Fréttablaðið - 05.12.2018, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 05.12.2018, Blaðsíða 6
K R I N G L U N N I & S M Á R A L I N D Falleg náttföt í jólapakkann Náttföt 1.790 kr St. 80-110 1.990 kr St. 116-152 Spánn Joaquim Forn og Josep Rull, fyrrverandi ráðherrar katalónsku héraðsstjórnarinnar, tilkynntu í gær um að þeir tækju nú þátt í hungur- verkfalli sem aðgerðasinninn Jordi Sánchez og fyrrverandi ráðherrann Jordi Turull boðuðu á laugardag. Katalónski miðillinn El Nacional greindi frá þessu í gær. Fjórmenningarnir eru allir vistaðir í Lledoners-fangelsinu og hafa ýmist verið ákærðir fyrir uppreisn gegn spænska ríkinu eða uppreisnaráróður í tengslum við gjörðir þeirra í kringum sjálfstæðis- atkvæðagreiðslu og -yfirlýsingu síð- asta hausts. Þeir halda allir fram sakleysi sínu, kveðast pólitískir fangar. Þótt langt sé liðið frá ákæru hefur engum þeirra, né neinu hinna fimm sem hafa verið fangelsuð, verið gert að mæta fyrir dóm. „Ég hef ákveðið að taka þátt í hungurverkfallinu. Þetta er þaul- hugsuð ákvörðun. Þegar stjórnvöld reyna að láta þig afplána áður en réttað er yfir þér, þegar þú hefur enga aðra möguleika til að berjast gegn þessu megna óréttlæti, þá verðurðu að grípa til ráða sem þess- ara,“ tístu bæði Forn og Rull. Fjórmenningarnir bera það einkum fyrir sig að stjórnlagadóm- stóll hafi ítrekað frestað því að taka mál þeirra fyrir. Það komi í veg fyrir að ákærðu geti snúið sér til Mann- réttindadómstóls Evrópu. Á vef- síðu tileinkaðri hungurverkfallinu, vagadefam.cat, mátti í gær sjá að á þriðja hundrað þúsunda höfðu lýst yfir stuðningi við verkfallið. – þea Katalónskir aðskilnaðarsinnar í hungurverkfalli í fangelsi Karlmennirnir sjö úr hópi þeirra níu sem eru í fangelsi. Nordicphotos/AFp SAMKEppnI Íslandspóstur (ÍSP) ákvað að sameina rekstur dóttur- félagsins ePósts og móðurfélagsins án þess að leita fyrst álits eftirlits- nefndar um framkvæmd sáttar milli ÍSP og Samkeppniseftirlitsins (SKE). Vinna við sameininguna hófst án þess að samþykki SKE lægi fyrir. Þetta kemur fram í gögnum sem eftirlitsnefndin afhenti Félagi atvinnurekenda (FA). ePóstur var stofnaður í nóvember 2012 en starfsemi fyrirtækisins fólst í þróun og vinnslu á sviði rafrænna samskipta- og dreifingarlausna. Rekstur fyrirtækisins hefur alla tíð verið basl en það lenti undir í sam- keppni við Greiðsluveituna, kerfi sem gerir þátttakendum kleift að birta ýmis gögn í netbanka, og vef- inn Ísland.is. Síðarnefndi aðilinn er, líkt og ePóstur, alfarið í eigu ríkisins. Frá stofnun hefur rekstur félags- ins gengið illa. Skömmu eftir stofn- un lánaði ÍSP félaginu 247 milljónir og aðrar 55 milljónir árið 2013. Tap hefur verið á rekstri félagsins frá stofnun ef undan er skilið árið í fyrra en þá nýtti það sér frádráttar- bært skattatap. Alls nemur tap þess rúmlega 200 milljónum króna og var eigið fé neikvætt um 198 millj- ónir í fyrra. Í febrúar í fyrra gerðu ÍSP og SKE sátt með það að marki að bæta sam- keppnisaðstæður á póstmarkaði. Í sáttinni viðurkenndi ÍSP engin brot og var ekki gerð sekt. Þriggja manna eftirlitsnefnd var skipuð til að fylgja sáttinni eftir. Meðal þess sem fólst í sáttinni var að ákveðin starfsemi skyldi rekin í dótturfélögum og að lán til dótturfélaga skyldu bera markaðs- vexti. Vextir á láni ÍSP til ePósts hafa verið nær engir. Hefðu þeir verið reiknaðir í samræmi við sáttina væri skuld ePósts við ÍSP í kringum 460 milljónir króna. Enn fremur segir í sáttinni að ef sú staða kemur upp að starfsemi dótturfélags hafi ekki lengur sam- keppnislega þýðingu geti ÍSP óskað eftir áliti eftirlitsnefndarinnar á því að færa rekstur þess inn í móður- félagið. Samþykki SKE fyrir slíkri sameiningu