Stjarnan - 01.02.1942, Blaðsíða 8
16
S TJARNA N
var þarna inni nálægt 15—20 mínútur og
heyrði að hermennirnir voru á gangi í
kring, og yfirmaður þeirra skipaði fyrir
með miklum hávaða. Hann heyrði þá
skvetta gasolíni á húsið. Næst heyrði
hann blót og formælingar en rétt á eftir
sló öllu í þögn.
Nú fór hann út og fann sterka lykt af
gasolíni, líka tók hann eftir þvi, að brend-
ar eldspýtur lágu ihér og hvar umhverfis,
en enginn eldur hafði kviknað. Gasolínið
brann ekki. Seinna var gjörð tilraun til
að hrenna heimili hans og samkomuhúsið
en það hepnaðist ekki.
Mismunandi æfilok
Þegar framliðni guðsmaðurinn Davíð
Livingstone árið 1874 var jarðaður í
Westminster Abbey í London, voru göt-
urnar hringinn i kring yfirfullar af fólki,
sem vildi heiðra minning hans. í hinum
mikla fólksfjölda var gamall maður í mjög
slitnum fötum. Hann stóð og grét bitur-
lega. Einhver sneri sér til hans og spurði,
hvers vegna hann gréti, þegar allir aðrir
reyndu að láta i ljósi þakklæti sitt til hins
látna þjóns Drottins.
“Jú, það skal eg segja ykkur,” sagði
gamli maðurinn. “Við Davíð vorum
fæddir á sama stað. 'Við gengum í sama
skóla og sama sunnudagaskóla, og við unn-
um í sömu vefnaðarverksmiðju. Davíð
gekk veg Guðs, en eg gekk minn eiginn veg.
Nú verður hann heiðraður af allri þjóð-
inni, en mér er gleymt af öllum og yfir-
gefinn. Eg hefi ekkert annað að horfa
fram á en gröf drykkjumannsins.”
Smávegis
Búnaðarskóli fyrir kvenfólk í Phila-
delphia leggur ekki áhersluna á hagfræðis-
nám eða vísimdi, heldur þá list að geta
mjólkað kú, eða plantað matjurtagarð. Á
þessum skóla, sem er sá eini af þeirri teg-
und í Bandaríkjunum, gefa stú'lkurnar
hænsnunum að éta, þær mála girðingar
og geymsluhús, o. s. frv. Hvort sem þær
stofna sín eigin heimili eða vinna hjá öðr-
um eftir að þær útskrifast, þá kemur
námið þeim að miklu gagni.
STJAIiNAN kemur út einu sinni á rnán-
uði. Verð: $i.oo á ári. Borgist fyrirfram.
Publishers: The Canadian Union Con-
ference of S. D. A., Oshawa, Ont.
Ritstjórn og afgreiðslu annast
AIiss S. JOHNSON, Lundar, Man., Can.
Dr. Edward S. Jones frá Buffalo Uni-
versity segir að háskólanemendur, sem
vinna eitt eða tvö ár eftir að þeir útskrif-
ast af háskólanum, áður en þeir fara á
University, standi hærra við prófin, held-
ur en þeir sem fara strax af háskólanum
á University.
4- ♦ +
Sjö miljón ekrur í Ástralíu eru ætlað-
ar fyrir heimilislausa Gyðinga til aðseturs.
Fjöldi ungra Gyðinga er kominn þangað til
að byggja hús, leggja vegi, vinna að vatns-
veitingum og undirbúa landið til akur-
yrkju. Mál talað þar verður enska, en lög
Ástralíu verða að sjálfsögðu gildandi.
♦ ♦ ♦
Sú var tíðin að Bandaríkin þurftu að fá
frá Evrópu 30,000 flöskur af kvikasilfri á
ári til notkunar. En nú framleiða þau
sjálf 50,000 flöskur á ári.
♦ • ♦ ♦
Það þarf hér um bil 8 ekrur af landi
til að fæða hvern mann í Bandarikjunum.
♦ ♦ ♦
Bandaríkin framleiða meiri steinolíu
heldur en nokkur önnur þjóð. Olíufram-
leiðslan í heiminum árið 1940 var 307,-
300,000 skippund og Bandaríkin fram-
leiddu 192,100,000 af þeim.
♦ ♦ ♦
Það eru fleiri talsmiar í New York
heldur en nokkurri annari borg heimsins.
Þeir eru 1,669,904 að tölu. Þeir eru fleiri
heldur en í öllu Frakklandi, eða í allri
Asíu þar sem býr helmingur af íbúum
heimsins. San Francisco hefir flesta tal-
síma i samanburði við íbúafjölda, eða meir
en 44 fyrir hvert hundrað manns.
♦ ♦ ♦
Canadabúar drukku 1,500,000 gallónur
af eplavökva árið 1940. Þetta er bæði
hressandi drykkur og auk þess var á þenn-
an hátt hægt að nota þúsundir tunna af
eplum, sem annars hefðu eyðilagst.