta en menn
töldu þegar þeir lögðu af stað. Þegar
þetta tvennt lagðist saman þá var
niðurstaðan augljós,“ segir Úlfar
Steindórsson, stjórnarformaður
Icelandair, í samtali við Frétta-
blaðið.
Fallið hefur verið frá kaupum
Icelandair Group á WOW air en Icel-
andair greindi frá því fyrr í vikunni
að ólíklegt væri að allir fyrirvarar í
kaupsamningnum, sem var undir-
ritaður 5. nóvember, yrðu uppfylltir
fyrir hluthafafund félagsins sem
haldinn verður í dag. Aðspurður
segir Úlfar að einhugur hafi verið á
meðal stjórnarmanna Icelandair um
ákvörðunina.
„Við sáum fram á að fyrirvararnir
yrðu ekki uppfylltir og þurftum því
að komast til enda í þessu máli. Við
erum að reka Icelandair og þurfum
að sinna því. Fyrst og síðast þurfum
við að hugsa um hagsmuni félags-
ins,“ segir Úlfar en á meðal fyrirvar-
anna var áreiðanleikakönnun sem
var framkvæmd af Deloitte.
„Við höfðum ekki séð áreiðan-
leikakönnunina sem slíka af því
að það var ekki búið að klára hana
formlega en við heyrðum atriði úr
henni á síðustu dögum.“
Ekki búið að semja um afskriftir
Eins og Fréttablaðið greindi frá
í gær hefðu skuldabréfaeigendur
WOW air getað þurft að samþykkja
tugprósenta afskriftir af höfuðstól
sínum til að kaup Icelandair á WOW
air næðu fram að ganga. Úlfar segist
ekki vita hvernig viðræðum á milli
skuldabréfaeigenda og WOW um
afskriftir hafi miðað.
„Það var algjörlega á forræði
WOW air og við vitum ekki stöðuna
á því. Við vitum bara að það var
ekki búið að klára það,“ segir Úlfar
og Bogi Nils Bogason, starfandi for-
stjóri Icelandair, hafði sömu sögu
að segja í samtali við Fréttablaðið.
„Nei, það var ekki komið á hreint,“
sagði Bogi.
Eins var ekki komið á hreint
hversu stóran hlut Skúli Mogensen,
forstjóri og eigandi WOW air, fengi
í Icelandair en samkvæmt kaup-
samningnum gat Skúli fengið á
bilinu 1,8 til 6,6 prósent hlutafjár í
Icelandair. Það réðist af niðurstöðu
áreiðanleikakönnunarinnar.
„Það var heldur ekki komin
niður staða í það enda hluti af heild-
armyndinni. Þess vegna vorum við
að miða við það að endanleg niður-
staða gæti ráðist á föstudagsmorgni
en síðan var þessi sameiginlega
ákvörðun tekin af því að staðan á
fyrirvörunum var með þeim hætti
sem hún er,“ segir Úlfar.
Lítil áhrif á hótelsöluna
Icelandair hóf nýlega formlegt sölu-
ferli á dótturfélagi sínu, Icelandair
Hotels, en stefnt er að því að ljúka
sölunni á fyrsta fjórðungi næsta árs.
Aðspurður segir Úlfar að vissulega
hafi verið rætt innan fyrirtækisins
hver áhrifin yrðu ef allt fer á versta
veg hjá WOW air.
„Hver sem niðurstaðan verður
með WOW air þá verða einver áhrif
til skemmri tíma en til lengri tíma eru
þau minni og það liggur alveg ljóst
fyrir að þeir aðilar sem hafa verið að
skoða hótelin eru ekki að velta fyrir
sér næstu mánuðum heldur næstu
árum og áratugum. Þetta er stór fjár-
festing.“
Þá þvertekur Úlfar fyrir að Icel-
andair hafi komið upplýsingum varð-
andi fjárhagsstöðu WOW air á fram-
færi við Samgöngustofu eins og fullyrt
var við Fréttablaðið. „Samgöngustofa
hefur aðgang að öllum upplýsingum
sem hún þarf með beinum hætti
þannig að hún þarf ekki milligöngu
Icelandair eða nokkurs annars til að
fá upplýsingar,“ sagði Úlfar.
Fréttablaðið spurði Boga Nils sömu
spurninga og hann svaraði í svip-
uðum dúr. „Ég held að Samgöngu-
stofa sé í sambandi við flugrekendur
og geti kallað eftir gögnum en Sam-
göngustofa myndi aldrei kalla eftir
gögnum frá þriðja aðila. Samgöngu-
stofa er í beinu sambandi við WOW
air með þeirra mál alveg eins og hún
er í beinu sambandi við okkur um
okkar mál,“ sagði Bogi Nils.
thorsteinn@frettabladid.is
Einhugur um að hætta
við kaupin á WOW air
Stjórnarformaður Icelandair segir einhug um að hætta við kaupin á WOW air hafa
ríkt innan stjórnarinnar. Hvorki var komið á hreint hver stór hlutur Skúla í Iceland
air hefði orðið né hvort samkomulag næðist við skuldabréfaeigendur WOW air.
Hlutabréfaverð Icelandair lækkaði um 12,66 prósent í Kauphöllinni í gær vegna málsins FréttabLaðIð/ErnIr
E i g n i r f j á r f e s t i n g a r s j ó ð s i n s
GAMMA: Credit Fund drógust
saman um 3,5 prósent í gær en
sjóðurinn tók þátt í skuldabréfaút-
boði WOW air sem lauk um miðjan
september ásamt GAMMA: Total
Return Fund.
GAMMA: Credit Fund, sem er
með um 8 milljarða króna í stýr-
ingu, keypti fyrir 1,8 milljónir evra
í útboðinu. Skuldabréfin í WOW
air nema því um 3,2 prósentum af
heildareignum sjóðsins. GAMMA:
Total Return Fund, sem er með um
2,4 milljarða í stýringu, fjárfesti hins
vegar aðeins fyrir 200 þúsund evrur.
Í skuldabréfaútboðinu tryggði
WOW air sér fjármögnun upp á
samtals 60 milljónir evra, jafnvirði
8 milljarða króna, og voru íslenskir
aðilar með um 37 prósent af heild-
areftirspurninni, eða sem nemur 22
milljónum evra. – tfh
Sjóður GAMMA dróst
saman um 3,5 prósent
Það liggur alveg
ljóst fyrir að þeir
aðilar sem eru að skoða
hótelin eru ekki að velta
fyrir sér næstu mánuðum
heldur næstu
árum.
Úlfar Steindórs-
son, stjórnarfor-
maður Icelandair,
1,8
milljónir evra fjárfesti
GAMMA: Credit fund í
skuldabréfaútboði WOW air
3 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U r6 F r é T T i r ∙ F r é T T A b L A ð i ð
3
0
-1
1
-2
0
1
8
0
5
:1
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
9
8
-D
F
D
0
2
1
9
8
-D
E
9
4
2
1
9
8
-D
D
5
8
2
1
9
8
-D
C
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K