Stjarnan - 01.12.1940, Side 5
STJARNAN
101
Mótmælandi
Skömmu eftir að Leon hafði farið lit
að selja bækur í suðurhluta Perú mætti
hann katólska prestinum í þorpinu, sem
spurði hvort hann væri mótmælandi. Leon
svaraði: “Ef mótmæli gegn óhlýðni glæp-
um og guðleysi fólksins meinar að vera
mótmælandi, þá er eg það.”
Presti geðjaðist svo vel að svari hans,
að hann bað um að fá að sjá bókina, sem
hann væri að selja. “Ný dagsbrún,” var
titill bókarinnar. Presti leist svo vel á
bókina að hann sagði: “Eg vildi að alt
mitt fólk hefði þessa bók, eg skal segja
því frá henni.” Presturinn hélt loforð sitt.
Leon seldi fjölda af bókum O'g var alstaðar
velkominn.
Svo fór hann lengra inn í landið og
kom í þorp eitt, sem nefnist Ocona. Þar
gekk honum einnig ágætlega. Borgar-
stjórinn þar varð svo hrifinn af boðskapn-
um, að hann bað um að Aðventistar stofn-
uðu skóla þar sem hann gæti sent yngri
börn sín á hann. Hann spurði sig fyrir
um skóla vora á öðrum stöðuin og sendi
svo eldri börn sín á skóla vorn í Lima.
Vér stofnuðum skóla í þessu þorpi og
annan nokkru seinna í nágrenninu, en í
árslok 1938 sendi skólastjórinn í stjórnar-
skóla þorpsins ákæru gegn oss til ein-
hverra af yfirvöldunum svo að skipun
var send út um að loka Aðventistaskól-
anum, en borgarstjórinn tók í taumana
svo hvorugum skólanum var lokað.
Árið 1939 höfðum vér 5 skóla í þessari
bygð, fólkið tekur svo vel kenningum vor-
um. Nú eru opinberar samkomur haldnar
í þessu bygðarlagi og fjöldi fólks kemur
saman til að hlusta á fagnaðarerindið.
Þannig miðar starfinu áfram. Byrjun-
in þarna var skynsamlegt og gætið svar,
sem sneri væntanlegri mótspyrnu upp í
samvinnu til að útbreiða bækur vorar, og
þannig vekja áhuga fyrir fagnaðarerind-
inu, sem mun leiða marga inn í guðs ríki.
W. G. Turner.
Réttarhaldiö
Grundvallarlögin, sem mennirnir verða
dæmdir eftir er lögmál Guðs. Hið óum-
breytanlega, heilaga, réttláta lögmál, sem
er endurskin eiginlegleika Guðs og opin-
berun hans kærleika. Allir, sem vilja
verða hluttakendur guðlegrar náttúru
verða fyrir fagnaðarerindi Krists að kom-
ast í samræmi við þessa mælisnúri rétt-
lætisins, því með henni mælir hann allar
gjörðir mannanna.
Menn verða að játa synd sína og láta
af henni. “Af lögmálinu leiðir þekking
syndar.” “Eg hefði ekki vitað af girnd-
inni, hefði ekki lögmálið sagt: Þú skalt
ekki girnast.” Róm. 3:20. og 7:7.
óteljandi englaskari stendur kringum
hásætið þegar dómurinn fer fram. Bæk-
urnar eru opnaðar og réttarhaldið byrjað.
Englarnir hafa verið vitni til framferðis
manna í orðum og verkurn. Dagur eftir
dag líður inn í eilífðina og ber með sér
skýrslu í bókum himinsins. Ef það tjald
væri dregið til hliðar, sem aðskilur hið
sýnilega og ósýnilega, svo menn gætu séð
englana skrifa niður hvert orð og verk,
sem menn verða að standa reikningsskap
af í dóminum, hversu mörg orðin mundu
þá ekki látin ótöluð og mörg verk ógjörð.
Lögmál Guðs er það, sem dæmt er
eftir, bækurnar vitna um framferði manna,
englarnir standa sem vitni kring um hásæti
Guðs. Jesús er talsmaður trúaðra. Nöfnin
í lí.fsins bók eru kölluð upp. Það sem
skráð er í bókunum er rannsakað, og engl-
arnir bera sinn vitnisburð. Hvert einasta
nafn er athugað, breytni hvers einstaks
manns er rannsökuð, alt stendur skrifað
niður. Dómarinn situr í hásæti sínu.
Sakir eru frambornar, öll góðverk eru rituð
í minnisbók Drottins.
Guð er miskunnsamur og þolinmóður,
hann vill ekki að nokkur maður glatist,
heldur að allir komist til sinnisbetrunar.
Hann tekur til greina tillögur hans, sem
talar máli heilagra, og þar er viðstaddur,
Jesús, Guðs sonur og æðsti prestur vor,
lambið sem fórnfært var, sem nú talar máli
Guðs barna. Hann er fær um að mæta öll-