Stjarnan - 01.03.1944, Síða 8
24
STJARNAN
Óttaátu ekki
Það er eðli mannsins að óttast og kvíða.
Og hvað þetta getur kvalið mann. Ótti
fyrir óhöppum, þjáningum, ótti fyrir af-
leiðingum heimskulegra athafna, ótti fyrir
einveru, ótti fyrir dauðanum. Það er hægt
að losast við allan þennan ótta og hræðslu.
Fyrir nokkru síðan var eg á sjúkrahúsi.
í næsta herbergi var maður sem lá fyrir
dauðanum. Hann hafði verið mikill barna-
vinur. Þegar hann var miðaldra fékk hann
enn meiri elsku til kristindómsins og áhuga
fyrir hohum, svo hann notaði frístundir
sínar til að kenna öðrum sannindi kristin-
dómsins.
Nú lá hann veikur og það var engin von
um bata fyrir hann, og hann vissi það
sjálfur. Var hann hræddur? Nei, alls ekki.
Á hverjum degi heyrðum vér hann syngja
bænarsálma eða fagnaðar og gleði söngva.
Þetta var leyndardómurinn við rósemi
hans og óttaleysi. Hann þekti kærleika
Krists og lifði 1 samfélagi við frelsara sinn
og óttaðist því hvorki líf né dauða.
Heimurinn í dag er gagntekinn af ótta
og skelfingu. Sjálfsmorð eru daglegar
fréttir, menn deyja af hræðslu, aðrir missa
vitið af hræðslu. En þó er örugt meðal til
við öllu þessu.
“Óttastu ekki,” er hinn gleðiríki boð-
skapur sem Guðs orð flytur öllum sem
elska Guð. “Óttast þú eigi því eg er með
þér; eigi skaltu örvílnast því eg em þinn
Guð; eg styrki þig, eg hjálpa þér, eg
held þér með minni trúfastri hægri hendi
Eg em Drottinn þinn Guð, sem held í
þína hægri hönd og segi til þín: Óttast
eigi eg hjálpa þér.” Jes. 41:10.13.
“Óttast þú eigi yrmlingur Jakobs”, segir
hann, hann er reiðubúinn að hjálpa hin-
um aumasta smælingja, meðal barna
sinna. Meðvitund um synd er ástæðan fyrir
miklu af þeim ótta og þeirri hræðslu sem
þjáir mannkynið, en “Fullkomin elska út-
rekur óttann.” Og þessi fullkomni kærleiki
finst í hjarta vors himneska Föður og
Frelsara, þegar vér meðtökum hann þá
hverfur allur ótti og hræðsla.
“Komið til mín,” býður hann oss, “og
munuð þér finna hvíld fyrir yðar sálir.”
Matt. 11:28.29.
Ert þú hræddur, hræddur við nokkuð?
STJARNAN kemur út einu sinni á
mánuði. Verð: $1.00 á ári. Borgist
fyrirfram. Publishers: The Canadian
Union Conference of S. D. A.,
Oshawa, Ont.
Ritstjórn og afgreiðslu annast
Miss S. Johnson, Lundar, Man. Can
Treystu Guði. Hann hjálpar þér. Hann
hefir lofað því. Hans loforð bregðast ekki.
Hann bæði vill og getur hjálpað þér, hann
er almáttugur.
“Varpið allri yðar áhyggju upp á hann,
hann ber umhyggju fyrir yður.”
M. C. Kuhn. *
Smávegis
Dýpsta stöðuvatn í heimi er Baikal vatn-
ið í Síberíu, það er 5350 feta djúpt.
♦ ♦ ♦
Á Aleutian eyjunum, sem eru 1.100 mílur
að lengd, finst ekkert timbur.
♦ ♦ ♦
í einum bifreiðahring er nóg togleður
fyrir 8 gasgrímur.
♦ ♦ ♦
Það ætti aldrei að þvo egg. Þau geymast
ver þvegin og gerlar geta komist inn í
skurninn ef þau eru þvegin.
♦ ♦ ♦
Indiánar í Ameríku sem eru að tölu um
400.000, hafa sent 11.000 menn í herinn svo
þeir eiga erfitt með vinnukraft heima fyrir.
+ ♦ ♦
Grænu blöðin utan um kálhöfuðin, sem
venjulega er kastað hafa miklu meira af
lífsefni A, kalsíum og járni heldur en hvítu
blöðin innan í.
♦ ♦ ♦
Nú er svo erfitt að fá barnavagna, að
farið er að nota strigakörfur 3 fet á lengd
og 2 á breidd. Ungbarnið getur ruggað sér
í þeim meðan móðirin ber þær á hand-
leggnum.
♦ ♦ ♦
í Lissabon væri hægt að fá 60 dollara
fyrir fréttablaðið sem þú kastar frá þér
eða notar fyrir umbúðapappír. Enn meira
virði væri það í Noregi þar sem öll útlend-
blöð eru bönnuð.