Stjarnan - 01.12.1945, Side 1
=- - - "tt:— . ■ " "
S1 DES. 1945 rj A1 RNAN LUNDAR, MAN.
“Ekki undir lögmáli heldur undir náð”
“Synd skal ekki drotna yfir yður, því að
ekki eruð þér undir lögmáli heldur undir
náð.” Róm. 6:14. Vér skulum athuga þessa
indælu, áríðandi ritningargrein.
Ó, hve dýrðlegur er þessi boðskapur fyr-
ir dauðadæmdan syndara. Vér sem höfum
brotið Guðs heilaga lögmál erum dauða-
sekir, því “Laun syndarinnar er dauði.”
Róm. 6:23. Og “syndin er lagabrot.” I. Jóh.
3:4. Þú vinur minn, ert einn í tölu hinna
dauðadæmdu. Þú ert sekur frammi fyrir
Guði. Hver sem staða þín er, hversu rík-
ur sem þú ert eða tiginborinn, þá hefir þú
syndgað og skortir Guðs dýrð. Róm. 3:23.
En samt sem áður, syndin skal ekki
drotna yfir þér.” Þrælum syndarinnar er
boðin lausn, og frelsi meinar líf. Syndin
skal ekki drotna yfir þér, því þú ert nú
ekki lengur undir lögmáli, heldur undir
náð.
Náð, ó, hve dásamlegt orð. Getum vér
skilið það til fulls? Vér segjum að náð sé
óverðskulduð góðvild eða hjálp, og það er
rétt. Það er sagt um trúboða á Indlandi,
sem var að þýða Biblíuna á eitt af tungu-
málum þeirra, að hann þurfti að þýða orð-
ið náð. Hann þekti ekkert orð í þeirra
máli, sem gæfi það hugtak, svo hann kall-
aði aðstoðarmenn sína og bað þá hjálpa
sér að finna orð eða setningu, sem þýtt
gæti náð. Loks kom einn, er kvaðst hafa
fundið hugtak sem nægði. “Hvað er það?”
spurði trúboðinn. Hinn svaraði: “Of mik-
ill kærleikur.” Það er ekki fjarri lagi.
“Annars gengur varla nokkur í dauðan fyr-
ir réttlátan mann. En fyrir góðan mann
kynni ef til vill einhver að vilja deyja. En
Guð sýnir kærleika sinn til vor, þar sem
Kristur er fyrir oss dáinn meðan vér enn
vorum í syndum vorum. Miklu fremur
munum vér þá nú, réttlættir fyrir blóð
hans, frelsaðir verða frá reiðinni fyrir
hann. Því að ef vér, þá vér vorum óvinir,
vorum sættir við Guð fyrir dauða sonar
hans, þá munum vér miklu fremur, er vér
verðum í sátt teknir, frelsaðir verða fyrir
líf hans.” Róm. 5:7-10.
Takið eftir, vér munum frelsaðir verða
fyrir líf hans. Frelsaðir til hins ýtrasta.
“Þar sem hann ávalt lifir til að biðja,”
fyrir oss. Hebr. 7:25. Frelsaðir frá hverju?
Frelsaðir frá synd, og minnist þess að
syndin er lagabrot.
Það er hryggilegt hve mikill misskiln-
ingur hefir átt sér stað viðvíkjandi þessum
skýra Biblíu texta. Menn hafa skift niður
tímabili því, sem Biblían nær yfir, svo
þeir tala um lögmáls tímabil, eins og menn
hefðu á þeim tíma frelsast fyrir hlýðni við
lögmálið. Svo tala þeir um tímabil náðar-
innar, þegar menn verði frelsaðir fyrir
forþénustu Krists. Til eru þeir, sem halda
því fram að í Gamla Testamentinu hafi
alt verið lögmál en engin náð, en í Nýja
Testamentinu væri alt náð, en ekkert lög-
mál.
í þessu sambandi vil eg leyfa mér að
leggja fram spurningu. Voru menn frels-
aðir á dögum Gamla Testamentisins?
Munu þeir Abraham, ísak og Jakob verða
í Guðs ríki? Munu þeir Nói, Adam, Daníel
og Davíð verða borgarar hinnar nýju jarð-
ar?
Jesús sagði að Abraham, ísak og Jakob
mundu verða í Guðs ríki. Matt. 8:11. Svo
vér erum vissir um að þessir Guðs menn
verða þar. Þeir munu rísa upp í upprisu
réttlátra og ásamt hinum óteljandi skara