verði að liggja fyrir. Skjöl sem ÍSP sendi eftirlitsnefnd- inni bera hins vegar með sér að þessum ákvæðum hafi ekki verið fylgt. Í svari Ingimundar Sigurpálsson- ar, forstjóra ÍSP, til eftirlitsnefndar- innar segir að ákvörðun um að sam- eina ePóst og ÍSP hafi legið fyrir árið 2017. Ljóst er að sú ákvörðun hefur þá verið tekin á síðari hluta ársins því sagt var frá því í Markaðnum 18. október 2017 að engin ákvörðun hefði verið tekin. Umrætt svarbréf er dagsett 23. október 2018 og segir þar að sam- einingin sé langt á veg komin. Því hafi „[ekki þótt] efni til að byrja á því ári að reikna vexti á viðskipta- stöðu félaganna“. Í svarinu kemur einnig fram að ePóstur bókaði síðast tekjur frá öðrum aðila en ÍSP í júní 2017. Upp- hæð þeirra var 8.905 krónur. Svör Ingimundar koma ekki heim og saman við bréf Helgu Sig- ríðar Böðvarsdóttur, framkvæmda- stjóra fjármálasviðs ÍSP, til eftirlits- nefndarinnar en það bréf var sent rúmri viku fyrr. Í bréfinu er óskað eftir afstöðu eftirlitsnefndarinnar til sameiningarinnar en á því stigi var hún langt á veg komin. Þar segir að ákvörðun um sameininguna hafi verið tekin á stjórnarfundi ÍSP 25.  júní 2018. Hvorki er getið um það í bréfi Ingimundar né Helgu hví ÍSP dró það í minnst fjóra mán- uði að tilkynna eftirlitsnefndinni um fyrirhugaðan samruna líkt og kveðið er á um í sáttinni við SKE. joli@frettabladid.is Pósturinn hóf samruna í trássi við samkomulag Samruni Íslandspósts og dótturfélagsins ePósts var langt á veg kominn þegar eftirlitsnefnd um framkvæmd sáttar fyrirtækisins við Samkeppniseftirlitið var tilkynnt um hann. Lán Póstsins til ePósts hefur enn ekki verið látið bera vexti. Svör Ingimundar Sigur- pálssonar, forstjóra Íslands- pósts, koma ekki heim og saman við bréf Helgu Sigríðar Böðvarsdóttur, framkvæmdastjóra fjár- málasviðs fyrirtækisins, til eftirlitsnefndar um sátt við Samkeppniseftirlitið. AKurEyrI Langvinnu sumarfríi skíðaiðkanda er lokið eftir gríðar- lega snjókomu síðustu daga á Norð- urlandi. Skíðasvæðið í Böggvis- staðafjalli við Dalvík var opnað í dag og stefnt er að opnun í Hlíðarfjalli á laugardagsmorgun. Snjóframleiðsluvélarnar eru keyrðar á fullum afköstum til að gera aðstæður sem allra bestar á Akureyri fyrir komandi helgi en byssurnar framleiða um 630 þúsund rúmmetra af snjó á hverri klukku- stund. Kjöraðstæður fyrir vélarnar eru um 10 stiga frost og því ættu aðstæðurnar að verða mjög góðar um næstu helgi Guðmundur Karl Jónsson, for- stöðumaður Hlíðarfjalls, segir mikil- vægt að framleiða snjó til að bæta í þann náttúrulega snjó sem fyrir er á svæðinu. „Nú er bara verið að stand- setja allt og gera allt klárt. Það er líka kominn kippur í árskortasöluna hjá okkur. Margir bíða eftir opnuninni,“ segir Guðmundur Karl. Ekki var útlitið ákjósanlegt fyrir skíðaiðkendur fyrir viku því þá var afar lítið af snjó á Norðurlandi eftir góða tíð í nóvember. Nú hins vegar kætast áhugamenn um þessar vetraríþróttir allsnarlega. „Byssurnar hjá okkur eru að afkasta nú um 633 þúsund rúm- metrum á klukkutíma. Þær hafa margsannað gildi sitt og lengja tímabilið okkar töluvert,“ segir Guð- mundur Karl. – sa Skíðasvæðin á Norðurlandi að opna og snjóframleiðsluvélarnar keyrðar á fullu hjólin eru farin snúast aftur í hlíðar- fjalli. FréttAblAðið/AuðuNN Íslandspóstur átti að reka tiltekna þætti í dótturfélögum. FréttAblAðið/ErNir 5 . d E S E M b E r 2 0 1 8 M I Ð V I K u d A G u r6 f r é t t I r ∙ f r é t t A b L A Ð I Ð 0 5 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 A 2 -E B 0 4 2 1 A 2 -E 9 C 8 2 1 A 2 -E 8 8 C 2 1 A 2 -E 7 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 4 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.