Stjarnan - 01.09.1932, Page 15
STJARNAN
143
Vér erum endurleystir, ekki með for-
gengilegu gulli né silfri, heldur með dýr-
mætu blótSi hins lýtalausa Lambs, Krists.
hann elskaði oss svo heitt a8 hann gaf líf
sitt til lausnargjalds fyrir oss.
Kæri lesari, hefir þú kosið að vera hans
um tíma og eilífð ?
Ný tegund af þýzkum slökkvivélum
stökkur dufti yfir eldinn í staS vatns.
Vélin er mjög stór og hefir tvær pípur að
framan, sem þeyta slökkviduftinu með
miklum krafti. Þessi slökkvi aðferð hef-
ir þá yfirburði að duftið. skemmir ekki
ýmsar vörur, sem vatnið myndi eyði-
!eggja.
Krakkland hefir hið stærsta neðansjáv-
arskip sem til er í heiminum. Það heitir
“Surceuf” og var fullgert 1930. Lengd
skipsins er 400 fet, og þyng 3,500 tonn,
eða 1,000 tonnum þyngra en stærsti neð-
ansjávarbátur Bandaríkjanna.
Ræstunarfélag eitt safnar um 1,000
smálestum af tin könnum á mánuði hverj-
um í Los Angeles. Tin könnur þessar
eru pressaðar, bundnar í bagga og seldar
til ágóða fyrir félagið.
Flest þorp í Bandaríkjunum með 1,000
íbúa eSa þar yfir, hafa fleiri gasólín
stöðvar heldur en þörfin krefur.
Hoover forseti hefir nú staðfest lög
sem ákveða glæpa hegningu fyrir að senda
bréf með pósti, sem heimta lausnargjald,
eða hóta því að nema fólk i burtu, hvert
heldur börn eða fullorðna.
Tekjurnar fyrir árið 1931 féllu mikið
í öllum ríkjum Bandaríkjanna nema einu.
Tekjurnar í Virginia, í stað þess að falla,
jukust um $1,500,000.
Hvít reiðhjól eru nú notuð í Dantnörku.
Þau sjást betur í dimmu.
STJARNAN
kemur út mánaðarlega
Útgefendur: The Canadlan Union Con-
ferenee, S.D.A., 209 Birks Building,
Winnipeg, Man. Stjarnan kostar $1.50
& ári í Canada, Bandaríkjunum og ís-
landi. Borgist fyrirfram.
Ritstjóri:
DAVIÐ GUÐBRANDSSON.
AfgreiSsl-u Jcona:
MISS S. JOHNSON,
Lundar, Man.
Læknar og sjúkrahús draga mikið fé
frá fólki í Bandaríkjunum. Þótt lofts-
lagið sé heilnæmt þá koma yfir 200,-
000,000 sjúkdóms tilfelli á ári hverju.
Tveir af hundraði eru ávalt á sóttar-
sænginni. Að meðaltali veikist hver mað-
ur tvisvar á ári. Verkamenn tapa 250,-
000,000 vinnudögum eða $1,125,000,000
á ári vegna veikinda. Sjúkrahús kostnað-
urinn, sem nemur $3,000,000,000 árlega,
fellur þyngst á miðstéttirnar, þeir sem
fátækastir eru fá ókeypis hjálp, en hinir
ríku eiga hægt með að borga reikninga
sína.
Keyrslumenn, sem fyrir nokkru síðan
voru á leið til New Jersey til Manhattan.
blésu horn sín óþolinmóðlega til að fá
bíl, sem keyrði aðeins með 20 mílna
hraða til þess að víkja úr vegi. Þeir
litu viS til að láta gremju sína í ljósi, sáu
í bílnum gamlan mann vafinn ábreiðum,
þótt hitinn væri 88 stig. Hann hafði
líka dökk gleraugu og eyrnaskjól. Mað-
urinn var J. D. Rockefeller hinn eldri.
:Hann var á leið til Pbcantice-hæðanna í
New York til að halda hátíðlegan 93.
fæðingardag sinn. Þetta var fyrsta ferð
hans gegnum jarðgöngin, sem eru 9,250
fet á lengd. Hann var hræddur um að
loftþrýstingurinn myndi skemma hljóð-
himnuna, og þess vegna hafði hann fyrir
eyrunum.