Stjarnan - 01.09.1942, Page 3
STJARNAN
Lögmál Guðs er grundvallarlög
ríkis hans.
Það sem áður er sagt um siðferðislög-
málið, 10 boðorð Guðs, sýnir að það eru
grundvallarlög ríkis hans. Það gildir
þess vegna alstaðar og eilíflega. Þegar
John Wesley, höfundur Methodista kirkj-
unnar var að sýna mismuninn milli fórn-
færingalögmálsins og tíu boðorðanna, seg-
ir hann um þau síðari: “Öll þessi boðorð
hljóta að vera í gildi fyrir alla menn á
öllum öldum, án tillits til hvenær þeir
eru uppi eða hvar þeir eru, hversu breyti-
legar sem kringumstæður kunna að vera.
Óumbreytanlegleiki þeirra byggist á eðli
Guðs og eðli mannsins og á eilífri af-
stöðu þeirra hvors til annars.”
Tíu boðorðin voru rituð með Guðs
fingri. Þau voru lögð í örkina undir náð-
arstólinn. Þetta virðist einnig benda á
að þau séu grundvallarlög stjórnara hans.
(5. Mós. 10:5).
í 103. sálminum 19. versi lesum vér:
“Drottinn hefir sett sitt hásæti fast á
himnum, og hans konungsdæmi drotnar
yfir öllu.” Stjórn Guðs nær yfir alt, ekki
einungis yfir eina þjóð eða kynflokk. Tíu
boðorðin, sem banna afguðadýrkun, guð-
last, helgidagsbrot, óhlýðni við foreldra,
morð, hórdóm, þjófnað, falsvitni og ágirnd
eru bindandi alstaðar í heiminum og fyrir
allar þjóðir á öllum tímum.
Það er varla hægt að hafa þetta skýr-
ara heldur en því er haldið fram í Nýja
Testamentinu. í Róm. 3:19 lesum vér:
“En vér vitum að það sem lögmálið segir,
það er talað til þeirra, sem undir lögmál-
inu eru, svo að sérhver munnur þagni
og allur heimurinn verði sakfallinn við
Guð.” Þetta lögmál, sem Páll talar um
þegar hann skrifar bréf sitt til Rómverja
30 árum eftir krossinn, ber vott um að
allir, Gvðingar og heiðingjar, eru sak-
fallnir fyrir Guði. Og hvers vegna?
Svarið er í 23. versinu. Af því “allir hafa
syndgað.”
Vér vitum að Páll átti hér við 10 boð-
orða lögmálið, því rétt áður vitnar hann
í sjöunda og áttunda boðorðið er hann
segir: “Þú sem fræðir aðra fræðir þá
ekki sjálfan þig, þú sem prédikar að ekki
skuli stela, þú stelur. Þú, sem segir ekki
skuli hórdóm drýgja, þú drýgir hór . . .
75
þú vanvirðir Guð með yfirtroðglu lögmáls-
ins.” Róm. 2:21-23.
Postularnir Jóhannes og Jakob halda
einnig fram almennu gildi boðorðanna.
Jóhannes segir: “Hver sem synd drýgir,
drýgir líka lagabrot, og syndin er laga-
brot.” 1. Jóh. 3:4. Orðin “hver sem” ná
til allra.
Jakob segir: “Þó einhver héldi alt
lögmálið, ef hann verður brotlegur í einu
boðorði, þá er hann orðinn sekur við þau
öll. Því sá, sem bauð, þú skalt ekki hór
drýgja, hann bauð líka, þú skalt ekki
mann vega, en þó þú ekki drýgir hór, ef
að þú vegur mann, þá ertu orðinn lög-
málsins yfirtroðslumaður.” Jak. 2:10.11.
Vissulega geta allir séð að postulinn hér
talar um 10 boðorðin, því hann líka, eins
og Páll í Rómverjabréfinu tilfærir tvö af
10 boðorðunum til skýringar máli sínu,
og auðvitað hefði hann eins vel getað
vitnað í hver sem voru af hinum boðorð-
unum. Með því að nota orðatiltækið
“hver sem,” sýnir hann að boðorðin ná
til allra, enda er það alment viðurkent að
10 boðorðin nái til allra manna. Það er
oft vitnað í þau frá prédikunarstólnum,
í prentuðu máli, í réttarsölum, í sam-
bandi við löggjöf, og jafnvel á þjóðþingi
voru, og alstaðar á þann hátt að þau eru
viðurkend sem ávalt og alstaðar gildandi,
sem mælisnúra lífs og siðferðis manna.
Lögmál GuSs er ein heild.
Orð Jakobs postula sýna ljóslega að
10 boðorðin eru ein heild, eitt lögmál. Þau
eru óaðskiljanleg. Hvert einstakt boðorð
stendur eða fellur með hinum níu. Ef
eitt gildir fyrir alla menn, þá gilda þau
öll. Ef eitt gildir ekki, þá hin ekki held-
ur. Þó þau til að byrja með væru rituð
á tvær steintöflur, þá var það aðeins eitt
lögmál. Þó boðorðin séu 10 þá eru þau
eitt lögmál. Þau eru eins og keðja með
10 hlekkjum, ef einn hlekkurinn brotnar
þá er keðjan slitin.
Hinn heimsfrægi prédikari, D. L.
Moody sagði: “Tíu boðorðin eru ekki 10
mismunandi lög, þau eru eitt lögmál. Ef
mér væri haldið á lofti með keðju, sem
hefði 10 hlekki og einn þeirra brotnaði,
þá félli eg niður alveg eins áreiðanlega
eins og þó allir 10 hefðu brotnað.”
Weighed and Wanting.” Bls. 119. Hér er