Stjarnan - 01.04.1932, Page 15

Stjarnan - 01.04.1932, Page 15
STJARNAN 63 Smávegis Finnland hefir aínumið áfengis bann- lögin. Nú ætlar ríkið bæði að sjá um til- búning og sölu á áfengi. Þetta er gjört í því skyni að auðga fjárhirzlu ríkisins. Akveðið er með lögum hve mikið áfengi er leyfilegt að gevrna á heimilinu. Noregur hefir slitið verslunarsamband- inu við Rússa, Soviet stjórnin heimtaði að allir milligöngumenn, sem seldu vörur þeirra i Noregi væru Rússar, en þaö er gagnstætt norskum lögum. Rússa stjórn heimtar einnig að Norðmenn kaupi jafn mikið af vörum frá Rússlandi eins og Rússar kaupi frá Noregi, og að Noregur lofi að kaupa meiri hlutann af kornvöru sinni frá Rússlandi, og einnig rússneskt áfengi. Rússnesku verslunarfulltrúarnir beiddu líka um endurnýjað lánstraust. S'tjórn Noregs gat auðvitað ekki gengið að slíkum samningum. Shanghai, sem nú er miðdepill striðs- ins milli Kína og Japana, er helzta verzl- unarborg Austur-Asíu. Borgin stendur við fljótið Whangpoo, 12 mílum ofar en þar sem það rennur í ána Jangzekiang. Borgin skiftist í tvö hverfi, hið kínverska og alþjóða hverfið. Kínverska hverfiö er umkringt af 24 feta háum múr. Þar eru mjó og óhrein stræti og lág timburhús. Al- þjóða hverfi borgarinnar er aftur skift í tvent. Frakkar hafa annan hlutann, en ýmsar aðrar þjóðir hinn partinn. í al- þjóðahverfinu eru stór verslunarhús og skrautleg íbúðarhús, alt er þar upplýst með gasi og rafmagni. Shanghai stendur ekki Chicago langt að baki með fólks- fjölda, því þar búa um 3,000,000 manna. Nálægt helmingur íbúanna er í alþjóða hverfinu, Kínverjar vilja miklu heldur búa í þeim hluta borgarinnar. Hér um bil 2/5 af allri utanríkis verzlun Kína- veldis er rekinn í Shanghai. STJARNAN kemur út mánaðarlega Útgefendur: The Western Canadian Union Coníerence S.D.A. Stjarnan kost- ar $1.50 um árið i Canada, Bandaríkj- unum og á Islandi. (Borgist fyrirfram). Ritstjóri og ráösmaöur: DAVIÐ GUÐBRANDSSON. Skrifstofa: 306 Sherbrooke St., Winnipeg, Man. Phone: 31 708 ______________________________________ Formaðurinn á innflytjenda skrifstofu Bandaríkjanna, W. N. Doak hefir gefið skýrslu um að 511 útlendingar, sem fram- ið hafi glæpi og verið settir í fangelsi, hafi verið sendir heim aftur til ættjarð- ar sinnar, samkvæmt núverandi lögum lándsins. Auk þessarar voru 18,000 aðr- ir sendir heim, margir þeirra að líkindum meiri parturinn, fyrir það að þeir komu inn í landið í leyfisleysi. Aðrir fyrir það að þeir réðust á og níddu niður þjóð- stofnanir landsins, og nokkrir voru sendir heim af því þeir voru landinu til byrði. Stundum hefir líka komið fyrir, að þeir sem voru löglega búsettir í landinu en voru atvinnulausir, fengu leyfi til að fara heim á kostnað stjórnarinnar, þetta er mannkærleiksverk af hálfu stjórnarinn- ar og hafa margir fært sér það í nyt. í amerisku blaði einu er sagt frá þvi að menn hafi grafið niður i rústir Só- dómu og Gómorru og fundið sannanir fyrir frásögnum Biblíunnar um eyðilegg- ingu þessara borga. Stórt svæði af rúst- um, sem liggur skamt fyrir austan Jórdan og fyrir norðan Dauðahafið hefir verið grafið upp, og grundvöllur allra húsanna þar er þakinn ösku, þetta sýnir að borg- irnar hafa eyðilagst ef eldi. í steinvasa einum fanst beinagrind af hér um bil sex ára gömlum dreng, sem að líkindum hefir verið fórnað til skurðgoðanna.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.