Stjarnan - 01.03.1944, Side 4
20
STJARNAN
Og hann er við föðursins hægri hönd. Sjá
Hebr. 1:3. “Hann er geisli hans dýrðar og
ímynd hans veru, er öllu stjórnar með orði
síns máttar, settist til hægri hliðar guð-
legri hátign á hæðum, eftir það hann fyrir
sjálfan sig (með dauða sínum) hafði hreins-
að oss frá syndunum”. Við endurkomu
Krists verða öll Guðs börn, sem hvíla í
gröfunum reist upp, og þau ummynduð
sem lifandi verða á jörðunni. Sjá Thess.
4:13—17 og Kor. 15:51.52. Getið þér áttað
yður á þessum innvitnunum og flett þeim
upp? Svo munu þessir upprisnu og ummynd
uðu ástvinir Krists lifa og ríkja með hon-
um í þúsund ár. Þeir munu hafa dóms-
vald með honum sem er dómari lifendra og
dauðra. Op. 20:4. Páll postuli vitnar í þetta
er hann skrifaði Korintuborgarmönnum:
“Vitið þér ekki að hinir heilögu munu
heiminn dæma ..... Vitið þér ekki að vér
munum englana dæma?” IKor. 6:2.3.
Freistingar, falskenningar og alskonar
villur munu aukast og ágerast eftir því sem
tíminn líður. “Því djöfullinn er ofan til
yðar farinn í miklum móð, því hann veit
hann hefir nauman tíma.” Op. 12:12. Það
hefir ætíð verið nauðsynlegt, en aldrei
fremur en nú að fylgja áminningu Páls
postula er hann segir: “íklæðist Guðs al-
vepni, svo þér staðist getið djöfulsins véla-
brögð.” Efes. 6:11—18.
Einungis fyrir þekkingu á Guðs orði, lif-
andi trú, stöðuga bæn og samfélag við
Jesúm Krist og skilyrðislausa hlýðni við
Guðs boðorð, getum vér komist sigrandi
gegn um heiminn með öllum hans blekk-
ingum og falskenningum á þessum síðustu,
vondu dögum heimsins. Eg grátbæni yður
því vinir mínir, lesið Guðs orð heilaga Ritn-
ingu. . Hlýðið Guðs blessuðu boðum. Gef-
ið gaum að aðvörunum orðsins og biðjið
án afláts bæði fyrir yður sjálfum og öðrum,
biðjið um leiðsögn Heilags anda svo þér
fáið skilning á orði hans, biðjið um náð
og kraft til að reynast Guði trú alt til
enda, svo þér ásamt öllum Guðs útvöldu
megið finnast þess verðugir að “umflýja alt
þetta sem fram mun koma og mæta frammi
fyrir mannsins syni.” Lúk. 21:36.
S. Johnson.
Vertu hughraustur og öruggur
Jósúa leit fram á ókomna tímann. Hann
og þjóð hans mátti búast við margskonar
hættum. Það var enginn barnaleikur að
leiða 3 miljónir manna, kvenna og barna
inn í ókunnugt land, án nokkurrar sýni-
legrar hjálpar og berjast þar við hrausta
vopnaða þjóð, sem bjó í víggirtum borgum,
og hafði alt við hendina sem á þurfti að
halda. En Jósúa hafði ekkert annað um
að velja heldur en halda áfram. Guð hafði
skipað honum það. Mikil og örugg trú út-
heimtist til að hlýða skipuninni. En ísrael
trúði Guðs loforði. Þeir fóru yfir Jórdan
og treystu því Guð mundi gefa þeim sig-
ur, og hann brást ekki von þeirra.
Guðs börn nú á tímum sjá ekki hvað
framundan er. Vér vitum ekki hvaða
reynsla eða erfiðleikar muni mæta oss á
morgun, eða hvaða erfiðleikar muni standa
í vegi fyrir starfi voru og áformum. Kristn-
ir menn hafa á öllum tímum haft erfiðleik-
um að mæta, og á þessum skelfingartím-
um megum vér búast við óvæntum erfið-
leikum. Satan er ofan kominn í miklum
móð af því hann veit hann hefir nauman
tíma. Illir andar og óguðlegir menn munu
sameina krafta sína móti Guði og söfnuði
hans. Veldi myrkranna mun reyna að
eyðileggja Guðs börn. Vér vitum ekki hvað
hver dagurinn, mánuðurinn eða árið ber í
skauti sínu. Sem stendur er stríð, hallæri
og sóttir víðsvegar í heiminum, já, einnig
jarðskjálftar, flóð og eldar. Margir þola
ofsóknir og líflát.
Hvert geta menn snúið sér? Hvar er hjálp
að fá? Hver getur veitt oss kraft í erfið-
leikunum, huggun í sorginni og hugrekki
sem aldrei bilar, hvað sem á reynir? Hinn
voldugi Guð ísraelsmanna er vor hjálp og
vort athvarf. Orð hans til Jósúa eru einnig
töluð til vor: “Gæt þess, sem eg hef boðið
þér að vera hughraustur og öruggur, óttast
ekki né hræðast, því Drottinn þinn Guð
er með þér hvert sem þú fer.”
Vér minnumst dásemdarverka Guðs á
umliðnum tíma. Hann frelsaði Jósep frá
fangelsi Faraós. Hann leiddi ísrael á þuru
landi gegnum hafið rauða og yfir Jórdan.
Hann frelsaði Daníel frá ljónunum og
Sadrak, Mesak og Abednegó út úr elds-