Fréttablaðið - 02.01.2019, Page 16
Nýjast
Everton - Leicester 0-1
0-1 Jamie Vardy (58.).
Arsenal - Fulham 4-1
1-0 Granit Xhaka (25.), 2-0 Alexandre Laca-
zette (55.), 2-1 Aboubakar Kamara (69.),
3-1 Aaron Ramsey (79.), 4-1 Pierre-Emerick
Aubameyang (83.).
Cardiff - Tottenham 0-3
0-1 Harry Kane (3.), 0-2 Christian Eriksen
(12.), 0-3 Son Heung-Min (26.).
Enska úrvalsdeildin
KÖRFUBOLTI Það eru engin gífuryrði
að segja að James Harden, leikmað-
ur Houston Rockets í NBA-deildinni
í körfubolta, hafi farið mikinn í
desember. Raunar héldu manninum
með skeggið engin bönd.
Í síðasta leik Houston á árinu
2018, 113-101 sigri á Memphis
Grizzlies var Harden með þrefalda
tvennu; skoraði 43 stig, tók tíu frá-
köst og gaf 13 stoðsendingar. Hann
hitti aðeins úr átta skotum utan af
velli og tapaði boltanum níu sinn-
um en skoraði 21 stig af vítalínunni.
Þetta var fjórði leikurinn í röð þar
sem Harden skorar 40 stig eða
meira. Hann er fyrsti leikmaðurinn í
sögu Houston sem skorar 40 stig eða
meira í fjórum leikjum í röð.
„Ég veit ekki hvernig er hægt að
spila betur en hann er að gera,“
sagði Mike D’Antoni, þjálfari Hou-
ston, um Harden eftir sigurinn á
Memphis. „Hann stelur boltum og
nær þreföldum tvennum eins og að
drekka vatn. Frammistaða hans er á
allt öðru plani en hjá öðrum.“
Harden lék 15 leiki í desember.
Í þeim skoraði hann 36,4 stig að
meðaltali, tók 5,9 fráköst og gaf 7,9
stoðsendingar. Í síðustu tíu leikjum
Houston á árinu 2018 skoraði Har-
den 40,8 stig að
meðaltali, tók 6,8
fráköst og gaf 8,9
stoðsendingar.
Samkvæmt töl-
fræðingum vestan-
hafs er Harden þriðji
leikmaðurinn í NBA á
síðustu 30 árum sem
skorar a.m.k. 400 stig
yfir tíu leikja tímabil.
Hinir eru Michael Jor-
dan og Kobe Bryant.
Í síðustu átta leikj-
um Houston hefur
Harden skorað a.m.k.
35 stig og gefið fimm stoð-
sendingar. Með því sló
hann met sem var í eigu
Oscars Robertson.
Á ý m su h e f u r
gengið hjá Houston á
þessu tímabili. Í fyrra
var liðið með besta
á r a n g u r i n n í
NBA; vann 65
leiki og setti í
leiðinni félags-
met. Houston
komst í úrslit
Vesturdeildar-
innar þar sem
liðið tapaði
fyrir Golden
State Warr-
iors í odda-
leik. Harden lék stórvel í fyrra og
var valinn verðmætasti leikmaður
deildarinnar (MVP).
Nokkrar breytingar urðu á leik-
mannahópi Houston í sumar og
liðið fór illa af stað. Fimm af fyrstu
sex leikjunum töpuðust og í byrjun
desember var Houston með ellefu
sigra og 14 töp og við botninn í
Vesturdeildinni. En þá fór Harden
á flug og gengi Houston tók stakka-
skiptum. Liðið hefur unnið tíu af
síðustu ellefu leikjum sínum og er
komið í baráttuna um heimaleikja-
rétt í úrslitakeppninni.
Harden er líka kominn inn í
umræðuna um verðmætasta leik-
mann tímabilsins. Hann hefur borið
lið Houston á herðum sér og snúið
gengi þess algjörlega við á síðustu
vikum. Harden er með 33,3 stig að
meðaltali í leik á tímabilinu. Clint
Capela er næststigahæstur hjá Hou-
ston með 17,0 stig að meðaltali í
leik.
