Stjarnan - 01.02.1937, Qupperneq 2

Stjarnan - 01.02.1937, Qupperneq 2
IO STJARNAN að hann sé hjá yður eilíflega, anda sannleikans, hann, sem heimurinn getur ekki tekið á móti, af því hann sér hann ekki og þekkir hann ekki heldur; þér þekkið hann af því hann dvelur hjá yður og er í yður . . . Sá, sem 'hefir mín boð- orð og heldur þau, hann er sá, sem elskar mig, en sá sem elskar mig mun verða elskaður af mínum föður, og eg mun elska hann sjálfur og birtast honum.” Jóh. 14:12-14. 21. “Sá, sem hefir mín boðorð,” meinar þann, sem hefir þekkingu á Guðs boðorðum og held- ur þau svo kostgæfilega, að hann fæst ekki til að brjóta þau, ekki einu sinni þegar það mundi sýnast hagur fyrir hann að gjöra það. “Hver sem elskar mig mun varðveita mitt orð, og faðir minn mun elska hann, og til hans rnunum við korna og gjöra okkur bústað hjá honum. Sá, sem ekki elskar mig, hann varðveitir ekki mín orð.” 23. og 24. vers. Ef það væri ómögulegt fyrir oss að halda Guðs boðorð þá værum vér öll glötuð. En Guð heíir af náð sinni gjört frelsun vora mögulega. “Af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrir trúna.” “En ölluro þeim, sem tóku við honum gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim, sem trúa á nafn hans.” Jóh. 1 :i2. Jóhannes postuli ávarpaði Guðs börn á þennan :hátt: “Börnin mín, þetta skrifa eg yður til þess að þér skulið ekki syndga.” En hvað er synd? “Hver, sem synd drýgir, drýg- ir og lagabrot og syndin er lagabrot.” En ef einhver syndgar þá þarf hann ekki að örvænta eða sleppa von sinni í Kristi. Hann þarf alls ekki að hugsa eða segja að það sé gagnslaust lengur að reyna að halda Guðs boðorð, með því mundi hann gefa sig á vald óvinarins. Satan freistar þín og reynir alt af að fá þig til að syndga, svo þegar honum hefir hepnast það, þá telur hann þér trú um að það sé þýð- ingarlaust fyrir þig að reyna að halda Guðs boðorð, þú megir alveg eins gefast upp og aug- lýsa þig sem yfirtroðslumann boðorða hans, því þú getir ekki haldið þau hvort sem er. Þetta er snara djöfulsins, semi hann notar til að veiða rnenn. í krafti Guðs og nafni hans getum vér haldið öll Guðs boðorð. “Og hans boðorð eru ekki þung.” Það veitir oss fögnuð og gleði að halda þau. . “Enda þótt einhver syngdi þá höfum vér talsmann hjá föðurnum, Jesúm Krist hinn rétt- láta, og hann er friðþæging fyrir syndir vorar, og ekki einungis fyrir vorar syndir, heldur líka fyrir syndir alls heimsins, og á því vitum vér að vér þekkjum hann, ef vér höldum boðorð hans. Sá sem segir, eg þekki hann, en heldur ekki boðorð hans er lygari, og sannleikurinn er ekki í honum. En hver sem varðveitir orð hans, í honum er sannarlega kærleikur til 'Guðs orðinn fullkominn. Af því þekkjum vér að vér erum í honum. Sá, sem segist vera stöðugur í honum, honum ber sjálfum að breyta eins og hann breytti. Þér elskaðir, það er ekki nýtt boðorð, sem eg ritaði yður, heldur garnalt boð- orð, sem þér hafið haft frá upphafi. Hið gamla boðorð er orðið sem þér heyrðuð.” I. Jóh. 2 :i-7. Guð vildi ekki leyfa óvininum neitt tæki- færi til að trufla oss, svo vér gætum ekki skilið hvaða boðorð það eru sem hann talar um. Það eru boðorðin, sem hann gaf þegar hann lagði grundvöll jarðarinnar. “Þá er morgunstjörn- urnar sungu gleðisöng allar saman og allir Guðs synir fögnuðu.” í byrjun veraldarsögunnar, áður en nokkurt fólk var til, sem nefnt var Gyðingar gaf hann boðorð sín um leið og hann skapaði heiminn. “Hið gamla boðorð er það sem þér hafið heyrt frá upphafi.” Jóhannes, hinn elskaði lærisveinn flytur hinn Guð-inn- blásna boðskap, og hann hljómar niður í gegn- um aldirnar alt til vorra tíma. Guði sé lof, vér þurfum ekki að vera í neinum efa viðvikjandi boðorðum. .hans. Þess er krafist af oss, að vér höldum Guðs boðorð, og að vér sýnum íbúurn himnanna að vér erum hlýðin börn trúföst og undirgefin Guðs stjórn. Vér getum ekki vænt þess að heimurinn, sem er undir stjórn og valdi Sat- ans, hlýði Guði eða haldi boðorð hans. Það eru aðeins tveir flokkar manna í heim- inum, þeir sem hlýða Guði og þeir, sem óhlýðn- ast honum, hinir heilögu og hinir vanheilögu. Þegar syndir vorar voru lagðar á Jesúm1 þá var hann vor vegna talinn meðal yfirtroðslumann- anna. Hann gekk í vorn stað, gekk í ábyrgð fyrir oss frammi fyrir föðurnum og öllum hin- um himnesku verum. Þegar syndir heimsins voru tilreiknaðar Jesú þá stóð hann í vorum sporum eins og hann væri syndari. Bölvunin, sem hvíldi á oss vegna syndarinnar, var lögð á hann. Vér ætturn að hugsa tim niðurlægingu Krists, hans nístandi sálarkvöl og hinn smán- arlega dauða, sem hann þoldi, því hann leið það, sem vtér höfðum verðskuldað að líða. Hann kom til jarðarinnar, Guð, íklæddur mann- legu holdi, til að mæta vorri reynslu, bæta fyrir vor brot. Með lífi sínu í mannlegu holdi í full- kominni hlýðni við Guð sýndi hann oss að manninum er mögulegt að hlýða Guði. Pétur postuli skrifar: “Náð og friður margfaldist

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.