Stjarnan - 01.04.1932, Síða 1
STJARNAN
g~^L
Ljósið Sigrar
Kristur er Ijósið, sem upplýsir hvern mann í þessum
heimi. Fagnaðarerindi hans mun verða kunngjört öll-
um þjóðum, og þá mun hann koma aftur. Starf Guðs
getur enginn stöðvað. Einn af kristniboðum vorurn frá
Suður-Ameríku ritar, að þar séu margár Indíána kyn-
kvislir í vesturhlutavBrasilíu, sem nú rétta hendurnar
út eftir hinurn lifandi Guði og með fögnuði veita sann-
leikanum viðtöku.
í landi nokkru í Afríku fóru engispretturnar fyrir
stuttu yfir stórt svæði og átu alt grænt í görðum manna
og á ökrurn, en snertu ekki neitt á bújörS kristniboðs-
stöðvar okkar, öllum mönnum á því svæði til vitnis-
burðar að Guð þekkir sína og efnir loforð sitt.
Frá einum kristniboða vorurn í Suðurhafs-eyjunum
fréttum vér að á einum stað, þar sem hinn vondi sjálfur
virtist hafa víggirt svæðið með manndrápum, mannáti,
fjölkvæni og allra handanna löstum, má nú halda guðs-
þjónustur í sex þorpum á hverjum hvíldardegi, og það
þezta er að alt fólkið sækir kirkju. Menn leggja þar
niður morð, mannát, fjölkvæni og hætta jafnvel við
svinarækt og tóbaksnautn. Þeir bera ávöxt, sem er
samboðinn iðruninni.
Flvenær munu menn vakna af svefni andvaraleysisins
og leyfa himnesku geislununr að skína inn í hjörtu
þeirra í þessum löndum, sem urn svo langan tíma hafa
haft tækifæri til að kynna sér hinn sanna Guð os Son