Fréttablaðið - 04.01.2019, Side 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
VINNUMARKAÐUR Á árinu 2018 bár-
ust Vinnumálastofnun 15 tilkynn-
ingar um hópuppsagnir, þar sem
864 var sagt upp störfum. Vinnu-
málastofnun hefur tekið saman
upplýsingar um hópuppsagnir á síð-
asta ári og í desembermánuði 2018.
Hópuppsagnir í desember 2018
voru þrjár og tóku til 269 manns.
Þegar hópuppsagnir á síðasta ári
eru skoðaðar út frá atvinnugrein-
um kemur í ljós að flestir misstu
vinnuna í flutningageiranum, þar á
eftir kemur iðnaðarframleiðsla og
fiskvinnsla. Fæstar hópuppsagnir
áttu sér stað í fjármálageiranum.
Um 51 prósent allra tilkynntra
hópuppsagna á síðasta ári voru á
höfuðborgarsvæðinu, um 34 pró-
sent voru á Suðurnesjum, 11 prósent
á Suðurlandi, þrjú prósent á Vestur-
landi og eitt prósent á Vestfjörðum.
Samtals hefur 11.514 manns verið
sagt upp í hópuppsögnum á síðustu
Tæplega 900 sagt upp í hópuppsögnum árið 2018
✿ Uppsagnir eftir greinum
n Fiskvinnsla 17% n Fjármálastarfsemi 2% n Upplýsingar og fjarskipti 2%
n Iðnaðarframleiðsla 31% n Sérfræðistarfsemi 3% n Flutningar 45%
11 árum. Flestir misstu vinnuna
á þriggja mánaða tímabili frá
desembermánuði 2008 til febrúar
2009. Eins og áður segir misstu 864
vinnuna í hópuppsögnum á síðasta
ári.
Árið 2017 nam fjöldinn 632, og
árið á undan misstu 493 vinnuna
í slíkum aðgerðum. Frá árinu 2014
hefur þeim fjölgað á hverju ári
sem misst hafa vinnuna í hópupp-
sögnum. – khn
BRETLAND Fjórar ungar breskar
konur voru í fyrra sendar af fjöl-
skyldum sínum í „skóla“ til Sómalíu
þar sem þeim var haldið föngnum
og þær beittar ofbeldi.
Breska utanríkisráðuneytið kom
þeim til hjálpar með því skilyrði
að þær tækju lán fyrir kostnað-
inum við björgunina, 740 pund
hver, sem greiða átti innan sex mán-
aða eftir heimkomu, að því er The
Times hefur greint frá. Konurnar
gátu ekki staðið í skilum en 10 pró-
sent leggjast ofan á eftirstöðvarnar.
Árið 2017 var 27 bjargað úr nauð-
ungarhjónaböndum erlendis en 55
árið 2016. Að minnsta kosti átta
gátu ekki greitt fyrir heimkomuna.
Þingmenn stjórnarflokkanna
og stjórnarandstöðunnar hafa
sagt aðferð utanríkisráðuneytisins
siðlausa. Ráðuneytið segir að það sé
skylda að endurheimta opinbert fé.
– ibs
Gert að borga
fyrir björgun
Theresa May, forsætisráðherra Bret-
lands, segir nauðungarhjónabönd
nútímaþrælahald. NORDICPHOTOS/AFP
THE FUTURE IS EVERYONE’S
Kynntu þér Opel atvinnubíla á opel.is
eða hafðu samband við sölumann
í síma eða á opel@opel.is og fáðu
nánari upplýsingar
Sýningarsalir:
Krókháls 9, Reykjavík, 590 2000
Njarðarbraut 9, Reykjanesbæ, 420 3330
OPEL ATVINNUBÍLAR
ÁRAMÓTA
SPRENGJA!