Harden er ekki bara langstiga-
hæsti leikmaður Houston á tíma-
bilinu heldur einnig langstigahæsti
leikmaður deildarinnar. Stephen
Curry, leikmaður Golden State
Warriors, kemur næstur með 28,7
stig að meðaltali í leik. – iþs
Harden óstöðvandi í jólamánuðinum
Frammistaða James
Harden í desember
(15 leikir)
l 36,4 stig
l 5,9 fráköst
l 7,9 stoðsend-
ingar
l 5 leikir með
meira en 40 stig
l 3 þrefaldar
tvennur
FÓTBOLTI Hjá Everton byrjaði árið
2019 eins og árið 2018 endaði;
með tapi. Leicester City gerði góða
ferð til Liverpool í gær og vann 0-1
útisigur á Everton. Jamie Vardy
skoraði eina mark leiksins sem var
jafnframt fyrsta mark ársins 2019 í
ensku úrvalsdeildinni.
Þetta var fjórða tap Everton í síð-
ustu fimm leikjum og uppskeran í
síðustu átta leikjum er aðeins fimm
stig. Eftir 21 leik er Everton með
27 stig, jafn mörg og á sama tíma
á síðasta tímabili. Líkt og í fyrra
hefur Everton unnið sjö leiki, gert
sex jafntefli og tapað átta leikjum.
Liðið er í 10. sæti deildarinnar og
gæti hrapað enn lengra niður töfl-
una eftir leiki dagsins.
Síðasta tímabil var skrautlegt
hjá Everton. Eftir slaka byrjun var
Ronald Koeman sagt upp og eftir
langa leit var Sam Allardyce ráðinn í
hans stað. Stóri Sam stýrði Everton-
skútunni í örugga höfn en var afar
óvinsæll hjá stuðningsmönnum
félagsins og það kom því lítið á
óvart að hann fékk ekki að halda
áfram með liðið.
Við tók Portúgalinn Marco Silva
sem Everton reyndi að fá þegar
Koeman var rekinn. Silva kom fyrst
í enska boltann þegar hann tók við
Hull City í erfiðri stöðu í janúar
2017. Liðið féll en spilamennska
þess undir stjórn Silvas var nóg til
að forráðamenn Watford leituðu til
hans um sumarið. Watford byrjaði
tímabilið af krafti en halla fór undan
fæti um svipað leyti og Everton
byrjaði að sýna Silva áhuga. Eftir að
hafa aðeins fengið fimm stig úr tíu
deildarleikjum var Silva rekinn frá
Watford í janúar 2018.
Forráðamenn Everton sáu fram
á betri tíð með draumastjórann í
brúnni en það hefur ekki gengið
eftir. Allavega ekki enn. Everton er
sókndjarfara en á síðasta tímabili
og hefur skorað sex mörkum meira
en á sama tíma í fyrra en vörnin
er hriplek og Everton hefur aðeins
haldið fjórum sinnum hreinu á
tímabilinu.
Everton fór rólega af stað en var
komið á gott ról þegar það mætti
Liverpool á Anfield 2. desember.
Allt stefndi í markalaust jafntefli
en þegar sex mínútur voru komnar
fram yfir venjulegan leiktíma skor-
aði Divock Origi sigurmark Liver-
pool eftir slæm mistök Jordans Pick-
ford í marki Everton.
Eftir þennan dramatíska granna-
slag hefur allt loft farið úr Everton-
blöðrunni og aðeins einn sigur
komið í hús. Fíflagangurinn hjá
enska landsliðsmarkverðinum virð-
ist hafa slegið strákana hans Silva út
af laginu.
