Fréttablaðið - 30.11.2018, Qupperneq 22
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í
formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 512 5351 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is,
s. 512 5349 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@
frettabladid.is, s. 512 5347 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jóns-
son, starri@frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 512 5442, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is,
s. 512 5457, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429,
Ég ákvað að hætta á toppnum,“ segir Alexandra Sif Niku-lásdóttir brosandi en um
sex ára skeið var hún ein fremsta
fitness-keppniskona landsins.
„Ég afrekaði meira á þessu sviði
en mig hafði órað fyrir þegar ég
byrjaði að keppa. Ég var svo feimin
sem krakki að ég þorði næstum
ekki í skólasund. Þegar ég lít til
baka skil ég varla hvernig ég hafði
hugrekki til að stíga upp á svið á
háum hælum í bikiníi að keppa í
fitness. Ég fór í gegnum heilmikla
sjálfsskoðun á þessu tímabili og
lærði mikið um sjálfa mig. Um leið
öðlaðist ég meira sjálfstraust,“ segir
Alexandra sem bókstaflega geislar
af heilbrigði.
Alexandra lærði förðun og vann
hjá Make-Up Store þegar henni
datt í hug að taka þátt í fitness-
keppni á sínum tíma. „Ég var eins
og lítil spagettíreim því ég var
mjög grannvaxin en þó í góðu
formi. Ég skráði mig í fitness hjá
fyrirtæki í þjálfun sem hét Betri
árangur en í dag FitSuccess og
stefndi á að keppa átta mánuðum
síðar en Katrín Eva, eigandi þess og
þjálfari, hafði mikla trú á mér og
hvatti mig til að taka þátt í næstu
fitness-keppni sem þá var innan
átta vikna. Eftir að hafa hugsað
málið ákvað ég að slá til og náði
góðum árangri. Það varð til þess
að ég skráði mig til leiks í stórri
keppni sem heitir Arnold Classic
og varð þar með fyrst íslenskra
kvenna til að keppa í flokki sem
heitir model-fitness á þessu móti.
Ég lærði pósurnar af myndböndum
á netinu,“ rifjar Alexandra upp en
hún var á meðal þeirra tíu efstu í
þeirri keppni. Margt hefur breyst
frá því að hún fór að æfa fyrir fit-
ness-keppnir. „Það var t.d. ekki
eins vinsælt hjá konum að lyfta
lóðum eins og það er í dag,“ bendir
hún á.
Eftir að Alexandra fór að æfa
líkamsrækt markvisst ákvað hún
að læra einkaþjálfun hjá World
Class og í kjölfarið fékk hún starf
hjá FitSuccess þar sem hún hefur
unnið í sjö ár. „Mig langaði að læra
enn meira um líkamsrækt og hollt
mataræði. Ég vinn við að þjálfa í
gegnum netið og finnst frábært að
geta miðlað til annarra af minni
reynslu. Ég þjálfa konur á öllum
aldri og margar þeirra eru með
börn, þannig að ég gæti þess að
þær fái raunhæfa æfingadagskrá og
matarplan sem þær geta farið eftir
og fellur að þeirra lífsstíl.“
Langaði að verða leikkona
Alexandra segist hafa fundið sig
vel í fitness því hún hafi mikinn
metnað og sjálfsaga, hafi gaman
af því að fara í ræktina og hugsa
vel um mataræðið. „Hins vegar
fannst mér stundum erfitt að fara
á bikiníinu upp á svið að keppa en
í raun fer maður þá í ákveðið hlut-
verk. Þetta er eins og að stíga inn á
leiksvið,“ segir Alexandra og bætir
við að sem barn hafi hana langað til
að verða leikkona þegar hún yrði
stór. Hún átti ekki langt að sækja
leiklistaráhugann en afi hennar
og amma voru bæði leiklistar-
menntuð.
„Mér hefur líka alltaf þótt gaman
að skrifa. Ég skrifaði leikrit þegar
ég var í 6. bekk og það var sýnt á
afmæli skólans míns. Ég er mjög
stolt af því. Afi minn hét Þorvarður
Helgason og var rithöfundur,
leikari og bókmenntagagnrýnandi.
Hann hjálpaði mér stundum við
ritgerðasmíð og hafði gaman af.
