Stjarnan - 01.11.1935, Side 8

Stjarnan - 01.11.1935, Side 8
96 STJARNAN saman höndunum af gleÖi og sagÖi: “Mamma, GuÖ skar ekki sneiÖ af handa okkur, hann sendi heilt brauð.” E. S. STJARNAN Stjarna himins brosir blítt Björt um dimmar nætur, Til vor allra talar hýtt Tign GuÖ-s skína lætur. Allra heima herra trúr Hörmum vorum léttir; Náðarinnar nægtabúr Nærir allar stéttir. M. Ingimarsson. Smávegis Bandaríkjastjórnin eyðir 29 miljón dollur- um á dag. Skamt frá Mont Blanc í Alpafjöllunum stendur hin hæsta myndastytta sem til er í Evrópu. Það er Kristsmynd 86 fet á hæð. Hún var fullgjör fyrir nokkrum mánuðum síð_ an. í Topeka, Kansas er skemtigarður með 15,000 rósarunnum, sem tekur yfir níu ekrur af landi. Hann er vel uppljómaður með ljós- um og er opinn fyrir almenning bæði nótt og dag. í öllum garðinu er aðeins eitt skilti eða auglýsing. Hún er höggvin í stein yfir inn- ganginum og hljóðar þannig: “Þeir ráðvöndu þurfa engan eftirlitsmann.” Sagt er að 309 manns hafi beðið bana af bílslysum í sambandi við hátíðahaldið verka- mannadaginn 2. september. Þar af voru 41 í Californíu, 24 í Nevv York, 21 í Ulinois, 20 í Pennsylvaniu, 16 í Missouri og O'hio og 15 í Michigan, og svo hér og þar annarsstaðar. Þrír fjórðu hlutar af öllum bréfum, sem send eru með pósti í heiminum nú á dögurn eru rituð á ensku. Nálægt því 191 miljón manna tala nú ensku sem sitt eigið mál. Árið 1933 framleiddu bændur í Bandaríkj unum 102,308,000,000 pund af mjólk, en árið 1934 aðeins 98,949,000,000 pund. Samkvæmt núverandi verði á mjólk, þá er þetta 58,400,- STJARNAN kemur út einu sinni á mán- uði. Verð: $1.00 á ári. Borgist fyrirfram. Útgefetidur: The Canadian Union Con- ference of S.D.A., 209 Birks Bldg. Wpeg. Ritstjórn og afgrciðslu annast MISS S. JOHNSON, Lundar, Man., Can. 000 dollara tap fyrir framleiðendurna, án þess nokkuð tillit sé tekið til þess hve mikið smjör- gjörðarhús og aðrir milligöngumenn tapa. B:rúin í dalnum Jasgone, nálægt Kashmir á Indlandi er búin til úr aðeins þremur köðlum. Þeir eru fléttaðir úr hazelgreinum, og eru fest- ir við digra stólpa, sem standa sinn hvoru meg- in við ána. Einn kaðallinn er til að ganga á honum en hinir til að halda í sinn með hvorri hendi. Þeir, sem haldið er í, eru um 4 fetum hærra uppi heldur en sá, sem gengið er á. Þessum þrem köðlum er fest saman með 6 feta millibili, með greinum, sem eru eins og V í laginu. Brú þessi er ótrúlega traust þótt hún sýnist svo lítilf jörleg. Blaðið “Times” í New York getur þess að nýlega hafi fundist á skjalasafni í Lundúnum samningur einn, sem settur var til sýnis á brezka forngripasafnið. Samningur þessi ber það með sér að John Batman fékk 600,000 ekrur af landi, það sem nú er ríkið Victoria, hjá frumbyggjum suðaustur Ástralíu, fyrir dá_ lítið af vörum. Það sem hann borgaði fyrir landið var 20 pör af teppum, 30 axir, 100 hnífar, 50 skæri, 200 vasaklútar, 100 pund af mjöli og 6 skyrtur. Kjölurinn hefir nú verið festur i sex hundraðasta neðansjáfarbátinn hjá Rússum, og þeir hafa pantað 10 í viðbót. Kínverska stjórnin óttast ræningja svo hún vill fá lánað herskip til að flytja hin dýrmætu listaverk sín á til Englands. Þar á að halda sýningu á þeim. Stærsti flutningsvagn heimsins er 65 fet á lengd, og rennur á 18 hjólum. 1 honum er skápur fyrir leirtau og baðherbergi. Hann ferðast milli Damascus á Sýrlandi og Bagdad í Iraq.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.