Fréttablaðið - 04.01.2019, Síða 10

Fréttablaðið - 04.01.2019, Síða 10
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Uppsveifla síðustu ára á því ekkert sammerkt með bólu­ árunum í aðdraganda fjármála­ hrunsins 2008. Sú krafa um hófstillingu virðist þó bara eiga við um verka­ lýðshreyfing­ una og talsmenn hennar, en ekki álits­ gjafana sjálfa. Mikil umræða er nú eðlilega um stöðuna í kjara­málum í landinu. Þar birtast sjónarmið um hvert svigrúmið sé til kjarabóta, aðkomu ríkisvaldsins, æskilegan jöfnuð og margt fleira. Eðlilega hafa hugmyndir og áherslur verkalýðshreyfingarinnar verið mikið í þeirri umræðu. Sumt af umræðunni er á kunnuglegum nótum. Eðlilegar og réttmætar hugmyndir verkalýðshreyfingarinnar eru úthrópaðar með flestum þeim sterkustu lýsingarorðum sem finnast og ýmsum finnst þeir vera þess umkomnir að setja ofan í við forystufólk launamanna af yfirlæti. Hug­ myndir um að hækka lægstu launin, efla húsnæðiskerfið og bæta skattkerfið virðast fela í sér sérstaka árás á íslenskt samfélag, þeir sem mæla fyrir kjarabótum eru „ólæsir á hagfræðilögmál“ og virðast ekki skilja „hvað fólk hefur það að meðaltali gott“ og svo eru vangaveltur um að eitthvað sem viðkomandi finnst „róttækni í orðum“ geti „hæg­ lega orðið til þess að krónan veikist enn meira“. Við þetta bætist svo sú fullyrðingagleði að forystufólkið tali ekki í umboði sinna félagsmanna þegar farið er fram á meiri jöfnuð í samfélaginu og aukinn kaupmátt þeirra sem eru á lægstu launum. Í grautinn er síðan blandað ódýrri sagn­ fræði um verðbólgu hér á árum áður, og að hún hafi verið almennu launafólki að kenna! Engin tilraun er gerð til að ræða málið efnislega, skilja hvernig launafólki líður og úr hvaða jarðvegi kröfurnar eru sprottnar. Allt er þó sagt undir því yfirskyni að nú sé mikilvægt að tala varlega, gæta hófs, efna ekki til ófriðar og svo framvegis og framvegis. Sú krafa um hófstillingu virðist þó bara eiga við um verkalýðshreyfinguna og talsmenn hennar, en ekki álitsgjafana sjálfa. Fjármálaráðherra taldi það svo einhverra hluta vegna hjálplegt í umræðu milli launafólks og atvinnurekenda að setja fram hálfgerðar hótanir vegna mögulegra skattkerfisbreytinga, sem sýnir undarlegt stöðumat. Það væri ágætt nýársheit þeirra sem hvað mest predika hófstillingu og málefnalega umræðu, að þeir taki það líka til sín og fjalli um hugmyndir verka­ lýðshreyfingarinnar og kröfur með sanngjörnum hætti? Nýársheit um yfirlætislausa umræðu Flosi Eiríksson framkvæmda- stjóri Starfs- greinasam- bandsins ALLT fyrir listamanninn Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn Þótt stundum mætti halda annað af fréttaflutningi að dæma þá var nýliðið ár Íslendingum hag­fellt í efnahagslegum skilningi. Útlit er fyrir að hagvöxtur muni mælast vel yfir 4 prósent – við upphaf ársins spáðu flestir um 3 prósenta vexti – og þá virðist líklegt að afgangur á viðskiptum við útlönd verði um tvöfalt meiri en upphaflega var gert gert ráð fyrir. Kaupmáttur launa hélt áfram að hækka verulega og hefur núna aukist um fjórðung frá 2015. Síðri tíðindi voru að verðbólgan, sem hafði mælst undir markmiði Seðlabank­ ans samfellt í fjögur ár, hækkaði snögglega á seinni árs­ helmingi samhliða því að gengi krónunnar tók að veikjast vegna rekstrarerfiðleika WOW air og herskárra yfirlýsinga verkalýðsforystunnar. Á síðustu vikum hefur gengisveik­ ingin að nokkru gengið til baka og þá hefur hráolía hrunið í verði. Hvort tveggja ætti að létta á verðbólguþrýstingnum og draga úr líkum á frekari vaxtahækkunum. Stundum vill gleymast að samsetning hagvaxtarins hverju sinni skiptir máli. Kröftugur vöxtur síðasta árs skýrist meðal annars af meiri íbúðafjárfestingu, sem fór í fyrsta sinn frá 2008 yfir langtímameðaltal sitt, en ekki hvað síst auknum útflutningstekjum. Slíkur