Nýttu þér skattalegt hagræði ársins
sem er að líða
Nokkrir sendi- og hópferðabílar
á dúndur afslætti
Búa sig undir deilur á vorþingi
Allsherjar- og mennta-
málanefnd
l Frumvarp um stuðning við einka-
rekna fjölmiðla
l Breyting á lögum um útlendinga
– vegna umsókna til Alþingis um
ríkisborgararétt
„Ég geri ráð fyrir
því að þetta verði
töluvert átaka-
mál, bæði á milli
flokka og innan
flokka. Þótt flestir
séu sammála um að það verði að
huga að þessum málum ef menn
ætla ekki að sitja bara uppi með
einn ríkisfjölmiðil í landinu, eins og
þróunin hefur verið, þá er ég jafn
viss um að tekist verði á um að-
ferðirnar við að ná því markmiði.“
Páll Magnússon, formaður nefndar-
innar, um væntanlegt frumvarp
menntamálaráðherra um stuðning
við einkarekna fjölmiðla.
Atvinnuveganefnd
l Lög um fiskeldi – Væntanlegt
þegar þing kemur saman
l Vandi sauðfjárbænda
l Endurskoðun búvörusamninga
l Innflutningur á hráu kjöti
l Strandveiðar
„Fiskeldisfrum-
varpið hefur
tekið breyting-
um, en ég á von á
því að einhverjar
deilur verði um
málið, þetta er stórt og
mikið mál en ég tel það sé búið að
reyna að mæta mörgum sjónar-
miðum þótt það verði erfitt að gera
alla sátta.“
Lilja Rafney Magnúsdóttir formaður.
Efnahags- og viðskipta-
nefnd
l Frumvarp um þjóðarsjóð
l Frumvarp um launafyrirkomulag
þeirra sem heyrðu áður undir
kjararáð
l Niðurstöður starfshóps um nýja
peningastefnu
l Hvítbók um framtíðarskipulag
fjármálaeftirlitsins
l Frumvarp um breytingu á lögum
um Seðlabanka Íslands
„Ég á líka von
á frumvarpi,
hvort heldur er
á vorþingi eða á
haustþingi, um
breytingar á lögum
um Seðlabanka íslands.
Forsætisráðherra hefur meðal
annars boðað sameiningu Seðla-
bankans og fjármálaráðuneytisins.“
Óli Björn Kárason formaður.
Fjárlaganefnd
l Endurskoðun á ríkisfjármála-
áætlun
l Ríkisreikningur
l Eftirlit með framkvæmd fjárlaga
l Málefni Íslandspósts
„Lög um opin-
ber fjármál hafa
meiri samfellu
í störfum fjár-
laganefndar allt
árið um kring og
eftirlitshlutverk
nefndarinnar er orðið
mun skýrara. Svo eru það málefni
Íslandspósts sem við erum enn
með í skoðun en fyrirferðarmest á
ég von á að verði þingsályktunartil-
laga um ríkisfjármálaáætlun.“
Willum Þór Þórsson formaður.
Stjórnskipunar- og eftir-
litsnefnd
l Skýrslur Ríkisendurskoðunar
um Útlendingastofnun og um
Fiskistofu
l Plastbarkamálið
l Stjórnsýsla dómstólanna
l Landsdómsmálið
l Sendiherrastöður
l Dómur Mannréttindadómstóls
Evrópu um skipun í Landsrétt
„Dóms er að vænta frá
Mannréttindadóm-
stól Evrópu um
skipun dómara
í Landsrétt og
það er ekki ólík-
legt að það þurfi
eitthvað að ræða
hann. Svo eigum við eftir
að ná fundi með fjármálaráðherra
og utanríkisráðherra og þingmönn-
unum Gunnari Braga Sveinssyni
og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni
vegna umæla sem féllu á Klaustri.
Það er inni á okkar borði og það er
okkar skylda að fjalla um þann þátt,
annars værum við ekki að sinna
lögbundinni skyldu stjórnskipunar-
og eftirlitsnefndar.“
Helga Vala Helgadóttir formaður.
