Stjarnan - 01.09.1942, Side 7

Stjarnan - 01.09.1942, Side 7
STJARNAN 79 liðið síðan, alla þá skelfingu, sem nú dynur yfir heiminn. Satan leiddi þau tii að lítilsvirða Guðs boðorð. Hann reynir sífelt til að fá oss til að óhlýðnast Guði. Andi óhlýðninnar er frá hinum vonda. Andi hlýðninnar er frá Jesú. Ef sá er nokkur, sem ímyndar sér að Guð muni taka það gilt ef hann stranglega heldur sunnudaginn í stað hins sjöunda dags, sem Guð skipaði að halda heilagan þá þarf hann að lesa 1. Mós. 4:1-8. um fórn Kains, sem hann fórnaði í stað þess, sem Guð hafði boðið, hversu Guð hafði enga velþóknun á því. Þeir, sem ímynda sér það saki ekki þó þeir óhlýðnist í smá- atriðum ættu að lesa 1. Mós. 19:26. og sjá hvernig fór fyrir konu Lots, þegar hún óhlýðnaðist í því, sem var aðeins smá- atriði. Sjá 4. Mós. 4:15 og 2. Sam. 6:6. 7. Guð hafði bannað mönnum að snerta sáttmáls- örkina, en Ússa greip til hennar svo hún félli ekki af vagninum, og hann féll sam- stundis dauður niður. Þetta sýnir að Guð afsakar ekki óhlýðni, jafnvel þó frá mann- legu sjónarmiði það sýnist nauðsynlegt að brjóta Guðs boðorð. Það er aldrei nauðsynlegt og aldrei hættulaust. Lesið 1. Sam. 15:1-3 og 8-11, og athugið hvernig Guð hafnaði Sál þegar hann óhlýðnaðist aðeins í því að hlífa einum manni af Amalekítum, og því bezta af nautum þeirra og sauðum til að fórna Guði. í 1. Kon. 13:20-26 er oss sagt frá hvern- ig spámaður einn misti líf sitt af því hann óhlýðnaðist, er hann fylgdi ráðlegg- ingum og áeggjunum annars spámanns. Það er aldrei hættulaust að fylgja ráðum manna, jafnvel ekki nánustu vina, ef þeir ráða manni til að lítilsvirða Guðs boðorð, í hinu minsta atriði. Alt þetta er ritað oss til lærdóms og aðvörunar. Það sýnir oss að Guð kallar menn til reiknings- skapar fyrir sérhverja óhlýðni. Vér ætt- um því að gefa gaum að þessum aðvörun- um og aldrei viljandi eða vísvitandi ó- hlýðnast Guði. Hvers hefir sá maður að vænta sem ásetur sér að halda áfram að brjóta Guðs boðorð? “Því að ef vér syndgum af ásettu ráði, eftir að vér höfum öðlast þekkingu sann- leikans, þá er úr því enga fórn að fá fyrir syndirnar, heldur er það sem óttaleg bið eftir dómi og grimmilegur eldur, sem eyða mun andstæðingunum.” Hebr. 10: 26. 27. Þeir, sem vísvitandi halda áfram í synd eftir að þeir hafa fengið þekkingu á sannleikanum hafa aðeins eitt, sem þeir geta vænt eftir, og það er Guðs reiði og hegning syndarinnar. Sumir halda þeir geti lifað eins og þeim sjálfum þóknast, og svo blíðkað Guð með gjöfum. Þetta er háskaleg villa. Það er ómögulegt með gjöfum til Guðs málefnis, þó það væru biljónir dollara, að fá undanþágu frá því að hlýða Guði. Öll vor trúarjátning, guðsþjónusta, og gjafir eru einkis virði ef vér vísvitandi óhlýðnumst einu einasta af boðum hans. “-‘H'lýðni er betri en fórn.” 1. Sam. 15:22. Heimtar Guð að vér hlýðum boðum hans þegar það sýnist mjög erfitt að gjöra nákvæmlega eins og hann býður? “Þannig getur þá enginn af yður, sem ekki sleppir öllu sem hann á verið læri- sveinn minn.” Lúk. 14:33. Guð sendir þessa uppörfun til þeirra, sem vilja hlýða hans boðorðum en sýnist vegurinn ógreiður: “Óttast þá eigi, því eg er með þér, lát eigi hugfallast, því eg er þinn Guð, eg styrki þig, eg hjálpa þér, eg styð þig með hægri hendi réttlætis míns.” Jes. 41:10. Vér höfum ennfremur þetta loforð um hjálp til að hlýða Guði: “Það er Guð sem verkar í yður bæði að vilja og fram- kvæma, sér til velþóknunar.” Fil. 2:13. Hvað er það, sem gjörir oss létt að hlýða Guði? “1 þessu birtist elskan iil Guðs, að vér höldum hans boðorð og hans boðorð eru ekki þung.” 1. Jóh. 5:3. X. X. Það veikir heilsuna að revkja. Stór- tjón hefir hlotist af því menn, sem reykja hafa fleygt frá sér eldspýtum, sem kveikt hafa í skógi og eyðilagt mörg þúsund doll- ara virði af timbri. Stundum hefir kvikn- að í húsum og þau brunnið af því menn hafa reykt í rúmi sínu og sofnað út frá því. Nýlega hefir sú frétt borist með radio frá yfirmanni á þýzkum kafbát, að hann hafi getað sökt skipi fyrir það, að einhver á skipinu kveikti á eldspýtu, svo hann á þann hátt vissi um skipið.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.