Fréttablaðið - 04.01.2019, Qupperneq 16
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í
formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is,
s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 550 5766 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@
frettabladid.is, s. 550 5765 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 550 5769 | Starri Freyr Jóns-
son, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Arnmundur segir talsverðan aðdraganda hafa verið að því að hann gerðist
vegan. „Ég kynntist þessu fyrst
hjá bekkjarsystur minni í leik-
listarskólanum, Salóme Rannveigu
Gunnarsdóttur. Til að byrja með
stríddi ég henni og otaði kjöt-
samlokunni minni framan í hana.
Svo kemur á daginn að litla systir
mín, Unnur Birna Backman, sem
þá var ekki nema fjórtán ára, var
farin að daðra við þetta og þá fóru
að renna á mig tvær grímur. Ég
kynntist kærustu minni og barns-
móður, Ellen Margréti Bæhrenz,
haustið 2013. Hún var þá græn-
metisæta og talaði mikið um að
hana langaði til að fara alla leið og
gerast vegan. Áramótin 2015-2016
höfðu fyrrnefndar konur haft þau
áhrif á mig að ég ákvað að prófa að
gerast grænmetisæta en áttaði mig
fljótlega á því að ég þyrfti litlu að
breyta til að fara alla leið, enda var
ég þegar búinn að taka út mjólkur-
vörur þar sem þær fóru illa í mig.
Það eina sem ég átti eftir að taka
út var viðbætt mjólkurprótein
og það var lítið mál.“ Aðspurður
segir Arnmundur að fyrsta vikan
hafi verið erfið. „Ég líki þessu svo-
lítið við að hætta að borða sykur
eða jafnvel að hætta að reykja og
drekka, sem ég þekki af eigin raun.
Fyrsta vikan var erfið en fljótlega
leið mér miklu betur.“ Armundur
segir að breytingin hafi eftir það
ekki reynst sér erfið. „Mér fannst
ég ekki þurfa að finna upp hjólið
enda búum við við þann munað
hér á Íslandi að hér er allt til alls.
Úrvalið af grænmeti og vegan-
réttum er mikið og hefur aukist
margfalt síðan ég byrjaði. Það voru
helst skyndibitastaðirnir sem ég
þurfti að endurskoða.“
Siðferðissjónarmiðin
vega þyngst
Arnmundur segist ekki eiga von
á því að snúa til baka. „Ég held að
fæstir sem fara alla leið í þessu geri
það.“ En hver er helsti hvatinn?
„Hjá flestum er hann þríþættur
og snýst um umhverfissjónarmið,
heilsufarssjónarmið og siðferðis-
sjónarmið. Í mínu tilfelli voru
það upphaflega heilsufarsástæður
sem knúðu mig áfram en ég hafði
hlustað á lækni færa mjög góð rök
fyrir því að marga af helstu heilsu-
kvillum Vesturlandabúa mætti að
einhverju leyti rekja til neyslu á
dýraafurðum og þá einna helst á
unninni kjötvöru, ostum og ann-
arri mjólkurvöru. Hvað umhverfis-
sjónarmiðin snertir er margbúið
að sýna fram á það að menn
stórminnka kolefnisspor sitt með
því að stíga þetta skref. Siðferðis-
þátturinn vegur svo kannski einna
þyngst og hann heldur manni við
efnið,“ segir Arnmundur og heldur
áfram: „Áður en ég gerðist vegan
var ég ekki haldinn neinu sérstöku
samviskubiti yfir meðferð á dýrum
en ég held að við flest og þar með
talið ég séum haldin ákveðnu sið-
rofi sem tekur á sig margs konar
myndir. Sem dæmi vitum við að
margir vinsælir fata- og farsíma-
Arnmundur og
Ellen Margrét
Bæhrenz ásamt
syninum Hrafni
Jóhanni Bæhrenz
Backman.
Vera
Einarsdóttir
vera@frettabladid.is
framleiðendur framleiða vörur
sínar við ófullnægjandi aðstæður
þar sem illa er farið með starfsfólk
en kaupum þær engu að síður. Það
sama á við um ýmislegt sem við
látum ofan í okkur.“ Arnmundur
hefur þó mikla trú á sinni og
komandi kynslóðum. „Mér finnst
augu margra vera að opnast. Við
erum að átta okkur á því að það
er verið að færa ábyrgðina yfir á
okkur neytendur þó svo að hún
ætti að liggja hjá fyrirtækjum sem
eru miklu betur í stakk búin til
að ráða bót á þessum málum. Þau
taka hins vegar mörg hver ekki
ábyrgð og þá verða neytendur að
grípa til sinna ráða.“
Boltinn farinn að rúlla
En eru margir leikarar vegan? spyr
blaðamaður nokkuð viss um að svo
sé enda hefur róttækni og rík sam-
félagsvitund lengi loðað við stétt-
ina. „Nei. Ég var eini veganinn í
Þjóðleikhúsinu fyrir ekki svo löngu
og var gaman að ræða þessi mál
við skoðanaheita kollega. Mér var
þó sýnt mikið umburðarlyndi og
get ekki sagt að það hafi verið nein
þrekraun að vera eini veganinn í
leikhúsinu,“ segir Arnmundur og
hlær. Hann segir marga erlenda
leikara þó vera að stíga þetta skref
og nefnir Chris Hemsworth og
Benedict Cumberbatch sem dæmi.
