Stjarnan - 01.12.1940, Blaðsíða 8

Stjarnan - 01.12.1940, Blaðsíða 8
104 STJARNAN “Ótti Drottins er upphaf vizkunnar og þekking hins heilaga sönn hyggindi.” . . . “Kenn þeim unga þann veg sem hann á að ganga og þegar hann eldist, mun hann ekki af honum beygja.” “Fel þú Drotni verk þín, þá munu ætl- anir þínar framgang fá.” “Mannsins hjarta upphugsar sinn veg, en Drottinn stýrir hans gangi.” “Sá, sem gefur gætur að orðinu hreppir hamingju, og sæll er sá, sem treystir Drotni.” Salómon. Smávegis Coca Cola er almennasti drykkurinn í Bandaríkjunum, hver flaska er aðeins 5c en salan á þessum drykk yfir árið nemur yfir 600,000,000 dollurum. -f -f -f Latvia, Estonia of Lithuanía hafa tekið upp sið Rússa 1 því að afnema titlana Mr., Mrs. og Miss, en nota í þess stað fyrir alla titilinn “borgari.” -f -f -f Bandaríkin hafa nú ánafnað 2 miljónir dollara til að setja sterkar málmplötur ofan í sjóinn eins og varnagarð fyrir framan ýmsar hafnir landsins til að hnekkja neðansjávarbátum og sprengi- bátum. -f -f -f Cairo á Egyptalandi líður af sporð- drekaplágu. Svo telst til að 50 manns séu stungnir á hverri nóttu, sumir til ólífis. Þær nætur, sem menn þurfa að haldast við í neðanjarðarskýlum til varnar fyrir flugvélasprengjum, verða tvöfalt fleiri stungnir. Sérstök hjúkrunarstöð hefir verið sett upp til að hjálpa slíkum sjúkl- ingum. -f -f -f F'yrsta skifti í sögu Bandaríkjanna hef- ir nú tala stjórnarþjóna stigið yfir eina miljón. Frá júní 1939 til júní 1940 hefir þeim fjölgað um 82 hundruðustu mest- megnis til landvarnar. -f -f -f Vínbruggarar í Þýzkalandi eru farnir að undrast yfir hve lengi þeir muni geta haldið áfram með hið æfa gamla starf sitt að framleiða áfengi, því bæði herstjórnin og heilbrigðisstjórnin í því landi heimta SJ'JARNAN kemur út einu sinni á mán- uði. Verð: $i.oo á ári. Borgist fyrirfram. Publishers: The Canadian Union Con- ference of S. D. A., Oshawa, Ont. Ritstjórn og afgreiðslu annast Miss S. JOHNSON, Lundar, Man., Can. óáfengan drykk fyrir þjóðina í stað hins almenna öls. Áfengislausir drykkir hafa i mörg ár verið ráðlagðir af heilbrgiðis- nefnd þjóðarinnar en nú hefir þessi stefna einnig stuðning hersins. unglingafélaganna. og Dr. Robert Ley, sem er formaður verka- mannastéttarinnar. -f -f -f Þegar Dr. Popenov fékk að vita. að helmingur þeirra hjóna, sem giftust í Los Angeles heimtuðu skilnað, þá hélt hann að tími væri til kominn að vísindin tækju í taumana. Svo árið 1930 setti hann á fót stofnun fyrir heimilislífið til að kenna trúlofuðu fólki og benda því á hvers það mætti vænta í hjúskaparstöðunni. Nú eftir að hafa leiðbeint % miljón manns, segir hann að ekki ein einustu hjón af þeim hafi heimtað skilnað. -f -f -f Það er áætlað að um 100,000 skippund af ónýtum jarðyrkjuverkfærum sé á víð og dreif á enskum búgörðum. Bændur, sem safna því saman og flytjá á tiltekna staði geta fengið 10 dollara fyrir skippundið af þessu járnrusli. -f -f -f Pappírsumslög á Bretlandi eru nú not- uð aftur og aftur þar til þau verða útslitin. Menn líma pappírsmiða yfir utanáskrift- ina og geta þannig notað sama umslagið aftur. -f -f -f Norsk bréf, sein send erú til Ameríku eru stundum send yfir Petsamo með finsk- um skipum, sem ferðast þaðan til New York. Það er einnig hægt að senda þau með járnbraut og flugskipum yfir Frakk- land til Portúgal og þaðan með skipi yfir Atlantshafið. Öll bréf til útlanda verður að afhenda opin á norsku pósthúsin, það- an eru þau send til þýzkra eftirlitsmanna. Ekki má skrifa neitt nema prívat eða per- sónulegs efnis. ,

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.