Stjarnan - 01.12.1945, Qupperneq 7
STJARNAN
95
selt bókina áður en presturinn talaði við
hana. Konan skrifaði henni:
“Á sunnudagsmorguninn fór eg til messu
og presturinn prédikaði upp úr bók er
líktist þeirri sem þú sýndir mér. Eg held
það hafi verið sama bákin. Hann talaði
um endurkomu Krists og páfavaldið. Eg
hefi aldrei heyrt neitt svo vel útlistað.
Presturinn sagði það væri einhver sú besta
bók, sem hann hefði séð og óskaði að hún
væri til á hverju heimili.”
W. A. Spicer.
Heimboðið
Ó hvað börn og unglingar eru hamingju-
söm þegar þau hafa fengið skeyti um að
einhver af vinum þeirra ætlar að hafa sam-
sæti og þeim er boðið að vera með. Til-
hlökkunin tekur upp alla hugsun þeirra.
Þau tala án afláts um skemtunina, sem
þau eiga von á, og búa sig sem best undir
hana. Við fullorðna fólkið vitum líka hvað
það er að hafa eitthvað að hlakka til og
lifa í glaðri eftirvæntingu þess sem vér
eigum í vændum.
Vér höfum fengið skeyti um samkvæmi
í stórum stíl, þar sem ekkert mun skorta
sem aukið getur gleði og hamingju þeirra,
sem þar koma saman. Þér og mér er boðið
þangað líka. Eg hef viðurkent móttöku
boðsbréfsins og lofað að koma. “Sælir eru
þeir, sem boðnir eru til brúðkaups lambs-
ins.”
Jesús segir: “Eg mun koma aftur og taka
yður til mín svo þér séuð þar sem eg er.”
Fagnaðar erindið er heimboð Krists til vor.
Hefir þú tekið á móti boðinu? Hlakkar þú
til og hefur það fyrir æðsta markmið þitt
að búa þig undir samkvæmið? Þar verða
saman komnir spámenn og postular Drott-
ins, líka fjoldi þeirra, sem hafa þjónað
Drottni í kyrþey, hverra nöfn hafa gleymst
í heiminum, en sem trúlega fylgdu frelsara
sínum og reiddi sig á hann, þeir eru
gleymdir heiminum en nöfn þeirra voru
rituð á himnum. Þeir voru ljós á heimili
sínu og í nágrenninu þar sem þeir bjuggu.
f þessu alsherjar samkvæmi Guðs barna
munum vér mæta ástvinum Guðs og okkar
þeim sem á undan oss eru gengnir til
hvíldar. Þar verður hvorki sjúkdómur sorg
;
né dauði. Alt sem hjartað girnist mun
oss þar veitt verða. Og þetta verður ekki
aðeins stundargleði heldur inngangur að
eilífum fögnuði, eilífum félagskap við
Skapara vorn og endurlausnara, englanna
mörgu þúsundir og hinn óteljandi skara
Guðs endurleystu barna. Fögnuðurinn verð
ur því dýpri og innilegri sem vér njótum
hans lengur og lærum betur að þekkja eig-
inleika hins eilífa kærleika, sem lagði sjálf-
an sig í sölurnar, svo við mættum verða
aðnjótandi samvistar hans og erfa með
honum hans eilífa dýrðarríki.
Þetta er verulegleiki fyrir hvern sann-
kristinn mann. Vér höfum eitthvað að lifa
fyrir eitthvað að hlakka til, sem gjörir
lífið bjart og hamingjusamt jafnvel á þess-
um tíma sorgar, saknaðar og vonbrigða.
Jesús kemur bráðum. Það er aðeins stutta
stund að bíða. Hefir þú - heilsuleysi eða
fátækt að stríða við, hefir ástvina missir
svift þig gleði lífsins? Leiðist þér af því þú
getur ekki framkvæmt fyrirætlanir þínar,
eða af því þú nýtur ekki þess félagsskapar
sem æskilegur væri? Hvað sem að þér am-
ar, þá kom til Jesú nú strax. Hann segir:
“Komið til mín allir þér sem erfiðið og
þunga eruð hlaðnir eg vil gefa yður hvíld.”
Mitt. 11:28. Legðu byrði þína og sorg fram
fyrir Jesúm talaðu við hann eins og besta
vin um alt sem þér liggur á hjarta. Hann
bæði vill og getur hjálpað þér hverjir sem
erfiðleikarnir eru. Eitt af því sem hann
ræður oss til og sem eykur hamingju vora
hér er þetta: “Hafið hugann á hinu himn-
eska.” Ef vér gjörum það og um leið kepp-
umst eftir að lifa verðugt þeirri köllun sem
vér erum kallaðir með sem börn Guðs og
borgarar hans eilífa ríkis, þá höfum vér
hvorki tíma né tilhneigingu til að kvíða
eða láta oss leiðast, því hugur vor og hjarta
er þá svo upptekið við að búa oss undir
að sitja brúókaup lambsins, sem vér erum
boðnir til. Á þennan hátt getum vér, þrátt
fyrir sorg, vonleysi, fátækt eða heilsu-
brest, þá getum vér glaðst óútmálanlegum
dýrðlegum fögnuði. Yér vitum líka að
Jesús er með oss alla daga alt til verald-
arinnar enda.” Matt. 28:20.
Vor himneski faðir leggur oss aldrei
þýngri þyrði á herðar en hann gefur oss
kraft til að bera. Þegar vér lifum í stöð-
ugu samfélagi við frelsara vorn og höfum