Stjarnan - 01.09.1932, Blaðsíða 10

Stjarnan - 01.09.1932, Blaðsíða 10
138 STJARNAN Litla þorpið Greenacre var orðið víS- frægt. Hin hljómfagra söngrödd O'live Shannasse hafÖi komiÖ því til leiðar. Hún var dóttir Mrs. Bacon, hvithærÖu, blindu konunnar, sem bjó í litla húsinu rétt hjá brúnni. íbúar hússins höfðu lengi notiÖ ánægjunnar af aÖ heyra hina hljómfögru rödd söngmærinnar, áöur en umheimur- inn svo mikið sem vissi að hún var til. Nú var söngfuglinn hljóður. Mrs. Shannasse sat á veranda móður sinnar allan daginn, söngur var hvorki í hjarta hennar né á vöruunum. Hún hafði ekki sungið eina einustu hendingu síðan slysið vildi til, sem svifti lífinu bæði mann henn- ar og kornunga dóttur. Nú voru liðnir sex mánuðir síðan. Það kom alt fyrir á svipstundu. Þau voru öll glöð og hamingjusöm þegar þau keyrðu niður f jallshlíðina, en á næsta augnabliki voru þau niðri á gjáarbotni undir brotnum bíl og öðru rusli. Það var kraftaverki næst að Mrs. Shannasse komst lífs af. Hún var marin og lömuð en hafði þó meðvitund, svo hún horfðt á meðan menn voru að reyna að bjarga þeim sem í bílnum höfðu verið. Einii af björgunar mönnunum hafði af með- aumkvun lagt kápu sína yfir lík Gloriettu, litlu dóttur Mrs. Shannasse, en það var of seint, því móðirin hafði komið auga á hinn kramda líkama hennar. Fleiri læknar frá stórborgunum höfðu reynt að hjálpa Mrs. Shannasse alt sum- ariö, en árangurslaust, þeir sögðu að það væri vonlaust með hana. Þjónar voru sendir frá New York til að hjálpa henni, en hún sendi þá jafnharðan burtu aftur. Hún þoldi ekki að hafa neinn í kring um sig nema móður sína. Læknarnir sögðu að hún yrði að fá að hafa alt eins og hún vildi, ef hún ætti nokkurntíma að ná sér eftir þunglyndi það sem ásótti hana eftir að slvsið vildi til. Fjöldi aðdáenda og annara ferðamanna, sem af einni eða annari ástæðu óskuðu aö sjá Mrs. Shannasse, heimsótti þorpið, svo menn urðu að koma upp veitingahúsi. Timburfélagið sem í rauninni hafði ekki fleiri meðlimi heldur en tvo, Jonah Biggs og Magðalenu Passebois, tók sér fyrir hendur að reisa veitingahús. Það var gamalt bóndabýli sem þau dubbuðu upp og bygðu nokkur herbergi í viðbót, svo plöntuðu þau indælan blómgarð um- hverfis og höfðu kassa með blómum í fyrir utan hvern einasta glugga. Frétt- irnar sögðu að einn piltur hefði nóg að gera allan daginn að líta eftir blómunum og vökva þau. Magðalena elskaði blóm. Mrs. Shannasse gaf engan gaum að öllum þeim blómum sem henni voru færð. Magðalena valdi ætíð ilmríkustu blómin handa henni, til þess að móðir hennar, þó blind væri, gæti notið nokkurrar ánægju af þeim. “Eg held hún ætli að svelta sig í hel,” sagði Mrs. Bacon við Tobía Fish, stöðvar- stjórann, þegar hann kom að heimsækja þær. “Má eg fara og tala við Olive augna- blik?” spurði hann hikandi. “Sem þér sýnist Tobías, en þú færð hana ekki til að tala við þig. Hún er orS- in viti sínu fjær af sorg, og eg veit ekki hvað nokkurntíma getur hjálpað henni,” sagði gamla konan og brá svuntunni fyrir blindu augun sín. “Manstu þegar kýrin hans pabba þíns féll fram af kletta-snösinni, Olive, og braut annan framfótinn? Manstu hvern- ig við fengum okkur spýtur og settum

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.