Stjarnan - 01.09.1932, Side 4
132
STJARNAS
innar þar til upprisudagurinn rennur upp.
Jóh. 11.11-14. og 1. Kor. 13:51-54. Þeg-
ar Jesús opinberast þá raunum vér einnig
með honum í dýrð opinbérast. Kol. 3:4.
Þetta er kenning Biblíunnar viðvíkjandi
hinum burtsofnuðu, en menn hafa rang-
fært Guðs orð og haidið því fram að
Biblían segi það, sem hún segir ekki.
Jesús færði mönnum huggun og von, en
hann iofaði þeim ekki að þeir skyldu fara
til himins strax er þeir dæu. Takið eftir
hvað hann segir:
“Hjarta yðar skelfist ekki, trúið á Guð
og trúið á mig. í húsi föður míns eru
mörg hýbýli, væri ekki svo mundi eg þá
hafa sagt yður að eg færi burt að búa
yður stað. Og þegar eg er farinn burt og
hefi búið yður stað, kem eg aftur og mun
taka yður til mín, til þess að þér séuð
þar sem eg er.” Jóh. 14:1-3.
Hversvegna kom Jesús í heiminn til að
líða og deyja fyrir synduga menn? Ein-
mitt vegna þess hann vildi leiða fólk sitt
heim til sín. En ef hver einstaklingur
færi heim til hans þegar hann dæi, þá
hefði engin ástæða verið fyrir hann, að
segja, að hann mundi koma aftur til að
taka þá til sín. Hin dýrðlegasta von Guðs
barna er, og hefir verið þessi, að Jesús
kemur aftur. Þetta er umtalsefni allra
spámanna og postula, sem skrifað hafa
Ritninguna. Vinir mínir, huggið hina
sorgmæddu með þeirri blessuðu von að
Jesús kemur til að samansafna sínum út-
völdu. “Og Guð mun þerra livert tár af
augum þeirra, dauðinn mun ekki framar
til vera . , . því hið fyrra er farið.”
Opinb. 21:4.
Nýi sáttmálinn
(Framh. frá bls. 130)
leggja boðorð hans til hliðar, þrátt fyrir
það þó Jesús hafi sagt: “Ætlið ekki að
eg sé kominn til að niðurbrjótá lögmálið
eða spámennina; eg er ekki kominn til
þess að niðurbrjóta, heldur til þess að
uppfylla.” Matt. 5:17-
Sá sáttmáli, sem Guö gerir við fólk sitt,
er að frelsa það frá synd og yfirtroðslu,
fyrir forþénustu Krists. “Hann mun
frelsa lýð sinn frá syndum þeirra.” Matt.
1:21. “En ef þér tilheyrið Kristi þá eruð
þér niðjar Abrahams, erfingjar eftir fyr-
irheiti.” Gal. 3 -.29.
Loforðið var gefið Israel, og vér, af-
komendur heiðingjanna öðlumst hlut í
því, einungis með því að gerast Guðs
börn fyrir trúna á Krist, sem gaf sig
sjálfan fyrir vorar syndir, svo vér mætt-
um öðlast þessi dýrðlegu réttindi.
Kæri lesari, leyfðu Guði að gera þenn-
an sáttmála við þig, að taka burtu syndir
þínar, svo þú, ásamt öllum trúuðum, get-
ir öðlast hluttekning í öllum hans dýr-
mætu fyrirheitum.—W.A.
Hindúar
Margir af lægri stéttar mönnum meðal
Hindúa hafa veitt fagnaðarerindinu við-
töku, en það hefir verið mjög erfitt að
vinna fyrir hærri stéttar menn. Útbreiðsla
kristilegra rita, er hið bezta meðal til að
ná athygli þeirra.
Bóksalar vorir fara hús úr húsi, þorp
úr þorpi yfir hinar brennheitu sléttur
Indlands og skógarbelti Burma. Þeir
ferðast alla leið frá hinum gnæfandi
Himalaya f jöllum að norðan til Comorin
höfða suður frá, og útbreiða gleSiboð-
skapinn þar á f jórtán tungumálum.
Lærður Hindúi sagði við einn af bóka-
sölumönnum vorum: “Bókin þín hefir
unnið mér ómetanlegt gagn, hún hefir
hjálpað mér til að sigrast á vondum vana,
sem hefir haldið mér þrælbundnum í 25
ár.”
Bækur þessar og blöð hjálpa lika unga
f ólkinu á Indlandi til að verða sjálfstætt
og óháð. Margir nemendur í skólum vor-
um nota sumarfríið til að selja bækur.
Árið 1930 voru 50 ungir menn meðal
nemendanna, sem höfðu á þenna hátt unn-
ið sér inn, sumir alt, aðrir nokkuð af því,
sem þeir þurfu til að kosta sig á skólann
yfir veturinn. —L. C. Shepard.