Stjarnan - 01.08.1944, Blaðsíða 8

Stjarnan - 01.08.1944, Blaðsíða 8
STJARNAN 64 Hvers vegna ekki. Gæta hagsmuna annara eins vel og sinna eigin? Halda tíu boðorðin í daglegu viðskipta- lífi? Helga Guði líf sitt virku dagana líka? Uppörfa aðra heldur en ávíta þá? Gleyma gremju sinni heldur en velta henni altaf í huga sér? Líta á það góða í stað þess misjafna í fari annara? Smávegis Kol eru notuð til að hita 4 af hverjum 7 heimilum í Bandaríkjunum. Þau eru líka ómissandi til að framleiða stál. 55 hundr- uðustu af öllum vélakrafti er framleiddur með kolum, 95 hundruðustu af öllum járn- brautarvögnum eru knúðir áfram með kol- um, og þau framleiða einnig 55 hundruð- ustu af rafmagni, sem notað er. + + + Yfir 250.000 ekrur af landi eru notaðar fyrir enska og ameríska flugherinn á Eng- landi. Áður en fyrra heimsstríðið byrjaði höfðu Englendingar 7 flugstöðvar. í lok stríðsins 1918 höfðu þeir 300 af þeim. Tala flugstöðva á Bretlandi nú, er leyndarmál hersins. + + + Tala útlendra flóttamanna í Svíþjóð í nóv. 1943 var yfir 35 þúsundir. Þar af voru 18000 norskir, 9000 danskir, 35,000 þýzkir, 1200 Eistlendingar, 1000 Rússar, 800 Pól- verjar, 600 Austurríkismenn, 700 Tékkó- slóvakar. Þar voru líka 12 þúsund finsk börn. 74 sænskir Gyðingar, hafa komið þangað frá Þýzkalandi síðan vorið 1943. + + + Blaðið “Daily Express” í Lundúnaborg, hvað hafa mesta útbreyðslu af öllum frétta- blöðum heimsins, upplagið er 2.800.000 ein- tök. + + + Sagt er að dúfur hafi verið notaðar til sendiferða á dögum Salomons konungs, og meðal Persa í fyrndinni. Þær fluttu fréttir frá Olympisku leikjunum árið 560 fyrir Krist. Árið 43 f. Kr. notaði Brútus þær til að leita sér liðs þegar hann var um- setinn í Mutina. STJARNAN kemur út einu sinni á mánuði. Verð: $1.00 á ári. Borgist fyrirfram. Publishers: The Canadian Union Conference of S. D. A., Oshawa, Ont. Ritstjórn og afgreiðslu annast Miss S. Johnson, Lundar, Man. Can Hinn fyrsti olíubrunnur í Bandaríkjun- um var grafinn árið 1859 í Pennsylvaníu. Hann var 69 feta djúpur. Um síðustu alda- mót þá voru olíubrunnar grafnir 1000 feta djúpir. Tuttugu og fimm árum seinna voru þeir 7300 fet á dýpt. Nýlega var borað 15 þúsund fet niður í jörðina til að ná olíu. + + + Fólk á Norður írlandi býr í fjósum og hesthúsum af því það getur ekki fengið annað húsnæði. + + + Alaska hefir 94 þúsund ferhyrningsmíl- ur, sem nota má fyrir bújarðir og beitilönd. + + + Svíþjóð hefir ekki nók kol, svo þar verð- ur að auka viðarbrenslu, en það getur orðið hindrun fyrir timbursmiði. + + + Samkvæmt skýrslum sjóliðsforingja Breta, A. V. Alexanders, þá framleiddu sambandsþjóðirnar fjórtán og hálfa flugvél á klukkutíma árið 1943, eða 127 þúsund flugvélar yfir árið. Auk þess smíðuðu þeir 9 fallbyssur, 106 þús. skot og nærri því 3 milj. byssukúlur fyrir smábyssur hvern einasta klukkutíam. + + + Ef einhver hefir íslenzka nótnahók sem hann vill selja þá gjörið svo vel aö láta ritstjóra Stjörnunnar vita um það, og hvaö verðið er. + + + Ef þér hafið íslenzkar Biblíur eða Nýja Testamenti með stóru letri, sem þér ekki notið, gjörið svo vel að gefa ritstjóra Stjörnunnar tækifæri til að kaupa þessar bækur. + + + Hjartans þakklæti fyrir fégjafir til al- heimsstarfs vors, sem ýmist hafa verið sendar mér í pósti eða afhentar mér per- sónulega. “Guð elskar glaðan gjafara.” hann mun launa á sínum tíma. S. Johnson.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.