Fréttablaðið - 05.12.2018, Blaðsíða 10
West Ham - Cardiff 3-1
1-0 Lucas Perez (49.), 2-0 Lucas Perez (54.),
3-0 Michail Antonio (61.), 3-1 Josh Murphy
(90.). Aron Einar Gunnarsson spilaði allan
leikinn inni á miðsvæðinu fyrir Cardiff City.
Watford - Man. City 1-2
0-1 Leroy Sané (40.), 0-2 Riyad Mahrez (51.),
1-2 Abdoulaye Doucoure (85.).
B’mouth - Huddersfield 2-1
1-0 Callum Wilson (5.), 2-0 Ryan Fraser (22.),
2-1 Terence Kongolo (38.).
Brighton - Crystal Palace 3-1
1-0 Glenn Murray (vítaspyrna) (24.), 2-0
Leon Balogun (31.), 3-0 Florin Andone (45.),
3-1 Luka Milivojevic (vítaspyrna) (81.).
Nýjast
Enska úrvalsdeildin
Rekstrarland er hluti af Olís
Nilfisk gólfþvottavélarnar fást í mörgum stærðum og útfærslum sem
henta smáum jafnt sem stórum fyrirtækjum. Sölufulltrúar okkar veita
ráðleggingar um þá stærð og tegund sem hentar hverju sinni.
Nilfisk fæst í verslun Rekstrarlands, Vatnagörðum 10 og hjá útibúum Olís um land allt.
NILFISK
GÓLFÞVOTTAVÉLAR
LÉTTA STÖRFIN
Pantanir í síma
515 1100 og
pontun@olis.is
SC351
Vörunr. 112623
BR 752
Vörun. 113403
SC500
Vörunr. 113282
P
IP
A
R
\T
B
W
A
•
S
ÍA
Handbolti Skjern sem er ríkjandi
Danmerkurmeistari í handbolta
karla, en situr nú í áttunda sæti
dönsku efstu deildarinnar með 14
stig eftir jafn margar umferðir er í
þjálfaraleit þessa stundina.
Ole Nørgaard og Henrik Kron
borg sem halda um stjórnartaum
ana hjá liðinu hafa gefið það út að
þeir muni láta af störfum með liðið
í sumar og er leit að eftirmönnum
þeirra hafin.
Danski fjölmiðillinn TV2Sport
segir að forráðamenn félagsins
hafi sett sig í samband við Patrek
Jóhannesson, þjálfara karlaliðs Sel
foss og austurríska karlalandsliðs
ins, með það fyrir augum að fá hann
til þess að taka við danska liðinu.
Tandri Már Konráðsson hefur
leikið með Skjern undanfarin ár og
varð danskur meistari með liðinu
síðastliðið vor. Björgvin Páll Gúst
avsson landsliðs
markvörður leik
ur einnig með
danska liðinu,
en hann gekk til
liðs við félagið frá
Haukum síðasta
sumar. – hó
Patrekur gæti
tekið við Skjern
næsta sumar
5 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m i Ð V i K U d a G U r10 s p o r t ∙ F r É t t a b l a Ð i Ð
sport
GolF Ekkert varð úr fundi Golfsam
bands Íslands með mótanefnd Evr
ópumótaraðarinnar í kvennaflokki
sem átti að fara fram í haust en það
stendur enn til að nefndin komi til
Íslands. Fresta þurfti fundinum en
báðir aðilar hafa enn áhuga á að hér
fari fram mót á Evrópumótaröðinni,
næststerkustu mótaröð heims, á
næstu árum.
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnu
kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni,
hefur keppt á Evrópumótaröðinni
undanfarin tvö ár með góðum
árangri og er með fullan þátt
tökurétt á næsta ári. Hún er þriðji
íslenski kylfingurinn sem hefur öðl
ast þátttökurétt á þessari mótaröð á
eftir Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur,
GR, og Ólöfu Maríu Jónsdóttur úr
Keili.
