Fréttablaðið - 04.01.2019, Side 24

Fréttablaðið - 04.01.2019, Side 24
Íþróttavöruverslun Sundaborg 1 Sími 553 0700 NÆG BÍLASTÆÐI VIÐ VERSLUN Fylgdu okkur á Opnunartími 11-18 50% afsláttur 4. – 9. janúar Opið 11-18 alla dagana ÚTSALA Á þrettándanum heldur þrettándi jólasveinninn til fjalla og íslensk jól verða kvödd að sinni. Þá fara álfar, huldu­ fólk og ýmsar kynjaverur á stjá við þrettándabrennur sem trekkja að og er hátíðlegur endir á jólum. Suðurnesjamenn hafa lengi staðið fyrir metnaðarfullri þrettánda gleði og á sunnudag frá klukkan 15.30 til 17 verður luktarsmiðja í Myllu­ bakkaskóla og fólk hvatt til að koma með eigin glerkrukku að heiman til að útbúa fallega lukt til að ganga í blysför, sem hefst klukkan 17, að hátíðarsvæðinu í fylgd álfakóngs og drottningar, álfa og púka. Metn­ aðarfull tónlistardagskrá verður undir stjórn Grýlu og jólasveins og kynjaverur verða á sveimi við þret­ tándabrennuna á Ægisgötu. Jólin verða kvödd víðar með dansi og söng á sunnudag. Til dæmis á þrettándagleði sem hefst á Ás völlum í Hafnarfirði klukkan 17 og lýkur með glæsilegri flugeldasýn ingu klukkan 18. Á Selfossi verður einnig glæsileg þrettándagleði og farin blysför frá Tryggvaskóla klukkan 20 að brennusvæði á tjaldsvæði Gest­ húsa. Í Reykjavík verða þrjár þrettánda­ hátíðir um helgina. Á morgun, laugardag, í Grafarholti, en þá er safnast saman við Guðríðarkirkju klukkan 18.30 og farin blysför að brennu sem kveikt verður í klukkan 19.15 í Leirdal. Á sunnudag hefst þrettándahátíð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða við Melaskóla klukkan 18 og þaðan gengið með kyndla að brennunni á Ægisíðu en eldur verður borinn að kestinum klukkan 18.30. Árleg þrettándagleði Grafarvogs­ búa verður haldin við Gufunesbæ á sunnudag. Kakó­ og vöfflusala verður í Hlöðunni frá klukkan 17 og andlitsmálning í boði fyrir krakka. Blysför að brennunni hefst laust fyrir klukkan 18 og eldur borinn að kestinum klukkan 18. Flugelda­ sýningar verða við allar þrettánda­ brennurnar í Reykjavík. Jólin kvödd á sunnudag Töfrar eiga sér gjarnan stað við þrettánda brennurnar. MYND/VALLI Reykingar hafa dregist saman í Dan- mörku en sala nikótínlyfja aukist. Danir eru þekktir reykinga­menn. Nú bregður svo við að á síðasta ári var metsala í níkótínlyfjum þar í landi. Níkótín­ fíknin hefur því fengið nýjan farveg hjá frændum okkar. Samkvæmt frétt í Politiken hefur aldrei áður selst jafn mikið af nikótínlyfjum og árið 2018. Á síðustu fimm árum hefur sala á níkótíntyggjói og öðrum hjálpartækjum aukist um 20%. Það er jákvætt að reykingar séu á undanhaldi en níkótínið er enn of mikið notað, segir í frétt­ inni. Reykingar eru mikið vanda­ mál í Danmörku og eru helsta dánarorsök þjóðarinnar. Níkótínnautn Bragðgóðar súpur eru fyrirtaks matur í upphafi nýs árs þegar flestir eru orðnir þreyttir á þungum mat. Þessi ilmandi súpa slær í gegn hjá öllum aldurshópum. Fyrir 4 4 kjúklingabringur eða 1 grillaður kjúklingur 1 laukur, saxaður 2 hvítlauksrif, söxuð 1 rautt chili, smátt saxað 1 msk. ferskt engifer, rifið 3 gulrætur, skornar í strimla 1 epli, skorið í teninga 2 tsk. karrí 9 dl kjúklingasoð (eða 2 kjúklinga- teningar og vatn) 2 dl kókosmjólk (eða rjómi) salt og pipar kóríander, saxað Hitið smjör í potti og steikið laukinn þar til glær. Bætið hvítlauk, chili og engifer saman við og steikið í 1­2 mínútur. Bætið þá karríi, gulrótum og eplum saman við og steikið í nokkrar mín. á pönnunni. Næst fer kjúklingasoðið út í. Látið malla í 10­15 mín. Skerið kjúkling­ inn í munnbita. Hitið olíu á pönnu og steikið kjúkling við meðalhita og saltið og piprið. Bætið kjúklingi og kókosmjólk í súpuna og hitið varlega eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. Látið ekki sjóða. Í lokin setjið þið kóríander saman við súpuna. Heimild: www.grgs.is Indversk súpa með eplum, engifer og karríi Ilmandi indversk kjúklingasúpa. 10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R 0 4 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :2 9 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 E F -D A B 4 2 1 E F -D 9 7 8 2 1 E F -D 8 3 C 2 1 E F -D 7 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 3 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.