Stjarnan - 01.02.1942, Page 3
S TJA RNA N
11
því að afnema Guðs lögmál 3. Að Guð
í mannlegu holidi tæki á sig sök mannsins
og liði dauðann í hans stað.
Guð gat ekki afnumið lögmál sitt, það
hefði kollvarpað stjórn hans, en Guð elsk-
aði svo heiminn að hann gat ekki leyft
að hann iglataðist fyrir synd sína móti
hinu guðdómlega lögmáli. Og af því lög-
málið er heilagt eins og Guð sjálfur, þá
gat einungis sá, sem var Guði jafn forlíkað
fyrir yfirtroðslu þess. í alheiminum var
aðeins einn sem manninum til hjálpar gat
mætt kröfu lögmálsins. Jesús einn gat
frelsað faltinn mann og leitt hann aftur í
samband við Föðurinn.
Kærleikurinn, kærleikurinn einn gat
fundið leið til að frelsa manninn. Faðir-
inn gaf soninn, og sonurinn gaf líf sitt á
krossinum til að frelsa syndarann. Getur
nokkur horft á Jesúm deyjandi á kross-
inum fyrir vorar syndir án þess að vilja
gefa slíkum frelsara sitt eigið líf ?. Hann
gaf sjálfan sig fyrir mig. Eg get ekki ann-
að en gefið honum sjálfan mig. Það væri
megnasta vanþakklæti ef eg vildi ekki
lifa honum sem dó fyrir mig.
Krossfestingin var þriðji stólpinn undir
brú frelsúnarinnar. En dauði hans leiddi
ekki til lykta sáluhjálp vora. Eftir að
hann dó fyrir oss þurfti hann að rísa upp
aftur. Upprisan er því fjórði stólpinn
undir brúnni. Hefði Jesús ekki risið upp
frá dauðum, þá værum vér glataðir þrátt
fyrir holdtekju hans, syndlaust líf hans
og1 krossfestingu hans. Páll seg'ir í Kor.
15:17. “Ef Kristur er ekki upprisinn þá
er trú yðar ónýt og þér eruð enn í synd-
uin yðar.” Guði sé lof að hann, sem dó
tfyrir oss reis upp aftur. Vér vegsömum
Krist sem dó, en reis upp aftur og lifir
eiJífiega. Á þriðja degi leysti hann bönd
dauðans og gekk út, sigurvegari yfir gröf
og dauða. Það þurfti meira en upprisu
Krists til að fullkomna frelsun vora og
byggja brúna frá jörðu til himins. Upp-
stigningin er því næsti stólpi brúarinnar.
Fjörutíu dögum eftir upprisuna sté Jesús
til hiinins. Hann hafði verk að vinna
fyrir oss eftir að hann var upp stiginn.
Meðalganga Krists er næsti stólpi brú-
arinnar. Jesús situr til hægri handar
Guði sem æðsti prestur vor, og framber
sitt blóð sem forlíkun fyrir alla þá, sem á
hann trúa. í I. Jóh. 2:1 lesum vér: “Ef
einhver syndgar þá höfum vér talsmann
hjá Föðurnum, Jesúm Krist hinn réttláta”
Páll segir oss í Hebr. 7:25 að Jesús getur
líka “ætíð frelsað þá þar hann æ lifir til
að tala þeirra máli,” sem koma til Guðs
fyrir hann. Jesús getur frelsað til hins
ýtrasta alla sem til hans koma. Ef þú vilt
koma þá frelsar hann þig. Sláðu því ekki
á frest. Ef þú meðtekur Jesúm þá veitir
hann þér fyrirgefningu, frið og frelsun.
Ef þú gefur honum lif þitt þá veitir hann
þér kraft til að lifa heilögu lífi.
Ennþá þarf einn stólpa til undir brúna.
Jesús verður að koma aftur. Hann sagði
til lærisveina sinna: “Hjörtu yðar skelf-
ist ekki né hræðist. Trúið á Guð og trúið
á mig. í húsi Föður míns eru mörg híbýli,
væri ekki svo hefði eg sagt yður það Eg
fer burt að tilbúa yður stað, og þegar eg
er burt farinn og hefi tilbúið yður stað,
þá mun eg koma aftur og taka yður til
mín, svo þér séuð þar sem eg er.” Jóh.
14:1-3. Emdurkoma Krists er því sjöundi
og síðasti stólpinn undir brú frelsunar-
innar. Þetta sjöfalda starf Krists mönnuni
til frelsunar er hinn eini sanni kristindóm-
ur.
Sáluhjálpin er að trúa og tileinka sér
persónulega alt þetta sem Jesús gekk í
gegnum oss tit frelsunar. Eg get sagt.
“Jesús fæddist fyrir mig, hann lifði fyrir
mig, hann dó fyrir mig. Hann reis upp
.fyrir mig og sté upp til himna. Hann
biður fyrir mcr. Hann kemur aftur til að
taka mig heim til sín.
Eg bið yður, eg grátbæni yður, með-
takið Jesúm nú, meðtakið hann í dag. Vilt
þú segja hátt eða i hljóði: “Eg vil með-
taka Jesúm sem frelsara minn frá synd.”
Það hjálpar öðrum ef þú opinberlega játar
Krist. Margir bera kriistið nafn án þess
að hafa í sannleika meðtekið Jesúm. Ein-
hver hin mesta hætta sem menn mæta á
þessum siðustu dögum er að hafa yfirskin
guðhræðslunnar án þess að hafa kraft
hennar. Látum oss biðja: “ó Guð gefðu
mér þinn heilaga anda svo að frelsunar-
verk Krists megi verða veruleiki i mínu
daglega lífi til að varðveita mig frá synd.”
J. L. S.