Stjarnan - 01.04.1932, Qupperneq 5

Stjarnan - 01.04.1932, Qupperneq 5
STJARNAN 53 Davíð Djarfur og Dirfiska Daniels “Þú sagðir, herra Einarson, aS hvaÖa spádómur sem væri, yrði að líkindum uppfyltur, ef nógu langur tími væri gef- inn til þess,” hóf DavíÖ Djarfur mál sitt eftir að fundarstjóri hafði kallað mannfjöldann til hljóðs. “Þú hefir gefið upp tilraunina að halda því fram að allir spádómar séu skrifaðir eftir að viðburðirnir áttu sér stað. Svo fer þú út í gagnstæðar öfg- ar til að reyna að koma þér úr klípunni. Nú skulum vér benda á, hvernig tíma- lengd, i stað þess að uppfylla spádóm myndi miklu fremur virðast standa í vegi fyrir uppfyllingu hans. “Hnignun og fall Rómaveldis var ekki skrifað af vantrúarmanninum Ed- ward Gibbon á 18. öldinni, heldur af Daníel spámanni á 6. öld f. Kr., en Gibbon skrifaði 6 stór bíndi, til að skýra nákvæmlega frá, hvernig spá- dómar Daníels hefðu komið fram.” Hr. Einarson stóð nú upp og mátti sjá undrunarsvip á andliti hans, og óró- semi í tilburðum hans. “Þú ætlar þó ekki að reyna að telja oss trú um, að Daníel hafi á 6. öld fyrir Krist ritað bók þá, sem við hann er kend? Hugsið yð- ur,” sagði hann, um leið og hann snéri sér aS mannf jöldanum, með upplyftum höndum, eins og til að láta í ljósi hve steinhissa hann væri. “Hugsið yður, fríhyggjumennirnir meðal allra gagnrýnenda Biblíunnar er það viðurkent að Daníel hafi hreint ekki. skrifað Daníelsbók, heldur hafi einhver ónefndur- maður gjört það um árið 169 fyrir Krist.” “Mér er það vel kunnugt, hr. Einars- son,” svaraði ræðumaður, “að gagnrýn- endur Biblíunnar hafa beint árásum sín- um að Daníelsbók, altaf síðan Celsus á 3. öld eftir Krist, fann það út, að ómögu- legt var að mótmæla spádóminum, vegna þess hve nákvæmur og áreiðanlegur hann var. Bæði í öðrum og sjöunda kapítulanum er gefið svo skýrt og ná- kvæmt yfirlit yfir sögu heimsins frá því Babýlon hafði völdin, og alt til vorra tima, að enginn vantrúarmaður hefir getað skýrt það frá mannlegu sjónar- miði. Spádómurinn ber vott um yfir- náttúrlega vizku. “Vantrúarmenn virðast halda. að ef þeir geta sýnt að Daníel hafi ekki skrif- að bókina, heldur einhver annar, kring um árið 169, þá hafi þeir næg rök sem mæli móti guðlegum uppruna spádóms- ins. Hvað minn tilgang snertir, þá get eg eins vel gengið út frá því, aS bókin 'hafi verið rituð árið 169 f. Kr., og stendur jafnvel á sama hver skrifaði hana. “Eg ætla ekki að dvelja við hvert smá- atriði, í öðrum og sjöunda kapítula, þótt undraverð séu, það tæki marga fyrir-

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.