Umhverfis- og sam-
göngunefnd
l Samgönguáætlun með tilheyr-
andi hugmyndum um veggjöld
l Frumvarp til nýrra umferðarlaga
l Frumvarp umhverfisráðherra um
skógrækt
„Það er stefnt að því
að ljúka afgreiðslu
samgönguáætl-
unar fyrir lok
mánaðarins.
Veggjöldin eru
auðvitað það sem
verið er að fjalla um þar
og útfærslan á þeim en svo þyrfti
að koma nýtt frumvarp samgöngu-
ráðherra um þau í febrúar eða mars
sem myndi þá grundvallast á niður-
stöðu um samgönguáætlunina.“
Jón Gunnarsson, starfandi formaður.
Utanríkismálanefnd
l Stefna um alþjóðlega þróunar-
samvinnu
l Þriðji orkupakkinn
„Það er lagt upp
með að þetta
komi til þingsins
á vorþingi.
Breyting á orku-
lögum fer til
atvinnuveganefndar
en aflétting stjórnskipu-
lega fyrirvarans til okkar í utanríkis-
málanefnd.“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, for-
maður nefndarinnar, um þinglega
meðferð þriðja orkupakkans.
Velferðarnefnd
l Heilbrigðisstefna heilbrigðisráð-
herra
l Frumvarp um þungunarrof
l Frumvarp um starfsgetumat
l Húsnæðismál með hliðsjón af
kjaraviðræðum
„Það varð
mikil umræða
um þungunar-
rofið þegar það
var lagt fram og
gæti orðið umdeilt
þvert á flokka og
jafnvel inni í flokkum, aðallega út af
þessum vikufjölda.“
Halldóra Mogensen formaður.
Búast má við deilum um stuðning við fjölmiðla,
þungunarrof, fiskeldi, kjaramál, þriðja orkupakk-
ann, veggjöld og málefni dómstóla á vorþingi sem
hefst um miðjan mánuð. Fréttablaðið ræddi við for-
menn fastanefnda um störfin og búa þeir sig undir
fjörugan seinni hálfleik 149. löggjafarþings.
SÁDI-ARABÍA Réttarhöld hófust í
Riyadh í gær yfir ellefu mönnum
sem grunaðir eru um aðild að morð-
inu á sádiarabíska blaðamanninum
Jamal Khashoggi. Samkvæmt ríkis-
fréttastofu landsins er krafist dauða-
refsingar yfir fimm mannanna.
Khashoggi var myrtur í byrjun
október þegar hann heimsótti
skrifstofu ræðismanns Sádi-Arabíu
í Istanbúl í Tyrklandi. Litlar upplýs-
ingar er að hafa frá réttarhöldunum
aðrar en þær að hinir ákærðu voru
viðstaddir í gær ásamt lögmönnum
sínum.
Verjendur hafa farið fram á frest
til að fara yfir ákæruna en ekki
liggur fyrir hvenær réttarhöldunum
verður fram haldið. Þá hafa nöfn
sakborninga ekki verið gerð opin-
ber.
Tyrknesk stjórnvöld hafa greint
fimmtán sádiarabíska menn sem
eru grunaðir um aðild að morðinu.
Sádi-Arabar hafa hins vegar ekki
viljað framselja mennina og þrjá
aðra að auki til Tyrklands. Ekki er
vitað hvort einhver þeirra er meðal
hinna ákærðu.
Á Vesturlöndum er talið að krón-
prinsinn Mohammed bin Salman
standi á bak við morðið en hann
hefur neitað aðild að því sem hann
kallar hræðilegan og óréttlætanlegan
glæp. Hefur meðal annars verið haft
eftir bandarískum embættismönn-
um að slíkt tilræði væri óhugsandi án
samþykkis krónprinsins. – sar
Fara fram á dauðarefsingu yfir fimm
Khashoggi var gagnrýninn á stjórnvöld í Sádi-Arabíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
4
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
F
-B
D
1
4
2
1
E
F
-B
B
D
8
2
1
E
F
-B
A
9
C
2
1
E
F
-B
9
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
3
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K