Stjarnan - 01.02.1942, Blaðsíða 6

Stjarnan - 01.02.1942, Blaðsíða 6
14 ST J ARN AN sanntrúaðs manns. Þunglyndur! Hvað er það í fagnaðarboðskapnum, sem getur gjört mann þunglyndan? Verður nokkur þunglyndur af því að vita að syndir hans eru fyrirgefnar? Getur nokkur maður orðið þunglyndur af því að fá fulla vissu um að hann fær að vera um alla eilífð hjá Drotni vorum Jesú Kristi í dýrð og sælu? Mun glæpmaðurinn sem dæmdur hefir verið til dauða hryggjast af því að konungurinn náðar hann? Nei. Sá eini, sem hefir ástæðu til að vera glaður er hinn trúaði, því hann, og hann einn er frelsaður frá ánauð syndarinnar, frá dauða og dómi. Þess vegna skrifaði sálmaskáldið: “Sæl er sú þjóð hverrar Guð Drottinn er.” “Gnótt fagnaðar er fyrir þínu augliti og sæla við þína hægri hönd eilíflega.” Sálm. 144:15; 16:11. Munaðarlausu drengirnir Þessi frásaga um skólann fyrir munað- arlaus börn í Mið-Kína kom í gegnum víðvarpið frá Shanghai. Trúboðarnir höfðu gjört sitt ýtrasta fyrir þúsundir manna, sem ihöfðu orðið að flýja heimili sín, og voru á leið lengra vestur í landið. Þeir höfðu einnig safnað til sín hóp af munaðarlausum börnum, og stofnað skóla fyrir þau, þar sem börnunum var líka kent að biðja til Guðs og treysta honum. Nokkru seinna þegar loftvélar réðust á borgina hitti sprenging part af trúboðs- svæðinu. Brátt var það ljóst að þrir af munaðrlausu idrengjunum höfðu orðið undir rústunum. Þegar árásirnar voru um gavð gengnar, fengu trúboðarnir menn með sér til að leita í rústunum þar sem drengirnir hlutu að vera undir. Þeir unnu af öllum kröftum í von um mögulegleik- ann að ná drengjunum lifandi. Loks lán- aðist þeim að ná í drengina og voru þeir gætilega bornir inn á sjúkrahús trúboðsins, þar var þeim gefin nákvæm lækniisrann- sókn. Mönnum til mestu undrunar voru þeir alveg ómeiddir, og ekki einu sinni hruflaðir. Nú voru þeir hver i sínu lagi spurðir um hvernig alt þetta hefði gengið til, og bar þeim öllum saman. Þegar þeir heyrðu sprengingarnar umhverfis urðu þeir ákaflega hræddir. Þennan stutta tíma sem þeir ihöfðu dvalið á trúhoðsskól- anum höfðu þeir lært að treysta hinum sanna Guði, sem svarar bænum manna, svo þeir féllu á kné og beiddu Guð að passa sig. Þeir fengu strax svar upp á bæn sína, því þegar þeir litu upp sáu þeir mann í hvítum fötum sem sagði við þá: “Leggist þið niður á grúfu og eg skal breiða yfir ykkur.” Þeir gjörðu eins og þeim var sagt. Þeir treystu Guði og urðu ekki fyrir vonbrigðum. Sannarlega var uppfylt á þessum litlu drengjum loforðið: “Með fjöðrum sínum mun hann skýla þér og undir hans vængjum muntu finna hæli.” "Ákalla mig í neyðinni." Þetta, sem nú skal greina átti sér stað langt inni í Kína. Ungur Kinverji einn var orðinn Sjöunda dags Aðventisti. Mörgum sinnum hafði hann fengið þá sannfæringu að hann ætti að fara út til að selja bækur, en hann hliðraði sér hjá því, og vildi hreint ekki g'jöra það. Einu sinni þegar hann var úti við vinnu með öðrum manni kom vitskertur hundur og beit hann og félaga hans, sem ekki var Aðventisti. Þeir gátu ekki náð í læknishjálp og urðu því að taka afleiðingunum af bitinu. Sjúkdóm- urinn komst á hæsta stig og trúaði, ungi maðurinn vissi það var engin lífsvon, nenia Guð tæki í taumana. Nú mintist hann þess, að hann hafði þverskallast gegn köll- un Guðs að starfa fyrir hann. í angist sinni bað hann nú safnaðarfótkilð að koma saman og biðja fyrir sér til Guðs og lofaði jafnfram að ef Guð læknaði hann, þá skýldi hann fara út að selja bækur. Litlu eftir þetta dó félagi hans með miklum harmkvælum en honum sjálfum batnaði. Hann hefir unnið fyrir Guðs riki ávalt síðan. Leysiur úr fangelsi. Það er sagt frá því að kristinn Kínverji var einu sinni handtekinn af ræningja- flokki. Þeir lokuðu hann inni í litlu her- bergi og settu varðmenn við dyrnar svo hann gæti ekki flúið. Hann bað til Guðs um varðveislu. Fleiri skifti fór hann fram að dyrunum til að hlusta hvort hann heyrði pokkuð til varðmannanna, eða hvort

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.