Nokkrir leikmenn Everton hafa
átt gott tímabil (Gylfi Þór Sigurðs-
son, Richarlison og Lucas Digne) en
árangur liðsins er ekki merkilegur
og framfarirnar frá síðasta tíma-
bili ekki nógu miklar. Silva hefur
nú stýrt liðum í 63 leikjum í ensku
úrvalsdeildinni. Tuttugu þeirra hafa
unnist, 14 endað með jafntefli og 29
tapast. Markatalan er 84-111. Ever-
ton lagði mikið í að fá Silva en hann
á enn eftir að standa undir þeim
miklu væntingum sem til hans voru
gerðar á Goodison Park
ingvithor@frettabladid.is
Á sama stað á sama tíma að ári
Lítið gengur hjá Marco Silva og félögum sem hafa aðeins unnið einn af síðustu átta leikjum sínum. NORDICPHOTOS/GETTY
James Harden
hefur skorað
40 stig eða
meira í síðustu
fjórum leikj-
um Houston
Rockets.
NORDICPHOTOS/
GETTY
Árangur Everton eftir
21 umferð
2017-18
7 sigrar 6 jafntefli 8 töp
Markatala: 25-32 27 stig
2018-19
7 sigrar 6 jafntefli 8 töp
Markatala: 31-31 27 stig
Everton tapaði fyrir
Leicester City í fyrsta leik
ársins í ensku úrvalsdeild-
inni. Liðið er með sama
stigafjölda og á sama
tíma á síðasta tímabili
þrátt fyrir að hafa fengið
draumastjórann í sumar.
Betur má ef duga skal.
Búið að velja
Noregsfarana
HANDBOLTI Guðmundur Guðmunds-
son, þjálfari íslenska karlalands-
liðsins í handbolta, hefur valið þá
17 leikmenn sem fara á æfingamót í
Noregi í dag. Auk Íslands og Noregs
taka Brasilía og Holland þátt í mót-
inu. Þetta eru síðustu leikir íslenska
liðsins fyrir heimsmeistaramótið.
Stefán Rafn Sigurmannsson fer
ekki með íslenska liðinu til Noregs
vegna veikinda og þá er Arnar Freyr
Arnarsson meiddur. Línumaðurinn
Heimir Óli Heimisson fer á mótið en
hann var ekki í 20 manna æfinga-
hópnum fyrir HM sem var valinn í
síðasta mánuði.
Ágúst Elí Björgvinsson, mark-
vörður Sävehof, fer með til Noregs.
Hann var ekki í æfingahópnum og
lék ekki vináttulandsleikina gegn
Barein á dögunum.
Þrír leikstjórnendur eru í hópn-
um sem fer til Noregs: Janus Daði
Smárason, Gísli Þorgeir Kristjáns-
son og Elvar Örn Jónsson. Haukur
Þrastarson er ekki í hópnum sem
má sjá í heild sinni á vef Frétta-
blaðsins.
Ísland mætir Noregi á morgun,
Brasilíu á laugardaginn og Hollandi
á sunnudaginn. – iþs
Heimir Óli Heimisson fer með til
Noregs. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Stefna á fjórða
sigurinn í röð
FÓTBOLTI Sex leikir fara fram í ensku
úrvalsdeildinni í kvöld. Manchester
United sækir Newcastle United
heim. Liðið hefur unnið alla þrjá
leikina undir stjórn Ole Gunnars Sol-
skjær. Sir Matt Busby er eini knatt-
spyrnustjórinn í sögu United sem
hefur stýrt liðinu til sigurs í fyrstu
fjórum deildarleikjum sínum við
stjórnvölinn en Solskjær getur jafnað
þann árangur í kvöld.
Chelsea, sem er í 4. sæti deildar-
innar, tekur á móti Southampton
sem er í harðri fallbaráttu. Jóhann
Berg Guðmundsson og félagar í
Burnley, sem unnu síðasta leik sinn,
sækja botnlið Huddersfield heim.
Burnley er í fallsæti en getur komist
upp úr því ef úrslit kvöldsins verða
hagstæð.
Wolves, sem vann frábæran sigur
á Tottenham í síðustu umferð, fær
Crystal Palace í heimsókn. Þá sækir
Brighton West Ham heim og Bourne-
mouth og Watford eigast við. – iþs
2 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
0
2
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
D
-5
6
5
C
2
1
E
D
-5
5
2
0
2
1
E
D
-5
3
E
4
2
1
E
D
-5
2
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
1
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K