Fréttablaðið - 05.12.2018, Blaðsíða 8
Frá degi til dags
Halldór
Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar Bragi
var í ráð-
herratíð sinni
dubbaður
upp í hlut-
verk sem boð-
beri jafnréttis
– sérstakur
talsmaður
átaka á borð
við Barber
Shop og
#HeForShe.
Hlutverk sem
virðist með
engu móti
eiga skír-
skotun í hans
eigin hugar-
heimi.
Án allra
þeirra sem
leggja sitt af
mörkum til
samfélagsins
í gegnum
verkefni RKÍ
væri íslenskt
samfélag
veikara og
fátækara.
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
lakaðu á
eð lö
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
ki pir og spe na
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartslá tur
g Kvíði
g Streita
g Pi ringur
Einke i
agnesí
skorts
i t.i
Í dag, 5. desember, er haldið upp á alþjóðlegan dag sjálfboðaliða. Þú vissir þetta kannski ekki, því störf sjálfboðaliða komast ekkert sérstaklega oft í
fréttirnar. Engu að síður eru þetta störf sem gjörbreyta
samfélaginu að svo mörgu leyti. Sjálfboðaliðar starfa í
þágu ýmissa félaga og samtaka, að góðgerðarmálum,
íþróttum, tómstundum og mannúðarstarfi. Það er
á þessu síðasta sviði sem nærri 4.000 manns starfa á
vegum rúmlega 40 deilda Rauða kross Íslands víðs
vegar um landið en hugmyndin um sjálfboðið starf
er ein af sjö grundvallarhugsjónum Rauða krossins á
alþjóðavísu.
Sjálfboðaliðar eru á öllum aldri, fólk í námi, starfi
og á eftirlaunaaldri. Fólk hefur ólíkar ástæður til að
vinna störf í sjálfboðavinnu, en íslenskar rannsóknir
sýna að það er fyrst og fremst að vilja leggja eitthvað af
mörkum til samfélagsins, vinna að verðugu málefni og
hjálpa þeim sem minna mega sín.
Á meðal verkefnanna eru nokkur sem eru vel þekkt,
eins og Frú Ragnheiður og Konukot. Önnur eru ekki
jafn þekkt en engu minna mikilvæg. Sjálfboðaliðar
vinna með umsækjendum um alþjóðlega vernd,
kenna nýjum íbúum landsins íslensku og hjálpa þeim
að skilja samfélagið. Í kvennadeildum er prjónað á
ungabörn og margir flokka og selja föt sem annars
færu í ruslið. Fólk og hundar á vegum Rauða krossins
heimsækja eldri borgara og sporna gegn félagslegri
einangrun. Börn fá aðstoð við heimanám. Fólk sem
hefur nýlokið afplánun refsivistar fær aðstoð við að
byggja upp sjálfstraust, færni og ferilskrár.
Verkefnin taka mið af þörfum hvers samfélags en
þess utan hefur Rauði krossinn lögbundið hlutverk
í neyðarvörnum og útvegar sjálfboðaliða til að veita
fjöldahjálp og félagslega aðstoð í kjölfar neyðar-
ástands. Án allra þeirra sem leggja sitt af mörkum til
samfélagsins í gegnum verkefni RKÍ væri íslenskt sam-
félag veikara og fátækara. Líttu í kringum þig í dag og
þakkaðu þeim sem þetta gera.
Alþjóðlegur dagur
sjálfboðaliða
Silja Bára
Ómarsdóttir
stjórnarmaður í
Rauða kross-
inum
Almannatengja?
Gulum og rauðum spjöldum
hefur rignt yfir drykkjuboltaliðið
FC Klaustur í framlengingu. Þó
má ganga að því gefnu að synda-
selirnir njóti leiðsagnar almanna-
tengla þannig að annað hvort
eru ráðgjafarnir þeir arfa slakir
eða bullurnar geta ekki tekið
leiðsögn. Þegar skálduð ferilskrá
einu konunnar í hópnum varð að
bitbeini hljóp hún í felur og beið
þess að forseti Alþingis skærist í
leikinn frekar en að lýsa sig strax
saklausa af svindlinu. Ákaflega
vont „PR“ að leyfa málinu að
sjóða upp úr frekar en að gefa
boltann strax á starfslið Alþingis
sem gerði víst sjálfsmark. Er ekki
tími til kominn að tengja, eins og
danshljómsveit formanns Sam-
fylkingarinnar spurði forðum?
