Fréttablaðið - 30.11.2018, Síða 50
Bækur
Hið heilaga orð
Sigríður Hagalín Björnsdóttir
Blaðsíður: 271
Útgefandi: Benedikt - bókaútgáfa
Ígömlu ævintýri er ungur bónda-sonur sendur af stað að leita einhvers og endurheimta – oft
prinsessu sem lent hefur í trölla-
höndum. Hann ferðast um refilstigu
kynjaskóga og leysir ýmsar þrautir.
Í nútímasögu eftir Sigríði Hagalín
Björnsdóttur (f. 1974) leitar ungur
maður systur sinnar sem fengið
hefur fæðingarþunglyndi og týnst.
Kynjaskógurinn er erlend heims-
borg. Þrautirnar rafrænar og staf-
rænar. Meiri óvissa ríkir um afdrifin
þar sem söguþráðurinn er flóknari
og fyrirstöðurnar að verulegu leyti í
höfðinu ekki síður en raunverunni.
Þetta er því engin búkollusaga þó að
byggingin styðjist við grunnstoðir
ævintýra.
Hið heilaga orð er bók um knýj-
andi viðfangsefni í samtíma okkar,
mátt orðsins og ritveröldina í net-
væddum heimi sem vefst utan um
tilveru okkar og samskipti líkt og
utanáhangandi taugakerfi sem við
jafnvel höfum ekki stjórn á. Hér er
um að ræða all flókna úrvinnslu
söguefnis með ýmsum frásagnar-
kimum. Undirniður verksins eru
heimspekilegar og til-
vistarlegar hugrenning-
ar Sókratesar um áhrif
ritmálsins á hugsun
mannsins, yfirfærðar
á nútímann. Unnið
er með ýmsar kenn-
ingar, fornar og nýjar,
tákn og gátur. Að því
leyti reikar hugurinn
til bóka á borð við Da
Vinci-lykilinn (2003)
eftir Dan Brown eða
Veröld Soffíu (1991)
eftir Jostein Gaarder.
Sagan hverfist um
tilveru tveggja systk-
ina. Hann er lesblind-
ur en fljúgandi fær á
öðrum sviðum. Hún
er hins vegar oflæs
en stríðir við hömlur
í samskiptum við
fólk. Samt verður
hún stjarna á sam-
félagsmiðlum sem
veldur enn frekari
brenglun á tilveru
hennar og sam-
bandi við aðra í veröld
þar sem „lækin“ eru það sem skapar
sjálfsmyndina. Systkinin eru eins og
tvær hliðar á sama peningi. Þau fylla
upp í mynd hvort annars, en skapa
jafnframt ákveðinn átakaöxul sem
drífur atburði áfram í hringiðu
ástríðna og fróðleiksfýsnar, ein-
semdar og örvinglunar, leitar og
flótta. Samhliða sögu þeirra fáum
við innsýn í líf mæðranna sem ala
þau upp og samband þeirra við föð-
urinn. Þar er hliðarsaga sem einnig
vekur spennu og felur í sér óvænta
og napra afhjúpun undir bókarlok.
Hið heilaga orð er önnur bók
Sigríðar Hagalín. Sú fyrsta, Eyland,
kom út fyrir tveimur árum, dystóp-
ísk skáldsaga undir áhrifum af
skortumræðunni sem varð hér
á landi í kjölfar hrunsins. Það rit
hlaut þegar góðar viðtökur og vakti
umræður. Í nýju bókinni er Sigríður
á öðrum slóðum. Augljóst er þó að
enn liggur henni viðfangsefnið á
hjarta enda er umfjöllunarefnið
gripið beint úr samtíma okkar. Stíll-
inn er þjáll og fléttan hugvitsamleg.
Persónusköpun er trúverðug og vel
af hendi leyst. Höfundur hefur gott
lag á að lýsa tilfinningalífi persóna
sinna, ekki síst barna og ungmenna,
og draga fram samskipti og tog-
streitu sem varpa skörpu ljósi á það
sem úrskeiðis getur farið í lífi fólks.
Auðfundið er við lesturinn að
Sigríður Hagalín hefur fumlaust
vald á rituðu máli og innsýn í það
sem hún fjallar um. Við efnistökin
beitir hún skáldlegu innsæi og
næmi ásamt skörpu auga frétta-
mannsins – hvort tveggja ber vott
um gott læsi höfundar á mannlíf
og tilveru. Útkoman er spennandi
og vel skrifuð bók sem erfitt er að
leggja frá sér.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
NiðurStaða: Grípandi saga um
flókin álitaefni sem fjallað er um af
næmi, hugmyndaauðgi og dýpt.
Líf eða læsi
Gagnrýnandi Fréttablaðsins hrósar nýrri skáldsögu Sigríðar Hagalín.
Eitt mesta afrek
aldarinnar
Eitt mesta björgunarafrek síðustu aldar
+++
Þrjátíu og fjórir skipbrotsmenn berjast
upp á líf og dauða í flaki togarans Egils
rauða sem hefur strandað í foráttubrimi
undir hrikalegu hamrastáli Grænuhlíðar
í Ísafjarðardjúpi +++
Djarfar áhafnir lítilla báta reyna við
illan leik að nálgast myrkvaðan strand-
staðinn +++
Útilokað er að koma til bjargar – nema
að hætta eigin lífi +++
Lagt er í ofurmannlega þrautagöngu
með þungar byrðar í stórgrýti, skriðum
og þreif-andi stórhríð +++
Hér er fjallað um þrjá hildarleiki árin
1955, 1956 og 1957 sem allir tengjast
+++
bækur Óttars Sveinssonar hafa á hverju ári í aldarfjórðung verið eitt vinsælasta lesefni Íslendinga
Óttar Sveinsson
Útkallsbækurnar hafa
í aldarfjórðung verið
eitthvert vinsælasta
lesefni Íslendinga, en
slíkt er einstætt. Bækur
sem lesendur leggja
ekki frá sér fyrr en að
lestri loknum. Með
sínum hörkuspennandi frásagnarstíl
tekst Óttari Sveinssyni ávallt að koma
okkur í náin tengsl við söguhetjurnar
sem eru sprottnar beint úr íslenskum
raunveruleika. Mannlegt drama,
einlægni, fórnfýsi, ást og umhyggja
alþýðufólks lætur engan ósnortinn.
2.
á metsölulista
Bónus
Sætið
3 0 . N ó v e m B e r 2 0 1 8 F Ö S t u D a G u r24 m e N N i N G ∙ F r É t t a B L a ð i ð
menning
3
0
-1
1
-2
0
1
8
0
5
:1
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
9
8
-A
4
9
0
2
1
9
8
-A
3
5
4
2
1
9
8
-A
2
1
8
2
1
9
8
-A
0
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K