Þá mun Guðrún Brá Björgvins
dóttir, atvinnukylfingur úr Golf
klúbbnum Leyni, reyna að komast
inn á mótaröðina á lokaúrtökumót
inu í Marokkó í næstu viku. Guðrún
Brá keppti á þessu ári á Áskorenda
mótaröð Evrópu, næststerkustu
mótaröð Evrópu.
Viðræður um að mót yrði haldið
hér á landi hófust á síðasta ári. Ljóst
er að huga þarf að ýmsu áður en
slíkt mót yrði haldið hér á landi en
Haukur Örn Birgisson, forseti Golf
sambands Íslands, ræddi við for
ráðamann mótanefndar Evrópu
mótaraðarinnar á ársþingi evrópska
golfsambandsins á dögunum.
„Við hittumst, ég og framkvæmda
stjóri mótanefndar Evrópumóta
raðarinnar, á Möltu á ársþingi evr
ópska golfsambandsins. Þetta var
ekki formlegur fundur en við sett
umst niður og ræddum þessi mál. Ég
bauð þau velkomin hingað til lands
til að taka þetta á formlegra stig við
ræðna. Þau ætluðu að koma undir
lok sumars eða í haust en komust
því miður ekki.“
Haukur segist finna fyrir miklum
áhuga frá mótaröðinni enda fóru
átta mót af fimmtán á nýafstöðnu
tímabili fram utan Evrópu.
„Þau eru alltaf að leita að nýjum
löndum til að halda mót í og kylf
ingarnir okkar eins og Valdís Þóra
hafa vakið mikla athygli. Vanda
mál þeirra er að mótaröðin fer að
stórum hluta fram utan Evrópu
sem reynist kylfingum erfitt. Það er
dýrt fyrir evrópsku kylfingana. Þeir
eru því að leita að fleiri löndum til
að halda mótin í og það ætti ekkert
að vera því til fyrirstöðu að við höld
um mót,“ sagði Haukur og bætti við:
„Ef við erum tilbúin að halda slíkt
mót þá verður mót hérna. Ég tel það
nokkuð víst að málið myndi ekki
stranda á þeim.“
Stærsta hindrunin verður að
finna fjárfesta sem eru tilbúnir að
leggja til peninga en Haukur segir að
slíkar umræður fari ekki af stað fyrr
en búið verður að taka ákvörðun.
„Þetta er verkefni sem þyrfti helst
tveggja, þriggja ára fyrirvara. Það er
enginn búinn að hafa samband og
lýsa yfir áhuga enda erum við ekk
ert beint að leita þessa dagana. Þetta
er ekki komið á það stig en stærsti
þröskuldurinn verður að finna sam
starfsaðila,“ sagði Haukur.
„Það kostar talsverða peninga
að halda slíkt mót og það eru ekki
mörg íslensk fyrirtæki sem eru af
þeirri stærðargráðu að ráða við
þetta. Auglýsingagildið er að stórum
hluta á alþjóðlegum markaði sem
útilokar mörg fyrirtæki en þetta
gæti auðveldlega tengst almennri
landkynningu fyrir Ísland.“
kristinnpall@frettabladid.is
Eru mjög áhugasöm um að
bæta Íslandi við mótaröðina
Skagamærin Valdís Þóra jafnaði besta árangur sinn og þann besta sem íslenskur kylfingur hefur náð
á Evrópumótaröðinni þegar hún hafnaði í 3. sæti í Bonville í Ástralíu í byrjun þessa árs. LET/TriSTan JonES
Forráðamenn Evrópu-
mótaraðarinnar komust
ekki til Íslands til að
taka út aðstæður en til
stendur að funda með
Golfsambandi Íslands
á nýju ári. Forseti GSÍ
segir að stefnan sé enn
að halda mót af slíkri
stærðargráðu á Íslandi.
Ég bauð mótanefnd-
ina velkomna til
Íslands til að taka viðræð-
urnar á formlegt stig.
Haukur Örn Birgis-
son, forseti GSÍ
0
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
A
2
-D
2
5
4
2
1
A
2
-D
1
1
8
2
1
A
2
-C
F
D
C
2
1
A
2
-C
E
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
4
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K