Amma, Hilde Helgason, var leik-
kona og leiklistarkennari. Hún
kenndi fjölda manns sem eru leik-
arar í dag og ég var svo heppin að
fá stundum að fylgjast með henni í
vinnunni. Ég held ég láti leiklistar-
drauminn ekki rætast úr þessu, ég
er mjög sátt við það sem ég er að
gera í dag,“ segir Alexandra glaðlega
en hún fær útrás fyrir sköpunar-
þörfina með því að skrifa greinar á
www.framinn.is, auk þess sem hún
var lengi með persónulegt blogg.
„Um tíma sá ég um heilsíðu í DV
og skrifaði um líkamsrækt og síðar
fyrir tímaritið Bleikt þar sem ég
fjallaði m.a. um jákvætt hugar-
far, heilsusamlegan lífsstíl og lífið
almennt. Mér fannst það mjög
gaman,“ segir Alexandra sem smám
saman færði sig yfir á samfélags-
miðla.
„Mér hefur alltaf
þótt gaman að
skrifa. Ég skrif-
aði leikrit þegar
ég var í 6. bekk
og það var sýnt
á afmæli skólans
míns. Ég er mjög
stolt af því,“
segir Alexandra.
Alexandra og Arnar kynntust í ræktinni.
Framhald af forsíðu ➛
Mér finnst skipta
máli að vera einlæg
og vera bara ég sjálf en ég
veit líka að það er ekki
hægt að gera öllum til
hæfis.
Gamaldags
samfélagsmiðlastjarna
Alexandra var lengi meðal vin-
sælustu SnapChat-stjarna landsins
en færði sig fyrr á þessu ári alfarið
yfir á Instagram þar sem hún er
með hátt í átta þúsund fylgjendur.
Innt eftir því hvað hún fjalli um
á Instagram kemur í ljós að það
er allt milli himins og jarðar. „Ég
sýni t.d. hvernig ég undirbý mig
fyrir æfingar en ég fer í ræktina
5-6 sinnum í viku, stundum kl. 6
á morgnana. Ég sýni frá því hvað
ég elda og baka, fer yfir förðunar-
ráð, ferðalög og bara það sem mér
dettur í hug hverju sinni. Ég breyti
myndunum ekki í tölvu til að fá
fallegra „feed“ eins og er vinsælt
þessa dagana heldur set inn það
sem mig langar. Mér finnst skipta
máli að vera einlæg og vera bara ég
sjálf en ég veit líka að það er ekki
hægt að gera öllum til hæfis. Sumir
fíla mann og aðrir ekki. Ég sýni líka
alveg myndir af mér ómálaðri með
hárið út í loftið,“ segir Alexandra
kankvíslega og viðurkennir að inn
við beinið sé hún dálítið feimin.
Hún segir að sinn helsti styrk-
leiki séu skipulagshæfileikar. „Ég er
frekar gamaldags og nota dagbók
til að skipuleggja mig. Ég var að
gefa út dagbók fyrir næsta ár í
samstarfi við Prentsmið, sem gerði
grunninn að bókinni en ég lagði
til mína skipulagstaktík sem setur
sinn svip á dagbókina.“
Nýverið flutti Alexandra í eigin
íbúð með kærastanum, Arnari Frey
Bóassyni, og segir heimilið vera
sinn griðastað. „Ég fékk margar
óskir um að sýna nýja heimilið mitt
á Instagram en ég vil ekki sýna of
mikið, það þurfa að vera einhver
mörk. Ég er samt ekkert feimin við
að sýna frá því sem ég er að gera
heima hjá mér,“ segir hún.
Þau Arnar kynntust í ræktinni
og náðu strax vel saman. „Ég var
að æfa fyrir fitness-mót á annarri
líkamsræktarstöð en vanalega og
við kynntumst þar. Hann kom að
horfa á mig keppa, sem mér finnst
mjög krúttlegt, og stuttu síðar byrj-
uðum við að hittast. Okkur líður
mjög vel saman og ég hef aldrei
verið jafnánægð með lífið og núna,“
segir Alexandra brosandi að lokum.
Fylgjast má með Alexöndru á
Instagram undir nafninu alesif.
19. DESEMBER Í ELDBORG HÖRPU
Jól m eð
MIÐASALA Á HARPA.IS/SISSEL
Sólveig
Gísladóttir
solveig@frettabladid.is
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . N ÓV E M B E R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
3
0
-1
1
-2
0
1
8
0
5
:1
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
9
8
-D
5
F
0
2
1
9
8
-D
4
B
4
2
1
9
8
-D
3
7
8
2
1
9
8
-D
2
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K