„Ég held að boltinn sé farinn að
rúlla og að fleiri muni bætast við
áður en langt um líður,“ segir Arn-
mundur sem mun segja nánar frá
því af hverju hann gerðist vegan
á Trúnó sem Landvernd heldur í
Stúdentakjallaranum í samstarfi
við Veganúar og Samtök grænkera
á Íslandi 10. janúar næstkomandi.
Sonurinn vegan
Arnmundur og Ellen eiga soninn
Hrafn Jóhann Bæhrenz Backman.
Hann er 19 mánaða og vegan eins
og foreldrarnir. „Aumingja dreng-
urinn. Fær ekki að hafa neitt um
mataræðið að segja og þarf svo að
burðast með tvö ættarnöfn,“ segir
Arnmundur og hlær. Hann segir
hvort tveggja þó ganga ljómandi
vel. „Hann fékk inni á ungbarna-
leikskólanum Lundi þegar hann
var eins árs og þar er tekið fullt
tillit. Hann situr á vandræða-
gemsaborðinu, ásamt börnum
með óþol og aðrar sérþarfir, en er
hinn ánægðasti og dafnar vel. Við
gætum heldur ekki verið ánægðari
með leikskólann almennt en eins
og foreldrar þekkja er ekkert betra
en að vita að barninu manns líði
vel.“
Arnmundur lék í Borgarleik-
húsinu í fyrra en þurfti frá að hverfa
þegar honum bauðst hlutverk í
sjónvarpsþáttunum Ófærð sem nú
eru sýndir á RÚV, enda fóru æfinga-
tímar í leikhúsinu og tökur ekki
saman. Þá var hann að ljúka tökum
á kvikmyndinni Hvítur, hvítur dagur
eftir Hlyn Pálmason. „Þar tók ég þátt
í einni skemmtilegustu senu sem
ég hef leikið í og hlakka mikið til
að sjá útkomuna.“ Arnmundur lék
sömuleiðis í gamanþáttaseríunni
Venjulegt fólk sem var sýnd í Sjón-
varpi Símans fyrr í vetur við góðar
undirtektir. „Þar er karakterinn sem
ég leik skrifaður eftir mér. Hann er
edrú og vegan og fengu höfundarnir
fullt leyfi til að gera eins mikið grín
að honum og þeir vildu.“
Undir jákvæðum
áhrifum kvenna
Arnmundur setti tappann í
flöskuna um það leyti sem hann
útskrifaðist úr leiklistarskólanum
árið 2013. „Ég var bara að fara
mér að voða og þá er stundum
nauðsynlegt að segja stopp. Sama
ár kynntist hann Ellen sem þá
starfaði sem dansari í Borgarleik-
húsinu. Hún leggur nú stund á leik-
listarnám við LHÍ. „Það er gott að
geta stutt hana á þeirri vegferð en
að eiga maka í leiklistarnámi gerir
þig að hálfgerðum aðstandanda.
Þá er gott að hafa gengið í gegnum
það sama.“ Arnmundur segist afar
heppinn í ástum og að þau Ellen
eigi mjög gott skap saman. „Ég hef
almennt verið mjög heppinn með
konurnar í lífi mínu og án þess
að gera lítið úr uppeldishlutverki
föður míns eru það án efa móðir
mín, Edda Heiðrún Backman,
litla systir og Ellen sem hafa haft
hvað mest áhrif á mig.“ Arnmundi
eru kvenlæg gildi almennt hug-
leikin. „Mér finnst svo gott að það
sé verið að opna umræðuna um
mikilvægi þeirra og er það að mínu
mati annað dæmi um jákvæða
breytingu sem er að eiga sér stað
með minni kynslóð. Ég held að við
karlmenn höfum mjög gott af því
að tileinka okkur ýmis kvenlæg
gildi og þurfum meðal annars að
vera óhræddir við að ræða tilfinn-
ingar okkar eins og vinur minn
Aron Mola hefur opnað á. Með
því held ég að við getum til dæmis
spornað við ofneyslu vímuefna og
sjálfsvígum sem eru allt of algeng á
meðal ungra manna.“
En hvað er fram undan? „Í lok
mánaðar fer ég að æfa nýtt verk
eftir Jón Gnarr sem verður sýnt í
Þjóðleikhúsinu með vorinu. Það
heitir Súper – þar sem kjöt snýst
um fólk, og því verður leikstýrt af
Benedikt Erlingssyni. Það er skipað
einvala leikaraliði sem ég get ekki
beðið eftir að vinna með.“ Annað
er að mestu óráðið en Arnmundur
á síður von á verkefnaskorti. „Það
fylgir því ákveðin áhætta að sleppa
hendinni af ársráðningu í leik-
húsunum en líka ýmislegt nýtt og
spennandi.“
Framhald af forsíðu ➛
Arnmundur stundar Movement Improvement hjá Primal Iceland. „Það er
besta hreyfing sem ég hef komist í og ótrúlega gaman að vera loks að nálg-
ast það að geta farið í splitt og spígat ásamt því að geta staðið á höndum
um þrítugt. Það getur líka komið sér vel í leiklistinni.“
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R
0
4
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
F
-D
A
B
4
2
1
E
F
-D
9
7
8
2
1
E
F
-D
8
3
C
2
1
E
F
-D
7
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
3
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K