Stjarnan - 01.11.1935, Qupperneq 6

Stjarnan - 01.11.1935, Qupperneq 6
94 STJARNAN Cynthia var svo barnslega áhugasöm. “Eg ætla aÖ láta utan um hana svo þaÖ snjói ekki á hana.” Kenneth brosti glaÖlega. Þakklætishátíðin var ánægjuleg eftir alt saman. Hann hnepti vandlega að sér slitnu kápunni sinni og tók skorpusteikina yfir. Þegar hann komst áfram hringdi hann dyrabjöllunni, og Rósa litla kom til dyranna. “Gjörðu svo vel að koma inn Mr. Pratt, eg skal kalla á mömmu,” sagði litla stúlkan. Kenneth gekk inn og honum fanst til um hve fátæklegt var þar inni. Hann og Cynthia voru rík í samanburði við þetta fólk. Ekki svo mik_ ið sem stóll var í litla herberginu, engin teppi á gólfinu og engar myndir á veggjunum. “Góðan daginn, Mr. Pratt. Hvernig líður ykkur? Að þú skulir koma yfir í þessum snjó, ósköp varstu vænn.” Það var enginn efi á því að Mrs. Dennis var glöð yfir heimsókninni. Kenneth sagði frá erindi sínu og afhenti skorpusteikina; hann sagði að þau hefði langað til að nota þakklætishátíðar forskriftina líka. J “Guð blessi þig, sonur, Guð blessi þig,” svaraði ekkjan og augu hennar fyltust tárum. “Þú vekur hjá mér löngun til að nota forskrift- ina líka. Rósa litla, komdu. Taktu smákök- urnar, sem við ætluðum að geyma til morguns, vefðu þær innan í hreinan pappír og farðu með þær til móðurlaúsu litlu Sally, sem býr hjá gömlu Miss Beetle. Fyrirgefðu Mr. Pratt, að eg greip fram í fyrir þér. Heilsaðu elskulegu litlu konunni þinni frá mér og segðu henni að ekki skuli verða moli eftir skilinn af skorpu- steikinni hennar.” “Jú, mamma,” æpti litli Jake, kryplingur- inn, þar sem hann lá á bedda úti í horni. “Eg ætla að geyma nokkuð af því sem eg fæ og gefa litlu fuglunum það á þakklætishátíðinni.” •? R. H. Hugsið eftir því Dagarnir eru farnir að styttast, bráðum koma jólin, svo fer daginn að lengja aftur, og þá getum við farið að hlakka til vorsins. En hvað er að hlakka til eins og útlitið er í heim- inum nú? Þeir, sem þekkja Guðs orð, trúa því og hlýða, hafa sérstaka ástæðu til að gleðj_ ast yfir því að lausnarstund þeirra er í nánd. Jesús lýsti mjög berlega ástandi því er verða mundi í heiminum rétt áður en hann kemur aftur er hann segir: “Ein þjóð mun rísa upp gegn annari, og eitt ríki gegn öðru. Þá munu á ýmsum stöðum verða miklir landskjálftar, hallæri og drepsóttir, þá munu sjást ógurlegir fyrirburðir og tákn mikil á himnum . . . . sjór og haf mun þá þjóta, menn munu þá deyja af angistarfullri eftirvæntingu þess, er yfir allan heiminn mun koma, því kraftar himnana munu hrærast. Og þá munu menn sjá mannsins son komandi á skýjunum með makt og mikilli dýrð.” Lúk. 21 :io, 11, 26, 27. Svo bætir Jesús við þessari setningu, sem hrekur allan ótta og kvíða burt f rá Guðs sönnu börnum: “En þegar þetta tekur til að koma fram, þá lítið upp og upphefjið yðar höfuð, því að lausn yðar er í nánd.” 28. vers. Vantrúaðir menn, engu síður en hinir trú- uðu, sjá að núverandi ástand heimsins er slíkt, að til vandræða horfir. Góðir menn hafa gjört sitt bezta til að stilla til friðar og hindra stríð milli þjóðanna, en enginn mannlegur kraftur megnar að greiða flækjuna, eða bæta úr böli heimsins. Fjöldi manna býst við endi siðmenn- ingarinnar og endi heimsins, sem afleiðing af næsta stríði. Menn í ýmsum kirkjudeildum kannast við og prédika bráða endurkomu Krists. Það er lífsnauðsyn að vita að Jesús kemur bráðum en samtímis þurfum vér að minnast þess að hinar fávísu meyjar, sem Jesús talar um í dæmisögunni í Matt. 25. kap. Þær væntu líka brúðgumans og meira að segja, þær fóru út til að mæta honum, en þrátt fyrir það voru þær ekki viðbúnar að ganga inn með hon- um til brúðkaupsins. Til þess að geta fagnað Jesú þegar hann * kemur í dýrð sinni, þá þurfum vér hér að fá '* syndir vorar fyrirgefnar fyrir sanna iðrun og lifandi trú á Krist. Vér þurfum að öðlast kraft hans til að lifa hér, og nú í samræmi við Guðs heilaga vilja, hans óuinbreytanlega lögmál, því Jesús segir oss berlega, að “Ekki rnunu allir þeir, sem til mín segja, herra herra, koma í himnaríki, heldur þeir einir, sem gjöra vilja míns himneska föður.” Ert þú viðbúinn að mæta Jesú? Gjörir þú vilja föðursins? Heldur þú Guðs heilaga hvíldardag? Porðast þú að leggja Guðs nafn við hégóma? Leitast þú við í öllum greinum að laga líf þitt eftir Guðs boðorðum og dæmi frelsara vors Jesú Krists? Sælir eru þeir sem það gjöra. S. Johnson.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.