Æruleysisbænin
SÁÁ klúbburinn ætlar í vik-
unni að takast á við ævafornu
spurninguna um hvort öl sé innri
maður. Tilefnið er augljóst og
verði niðurstaða málfundarins
jákvæð er ljóst að FC Klaustur
situr uppi með lyndisfalleinkunn.
SÁÁ getur þó gefið þeim von
með því að það er til lausn. Hin
sígilda Æðruleysisbæn hlýtur þó
að þurfa að víkja fyrir Æruleysis-
bæninni í þessum bráðatilfellum:
Gavöööð – gef mér kæruleysi/til
að sætta mig við það sem ég fæ
ekki breytt/kjark til að breyta
því sem ég get breytt/og vit til að
halda stundum kjafti.
thorarinn@frettabladid.is
Lágkúrulegu fyllirísrausi sex þing-manna sem tekið var upp á barnum Klaustri hefur nú verið vísað í kerfis-farveg í þinginu. Siðanefnd ætlar sér að afgreiða erindið fljótt. Ekki er ljóst hverju það bætir við það sem almenn-
ingur veit nú þegar, sem hefur heyrt eða lesið
um samtölin og situr eftir með óbragð í munni,
en einhverra aðgerða er þörf til að gera starfs-
andann á þinginu bærilegri. Þó ekki sé nema að
búa til ferla ef sambærilegt mál skyldi koma upp
síðar.
Viðfangsefnið er flókið. Vitaskuld áttu samtöl
um pólitísk hrossakaup og kvenfyrirlitningu
erindi við almenning, þótt það sé erfitt til þess að
hugsa að menn geti átt von á því að samtöl þeirra
séu tekin upp án þeirra vitundar.
En upptökur af þessu tagi eru hluti af breyttum
heimi og sennilega munum við sjá fleiri slíkar
á næstunni líkt og við þekkjum frá útlöndum.
Það breytir ekki því, að fyrir vikið eiga margir nú
um sárt að binda, einkum þær konur sem lentu í
skotlínu byssukjaftanna á Klaustri.
Subbutalið á barnum er fyrst og síðast fátæk-
legt. Það hefur minnst að gera með þá sem urðu
fyrir barðinu á þingmönnunum. Tal af þessu tagi
afhjúpar minnimáttarkennd þeirra sem hafa
orðið.
Utanríkisráðherrann fyrrverandi, Gunnar
Bragi Sveinsson, gekk lengst, ásamt Bergþóri Óla-
syni. Gunnar Bragi var í ráðherratíð sinni dubb-
aður upp í hlutverk sem boðberi jafnréttis – sér-
stakur talsmaður átaka á borð við Barber Shop
og #HeForShe. Hlutverk sem virðist með engu
móti eiga skírskotun í hans eigin hugarheimi.
Hann virðist hafa verið strengjabrúða embættis-
manna sem lögðu honum í hendur texta sem
hann annaðhvort skildi ekki eða hafnaði, þrátt
fyrir leikþættina.
Krafa um afsögn þessa fólks heyrist nú víða,
meðal annars á þinginu. Sumir þingmenn ganga
of langt í þeim efnum og reyna að upphefja
sjálfa sig á kostnað þeirra þingmanna sem höfðu
sig mest í frammi á Klaustri. Það er ódýrt, þrátt
fyrir særindin. Aðrir eru eðlilega sárir og hissa á
kollegum sínum. Það eru sennilega heilbrigðari
viðbrögð. Gamla sagan, úlfur, úlfur, á það til að
drepa alvöru málum á dreif. Kröfur um afsögn
hljóma þessi misserin eins og síbylja. Stundum
eru tilefni, líkt og raunin er nú, en oftar engin.
Auðvitað hlýtur sexmenningunum að líða
illa með gjörðir sínar og orðfæri. Án efa er þetta
fólk sem vill láta gott af sér leiða og telur sig eiga
erindi í stjórnmál. Því varð á. Ábyrgðin er þess.
Hins vegar rekur enginn þingmann úr starfi,
þvert á það sem sumir virðast halda, nema kjós-
endur á fjögurra ára fresti. Sjálfir geta þingmenn-
irnir þó hugsað sér til hreyfings. Þar þurfa þeir að
svara eigin samvisku.
Dubbaður upp
5 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U d A G U r8 s K o Ð U n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð
SKOÐUN
0
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
A
2
-E
6
1
4
2
1
A
2
-E
4
D
8
2
1
A
2
-E
3
9
C
2
1
A
2
-E
2
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
4
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K