Stjarnan - 01.04.1936, Side 4
28
STJARNAN
trúa því að aðeins einu sinni gjöri engan skaða.
Alt í gegnum aldirnar hefir honum lánast aÖ
veiða menn og konur í þessa gildru. MeÖ
aðeins einni synd leiddu Adam og Eva eymd <>%
dauða yfir mannkynið. Synd þeirra virðist
mjög lítilfjörleg þangað til vér athugum hinar
voðalegu afleiðingar hennar.
Móses gaf eftir fyrir freistingu einu sinni,
þegar hann sló klettinn í Kedesh, en það hindr.
aði hann frá inngöngu inn í fyrirheitna lándið.
Júdas lét peningafíknina tfá yfirhönd yfir sér
og misti þar með vonina um eilift líf. Guðs
orð gefur mörg dæmi sem sýna hve voðalegar
afleiðingar það hefir að láta leiðast afvega
aðeins einu sinni. “Enginn sannleikur'er skýr-
ar framsettur en sá, hvílík hætta það er að víkja
eitt einasta skifti frá því sem rétt er, hætta,
bæði fyrir þann, sem syndin drýgir, og fyrir
alla, sem verða fyrir áhrilfum hans.” Ættu ekki
J)essi dæmi að vera nóg aðvörun fyrir oss? Get-
ur oss ekki skilist að það borgar sig aldrei að
drýgja synd vísvitandi, ekki eitt einasta skifti.
Það er alt of mikið átt á hættu.
Þess er getið í Ritningunni að borg ein var
svo spilt, að Guð ætlaði að eyðileggja hana. 1
þeirri borg var ein fjölskylda em þjónaði Guði.
Englar voru sendir til að vara Lot við hættunni,
og bjóða honum og fólki hans að flýja til að
forða lífi sínu. En þau áttu svo mikið í borg-
inni, vini, fé og fallegt heimili. Englarnir urðu
að leiða þau út fyrir borgina, svo skipuðu þeir
þeim að flýta sér og líta ekki til baka, svo þau
eyðilegust ekki.
Þau héldu áífram ferð sinni, mjög á móti
vilja sínum. Kona Eots fór að hugsa um heim-
ili sitt og vini, en sérstaklega um börnin, sem
ekki vildu koma. Það var þungur gangur. Hún
var freistað, svo tók hún ákvörðun sína. Hún
sneri sér við til þess aðeins einu sinni að sjá
það sem að baki var. Hún varð að saltstólpa.
Yfirsjón hennar virðist ekki stórkostleg.
En í Guðs augum er engin synd lítilf jörleg.
Eáir meðal vor eru freistaðir til að drýgja
stórsyndir. Það eru freistingar til smásynda,
sem fella oss. Vér reynum að þagga niður
‘samvizkuna með því að segja þetta sem um er
að ræða sé svo lítilf jörlegt og vér getum hætt
því hvenær sem vér viljum, en reynslan hefir
sýnt að menn með þessu hafa dregið sjálfa sig
á tálar oft sjálfum sér og öðrum til óbætanlegs
tjóns. Forðist því syndina eins og banvænt
eitur, eins og djölfulinn sjálfan, forðist hana
engu síður þótt hún sýnist lítilf jörleg eða sé
klædd í ginnandi búning. “Syndin er lands og
lýða tjón.”
y. i.
Framsýni
“Það er nú hægt að segja,” hreytti Ivenneth
út úr sér. “Tala um að nota vinnuna sem
grundvöll undir framtíð sína. Stundum er
vinnan svo ógeðsleg að það er ómögulegt að
hafa nokkra ánægju af henni. Vinnan mín til
dæmis . . .”
“Ilvað er vinnan þín?” greip aðkomupiltur.
inn fram í.
Kenneth roðnaði og svaraði: “Eg moka
f jósið fyrir Carson. Eg held hann sé eini mað-
urinn í þorpinu sem ennþá notar hesta. Það
eru engir úrvals hestar, bara gamlar bykkjur,
sem hann notar á götunum, svo það er ekki
liægt að verða hrifinn af þeim, þeir eru líka
ætíð úti að vinna meðan eg er að moka. Eg ek
áburðinum burtu í hjólbörum. Hvað er skemti-
legt eða upplyftandi við það, það get eg ekki
séð.”
Horace Norton þagði augnablik. “Eg
þekki rnann, sem einmitt vann þess konar
vinnu,” sagði hann svo. Hann var framsýnn.
Hann hafði sínar hugsjónir fyrir íframtiðina.
Hann hugsaði ekki um lyktina af áburðinum
eða hve lítilf j örleg vinnan var. Hann horfði
lengra fram í tímann.”
“Hvernig gat hann það?” spurði Kenneth
fyrirlitningarlega.
Horace brosti og sagði: “Þar sem þú sér að-
eins erfiða og óskemtilega vinnu, þá sá hann í
framtíðinni fallega garða og blómabeð. Hann
hafði dálítinn blett bak við húsið, og gjörði
tilraunir með að rækta hinn lélega jarðveg.
Hann fékk leyfi til að iflytja áburðinn þangað,
því eigandinn hvorki notaði hann sjálfur, né
seldi hann öðrum.”
Kenneth virtist aíveg hissa, en hann sagði
ekki orð.
“Hann las um ýmsar áburðartegundir,”
bætti Horace við, “og reyndi áhrif þeirra á
jarðyeginn. Hann sáði fræi í mismunandi
undirbúinn jarðveg og veitti árangrinum ná-
kværna eftirtekt. Hann blandaði sandi og leir