Stjarnan - 01.09.1942, Page 6

Stjarnan - 01.09.1942, Page 6
78 STJARNAN í vikunni, sem menn geta haldið til að lifa í samræmi við hvíldardags boðorðið, og það er sjöundi dagurinn eða síðasti dagur vikunnar, sem vér nefnum laugar- dag, sá dagur, sem Guð hvíldist á, og sem hann blessaði og helgaði fyrir manninn. Guð gefi oss náð til að hlýða honum einn- ig í því að halda sjöunda daginn heilagan á hverri viku. Ungi maðurinn, sem text- inn talar um neitaði að hlýða boði Krists. Hann gekk í burtu hryggur og glataður. Fylgjum vér því ljósi, sem Guð veitir oss í orði sínu? Hlýðum vér Guði? Getur maðurinn verið Guði velþókn- anlegur meðan hann neitar að halda eitt af hans boðorðum? “Á því vitum vér að vér þekkjum hann, ef vér varðveitum hans orð. Hver sem segir, eg þekki hann, og varðveitir ekki hans boðorð, er lygari og í slíkum er ekki sannleikur.” I. Jóh. 2:3.4. Sönnun- in fyrir því að vér þekkjum Guð og séum frelsaðir, er ekki bundin við tilfinningar vorar eða hvað vér játum, heldur hitt, að vér höldum hans boðorð. Vér sýnum kærleika vorn til Krists með því að hlýða honum. Sumir halda þeir geti breytt eins og þeim sýnist en samt verið kristnir. Jesús kannast við sem sína lærisveina, aðeins þá, sem hlýðnast honum, og halda hans boðorð. (Lúk. 6:46). Jesús segir: “Þér eruð mínir vinir, ef þér gjörið það, sem eg hefi boðið yður.” Jóh. 15:14. Hin bezta fórn, sem vér getum fært Guði er hlýðni. Hið mest áríðandi í lífi manns- ins er að hlýða Guði og halda hans boð- orð. Préd. 12:13. 14. Mun Guð fordæma menn, þó þeir haldi ekki hans hvíldardag, ef þeir eru góðir að öllu öðru leyti? “Þótt einhver héldi alt lögmálið, en hrasaði í einu atriði, þá er hann orðinn sekur við öll boðorð þess.” Jak. 2:10. Lögmál Guðs er eins og gullin keðja, sem bindur hjörtu vor við Krist með kær- leika og stöðugri hlýðni. Ef vér fótum- troðum eitt einasta af Guðs boðorðum þá syndgum vér og höfum yfirgefið veg rétt- lætisins, og erum óhæfilegir fyrir Guðs ríki nema vér iðrumst og snúum oss frá syndinni. Fyrst vér verðum dæmdir eftir lög- máli Guðs (Jak. 2:8-12), þá er það eina skynsamlega, sem vér getum gjört að mæla líf vort eftir þessum guðdómlega mælikvarða. Hvernig lítur Guð á þann mann, sem beinlínis neitar að laga líf sitt samkvæmt boðorðum hans? Sá, sem snýr eyra sínu frá til þess að heyra ekki lögmálið — jafnvel bæn hans er andstygð.” Orðskv. 28:9. Hvernig mun ganga fyrir þeim sem loka augum sínum fyrir hvíldardegi Drottins? “Prestar hennar hafa brjálað lögmáli mínu, og vanhelgað helgidóma mína, þeir hafa engan mun gjört á því, sem er heil- agt og óheilagt, og eigi frætt menn um muninn á hreinu og óhreinu, og þeir hafa lokað augum sínum fyrir hvíldardögum mínum, svo að eg vanhelgaðist meðal þeirra. . . . þá úthelti eg reiði minni yfir þá og gjöreyddi þeim með eldi gremi minnar, og lét athæfi þeirra þeim í koll koma.” Ez. 22:26. 31. Hver verður afleiðingin, ef vér vitum hvað rétt er en gjörum það ekki? “Hver sem hefir vit á gott að gjöra, en gjörir það ekki, honum er það synd.” Jak. 4:17. Hin eina rétta og óhult stefna er að hlýða sannleikanum strax er vér sjáum hann. Eini vegurinn til að vera ljóssins börn er að ganga í ljósinu eins og það kemur til vor í heilagri Ritningu. Heimtar Guð að vér hlýðum honum í smáatriðum? “Pétur segir við hann: Aldrei til ei- lífðar skaltu þvo fætur mína. Jesús svar- aði honum: Ef eg ekki þvæ þér, þá erum við skildir að skiftum.” Jóh. 13:8. Hvað nákvæmlega segir Guð að vér eigum að halda boðorð hans? “Þér skuluð engu auka við boðorð þau, sem eg legg fyrir yður, né heldur draga nokkuð frá, svo að þér varðveitið skipanir Drottins Guðs yðar sem eg legg fyrir yður.” Þeir, sem ætla að Guð sé ekki svo smámunasamur, að hann hirði um hvort öll boðorð hans séu haldin, þurfa að lesa 1. Mós. 3:7-24. og minnast þess að vorir fyrstu foreldrar aðeins átu ávöxt, sem þeim var bannaður, með þeim árangri að þau voru dæmd til dauða og rekin út úr Paradís. Sú eina óhlýðni leiddi yfir heim- inn alla þá eymd og neyð, sem menn hafa

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.