Stjarnan - 01.02.1942, Blaðsíða 5

Stjarnan - 01.02.1942, Blaðsíða 5
STJARNAN 13 gæfilega fylgja orði hans, þá mun hann í lífi voru framkvæma það, sem honum er þóknanlegt. Fyrir þekkinguna á Guði og Frelsara vorum Jesú Kristi getum vér öðlast alt, sem þarf til sannarlegs lífs og guðrækni. Ef vér meðtökum náðargjafir Guðs og fyrirheit hans, þá veitist oss guð- legt eðli, svo oss verður það yndi að hlýða Guðs blessuðu boðum og stunda allar kristilegar dygðir. “Kappkostið því, bræður mínir, að stað- festa yðar köllun og útvalningu, því ef þér þetta gjörið, munuð þér ekki nokkru sinni hrasa, því þá mun yður veitast ljúfur inn- gangur í hið eilífa ríki Drottins vors og' frelsara Jesú Krists.” 2. Pét. 1:10. Guð gefi það megi verða reynsla yðar allra sem þetta lesið eða heyrið. S. J. Ert er viðbúinn? í trúarjátningunni lesum vér um Jesúm að hann “sté upp til himna situr við hægri hönd Guðs föðurs almáttugs og' mun þaðan koma til að dæma lifendur og dauða.” Vonin um endurkomu Krists styrkti sálir hinna fyrstu kristnu svo þeir Iétu ekki bugast þótt þeir mættu allskonar of- sóknum Nú er þessi fagnaðaratburður rétt fram undan oss. Margir spádómar Krists, postulanna og spámannanna gefa greinilega lýsingu á hvernig ástandið verði í heiminum rétt áður en Jesús kemur. Vér höfum Heilaga Ritningu á voru eigin móð- urmáli. Vér höfum einnig það, sem Guðs börnum víða um heiminn er synjað um nú á dögum, það er frjálsræði og tækifæri til að hafa Guðs orð um hönd, frjálsræði til að þjóna guði samkvæmt því ljósi, sem hann gefur oss i orði sínu, svo vér höfum enga afsökun ef hinn mikli dagur kemur að oss óvörum, enga afsökun, ef vér erum ekki viðbúnir að mæta Jesú með fögnuði. Vér þurfum að þekkja Guðs orð og með- taka náðargjafir Guðs oss til sáluhjálpar. Jesús sagði lærisveinum sínum að eins o.g: dagar Nóa voru, eins mundi verða við tilkomu mannsins tsonar. Ástandinu á dögum Nóa er lýst þannig í Heilagri Ritn- ingu: “Drottinn sá að ilska mannanna var mikil á jörðunni og að öll hugsun mannsins hjarta var vond alla daga.” “Alt hold hafði spilt vegum sínum á jörðunni. Þá mælti Guð við Nóa: endir alls holds er kominn fyrir minni augsýn, því jörðin er full af ofríki þeirra.” I. Mós. 6:5, 12, 13. Yður er kunnugt, vinir mínir, eins vel og mér, núverandi ástand heimsins, berið það saman við ástandið á dögum Nóa. f Daníel 12:1, 2. lesum vér: “Þá mun sú hörm- ungatíð koma að slík mun aldrei verið hafa frá því menn urðu fyrst til og alt til þessara tíma . . . Margir af þeim, sem sofa í dufti jarðarinnar munu upp vakna sumir til ævarandi líf.s, sumir til ævarandi skammar og smánar.” Nú skulum vér snúa oss að bjartari hliðinni. “Hvað á eg að gjöra svo eg verði hólpinn?” spurði fangavörðurinn í Filippi. Svarið er hið sama nú og það var á dögum postulanna: “Trúðu á Drottinn Jesúm Ivrist, þá verður þú hólp- inn.” Ef þú i sannleika trúir á Jesúm þá munt þú kostgæfilega kynna þér kenningar hans og líf, fylgja kenningum hans og feta i fótspor hans. Jesús áminti og aðvaraði lærisveina sína í sambandi við það er hann sagði þeim um ástandið í heiminum rétt áður en 'hann kemur aftur: “Gætið yðar að hjörtu yðar ofþyngist ekki við óhól' í mat eður drykk eður búksorg, svo ekki konri þessi dagur yfir yður óvart, því eins mun hann koma og tálsnara yfir alla þá, sem á jörðu búa. Verið þvi ávalt vakandi og biðjandi, svo þér verðið álitnir þess verðugir að umflýja alt þetta, sem fram mun koma, og mæta frammi fyrir manns- ins syni.” Lúk. 1:34-36. “f dag, meðan þér heyrið hans haust forherðið ekki hjörtu yðar.” Hlýðir þíi þessum áminningum? S. J. Gnótt fagnaðar Margir ímynda .sér að sannkristinn maður hljóti að vera þunglyndur og gan.ga andvarpandi með sorgarsvip gegnum lífið. Þetta er einhver hin stærsta lýgi djöfuls- ins en jafnframt sú sem flestir hafa trúað. Sönn og stöðug farsæld er eign hvers

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.