vöxtur er góðs viti og til marks um að hann er sjálfbær og heilbrigður. Þótt einkaneysla hafi aukist um liðlega fimm prósent mælist hún enn sögulega lág sem hlutfall af landsfram­ leiðslu. Enn sjást því engin merki um að heimilin séu að skuldsetja sig svo einhverju nemi til að standa undir auk­ inni neyslu heldur hefur þjóðhagslegur sparnaður haldið áfram að aukast. Þetta eru jákvæð tíðindi. Uppsveifla síðustu ára á því ekkert sammerkt með bólu árunum í aðdraganda fjármálahrunsins 2008. Í stóra samhengi hlutanna er ein merkilegasta efna­ hagsfrétt síðustu ára sú staðreynd að í framhaldi af skulda­ skilum föllnu bankanna í ársbyrjun 2016 varð eignastaða þjóðarbúsins gagnvart útlöndum jákvæð í fyrsta sinn í lýðveldissögunni. Hrein erlend staða batnaði enn frekar á síðasta ári, samtímis því að Íslendingar greiddu niður erlendar skuldir og lífeyrissjóðir fjárfestu í stórauknum mæli erlendis, og mældist um 14 prósent af landsfram­ leiðslu við lok þriðja ársfjórðungs. Í evrópskum saman­ burði standa nú fá ríki betur en Ísland í þessum efnum. Hvaða máli skiptir þetta? Takist okkur að viðhalda þessari stöðu, þar sem Ísland er í reynd orðið að fjármagns­ útflytjanda, ætti það meðal annars að endurspeglast í hærra jafnvægisgengi krónunnar. Við þær aðstæður gætu vextir farið lækkandi án þess að jafnvægi í hagkerfinu yrði raskað. Það er því til mikils að vinna að glutra ekki niður þessum árangri. Það eru vissulega, eins og ávallt, viðvörunarljós sem blikka við upphaf nýs árs. Þótt WOW air sé að líkindum komið fyrir vind þarf ferðaþjónustan að laga sig að nýju jafnvægi eftir ofurvöxt síðustu ára. Launakostnaður í greininni sem hlutfall af tekjum er orðinn of hár, rétt eins og í mörgum öðrum atvinnugreinum, og fyrirtækin hafa fáa aðra valkosti en að ráðast í hagræðingaraðgerðir, meðal annars með sameiningum í stærri einingar. Sú þróun er aðeins rétt hafin. Við stöndum um margt á afar sterkum grunni en fíllinn í herberginu er auðvitað niður­ staða kjarasamninga á vinnumarkaði. Það skiptir sköpum fyrir framhaldið að skynsemin hafi þar yfirhöndina. Við skulum vona það besta en búast við hinu versta. Hagfellt ár Biðin langa Stuðningsmenn Liverpool í enska boltanum eygja von um langþráðan titil í vor eftir langa eyðimerkurgöngu. Þrátt fyrir að fyrsta tapið í deildinni hafi komið í gær er liðið efst. Það hugsa eflaust margir til þess með hryllingi verði það raunin. Óþolandi þykjum við Liverpool- menn fyrir og ljóst að metfjöldi starfsmanna myndi tilkynna um óvænt veikindi til að þurfa ekki að takast á við veruleika þar sem Liverpool er meistari. Von um þjóðarsátt? Það stefnir í vægast sagt anna- sama tíma hjá ríkissáttasemjara næstu mánuðina. Nú þegar hafa Efling, VLFA og VR vísað deilu sinni við SA í sáttaferli og fleiri félög innan SGS íhuga að gera slíkt hið sama. Þá losna fjölmarg- ir samningar opinberra stéttar- félaga í mars. Miðað við orðræðu forystumanna verkalýðshreyf- ingarinnar og atvinnurekenda virðist kraftaverk þurfa til að samningar verði undirritaðir á næstunni. Jafnvel þótt stjórnvöld vinni að ákveðnum hlutum til að liðka fyrir samningum virðist ekki ríkja mikil bjartsýni um að það dugi til. Þó má rifja upp að þjóðarsáttarsamningarnir voru undirritaðir í febrúar 1990 en með þeim náðist sögulegt sam- komulag aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda. Nokkrum mánuðum síðar varð Liverpool enskur meistari. Hvorugt hefur gerst síðan. sighvatur@frettabladid.is 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 0 4 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :2 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 E F -B 8 2 4 2 1 E F -B 6 E 8 2 1 E F -B 5 A C 2 1 E F -B 4 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 3 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.