Alþýðublaðið - 05.03.1925, Page 3
Q í'íSí-f’
ALÞYSOBCA'&IÐ
gamli málahátturinn réttilega aeglr.
Yerkalýðurinn gefur í þeim til-
gangi að gleðja aðra og gleðat
jafnframt sjálfur af því aö geta
létt annara byrði.
>Yor-fjársöfnunin« fer fram í
marzmánuði í ár, en heflr undan
farin ár hafist 4 apríl.
>Geflð, og yður mun gefastt
(Jesú*).
Virðingarfylst;
Kristian Johnsen,
flokksötjóri Hjalpræðishersins
í Reykjavík.
Upphrðpnn
eftir búanda iir Strandasýslu.
Málóði, ósannsögull og einfaldur
fýkur danski leppurinn um Sódóma
þsssa lands; lendir ein tuskan á
staur, sem óg stend hjá, og breiðir
þar út blygðun sína; getur þai1)
að lita lygar um þingmann vorn
og skammir, en ekki mun það
áhrif hafa.
Vór Strandamenn trúum betur
hinum margofsótta brautryðjanda
jafnaðarstefnunnar, herra Ólafl
Frlðrikssyni, og þingmanni vorum
fyrir vandamálum þjóðarinnar
en dönskum og dansklunduðum
>Morgunblaðs<'hróptungum.
Þingmaður vor vill ekki láta
slátra alþýðufólki nó embættlinga-
rít; þess vegna mælir hann dj .rít
á móti hernaðarfrumvarpinu; fyrir
þetta fær Tr, R. óskiftar þakkir
allra kjósenda sinna og allra lands-
manna, sem óbrjálaðir eru; vel
só og þingmanni vorum, og mætti
hann frainvegis taka sór til fyrir-
myndar herra Ólaf Friðriksson, því
að þann mann hefi ég sjálfur heyrt
bezt allra manna tala máli ís-
lenzkrar alþýðu bæði til sjávar og
sveita, og verður hann á þing að
komast, áður langt líður.
Vér St.randamenn horfum ekki
í það, þótt auðmannaknó hoknist,
skjálfl þyktin og riði hnappurinn.
1) Sjá „Mgbl.“ 1, marz.
Mæitarlffikntf’ #r í nótt Danfel
Fj-údáted Laugavegl 38. Siml
1561.
Hvatvís þingmaður,
Við upphaf umr. um >vara-
lögregluc talsði J. M. svo spaugi-
lega gætilega um málið, að áheyr-
endur á pöllunum gátu ebki var-
ist hlátri. Vindur þá þingmaður
Akureyringa, Björn Líndal, sór að
ritstjóra Alþýðublaðsins, sem sat
í dyrum blaðamannaherbergisins,
fnæsir og segir: >Hvernig þykir
yður þeir hegða sór, sem þér haflð
3ent þarna upp?< en hann beið
ekki eftir Bvari. Þetta er fyrstu
persónuleg kynni ritstj. Alþýðu-
blaðsins af þingmanni þessum.
í fyrra dag skýrði Jakob Möller
frá því, að einn íhaldsþingmaður
hefði sagt um varalögreglufrum-
varpið, að það væri eins og það
væri samið af vitlausum manni.
Björn Llndal biður Jakob að nefna
manninn. Jakob kveðst munu segja
honum nafnið einslega. >Það hefir
þá ekki verið ég<, segir Björn. Al-
mennur hlátur dynur um alt
þinghúsið.
Veslings Akureyri!
Innlend tíðindi.
(Frá fréttastoíunnl.)
Akureyri, 3. marz.
Brnni á Siglnfirði.
í gær um nónbilið brann íbúðar-
hús Hinriks. Thorarensens læknis
á Siglufirði ásamt prentsmiðju, er
var í útbyggingu. Innanstokks-
munir brunnu nær allir, lyf, læknis
áhðld, prentáhöld öll og því nær
fuilprentuð lækningabók ásamt
handriti Kviknaði út frá ofni í
íbúðinni. Húsið er eign Lands-
bankans. Innanstokksmunir voru
vátrygðir og húsið og prentáhöld
eitthvað lltillega, en annað ekki.
Verður Hinrik Thorarensen fyrir
stórtjóni.
ísaflrði, 3. marz.
Jarðarför séra Þorvalds Jóns-
sonar fór hór fram í gær að við
stöddu miklu fjölmenni.
Seyðiafirði, 3. marz.
Hingað komu í morgun tvö
brezk herskip, Harebell og Godetia,
I
Var ofsarok á höfninni, og fóru
þau út aftur. en búist er við, að
þau komi inn aftur, er lægir, og
taki þá kol og vistir. Síldveiði er
öðru hvoru hór í lagnet, þegar
góðviðri er. í Horaafirði var fyrsti
róður á föstudaginn, 3 — 5 skpd.,
siðan hæst 8 skippund í dag 2
til 8. Fiskur er afargrunt og útlit
um fiskafla ágætt, verði gæftir.
Loðnuveiði var mikil í firðinum
fyrir helgina. Á Djúpavogi var
einnig róið, en afli minni þar.
Vólbátar eru að smábætast við í
þessar verstöðvar. Veðráttan sífelt
óstöðug.
Fangar í Ungverjalandi.
>Nopszavá<, málgágn jafnaðar-
manoa í Ungverjalandi, skýrlr
frá því, að f ársfok 1924 hafi
verið 10386 fangar 4 Ungverja-
landi og meiri hlutinn stjórn-
mála->sakamenn<. Árið 1914
voru fangsrnir 12000, en íbúa-
tala landslns var þá 20 milljónir
móti nm 8 milljónum nú.
Fyrir það að benda á þá stað-
reynd, að elnn fangi kæmi á
hverja 768 íbúa, var >Nepszavá<
gert upptækt og bannað og gefið
að sök, að með þessu heiði
blaðið >skaðað álit landsins<.
I Ungverjalandi er >hvít ógn-
arstjórn<, þ. e, otbeídlsstjórn auð-
vaídsins með >ríkislögregiu< og
öllu þar tll heyracdi.
Erlend síiskejtL
Khöfn, 2. marz.
Jarðarfer Brantings.
Frá Stokkhóimi er símað, að
jarðarför Brantings hefði farið
fram á sunnudaglnn. Áttatíu
þúsundir rnánna fylgdu líki hans
tll grafar. Jarðarförin var ein-
hver hin mlkiifenglegasta, sem
séat hefir á Norðurlöndum, og
var þvf Hkast, sem konungur
væri til grafar borlnn: Eitt
hundrað og tíu manna hljóm-
sveit og 500 fánaberar gengu í
broddl sorgariylkingarinnar. Sorg-
arhátíðin fór fram írá kl. 2 — 7.