Stjarnan - 01.12.1945, Side 5

Stjarnan - 01.12.1945, Side 5
STJARNAN 93 þig, er að efast um, að sá hafi mátt til að frelsa, sem hefir keypt oss svo dýru verði. Látum trú koma í stað vantrúar. Líttu á þær hendur, sem voru særðar þín vegna, og gleðstu yfir því, að þær hafa mátt til að frelsa. Mundu, að guð og Kristur láta sér ant um þig, og að allir herskarar himinsins vinna ávalt að því, að frelsa syndara. Meðan Kristur var hér á jörðunni, sýndi hann með kraftaverkum sínum, að hann hefir fullkominn mátt til að frelsa. Með því að lækna líkamlegan veikleika, sýndi hann, að hann gat hreinsað hjarta frá synd. Hann lét hina höltu ganga, hina daufu heyra og hina blindu sjá- Hann hreinsaði hina líkþráu vesalinga, og alls konar sjúk- dóma læknaði hann. Fyrir orð hans, varð sjálfur djöfullinn að fara út af þeim, sem hann hafði náð valdi yfir. Þeir sem sáu þessi kraftaverk, sögðu með mikilli undrun: “Hvað er þetta? Jafnvel illum öndum skipar hann með myndugleika og valdi að fara, og þeir hlýða honum.” Eftir skipun Jesú, gat Pétur gengið á sjónum. En hann varð að hafa augun á frelsaranum, því strax og hann leit af hon- um, byrjaði hann að efast og að sökkva. Þá kallaði hann: “Herra, frelsa þú mig!” Og frelsarinn rétti út hönd sína og tók í hans. (Matt. 14, 28—31). Hvenær sem einhver ákallar Jesú um hjálp, er hönd hans útrétt til að frelsa þann. Frelsarinn uppvakti fólk frá dauðum. Einn þeirra var sonur ekkjunnar frá Nain. Þegar verið var að bera’hann til grafar, mætti fólkið Jesú. Hann tók í hönd hins unga manns, reisti hann upp og gaf móð- urinni hann aftur lifandi. Syrgj endurnir sneru síðan heim með lofgjörð og þakk- læti til guðs. Þannig uppvakti hann einnig dóttur Jairusar. Og Lazarus, sem hafði legið dauð- ur í fjóra daga, hlýddi skipun Jesú og kom fram úr gröf sinni. Þannig mun það verða, þegar Kristur kemur aftur til jarðarinnar. Raust hans mun þrengja sér niður í grafirnar, og “þeir, sem í Kristi eru dánir, munu upp rísa í dýrð til eilífs lífs; og síðan munu þeir vera með drotni alla tíma”. (1. Þess- 4, 16. 17). Það voru undraverð verk, sem frelsarinn gjörði, meðan hann var hér á jörðunni. Hann talar um það í svari, sem hann sendi til Jóhannesar skírara. Jóhannes sat í fangelsi og var farinn að láta hugfallast og mæddist af efasemdum um, hvort Jesús væri í raun og veru Messías. Hann sendi því nokkra af lærisveinum sínum til Jesú með þessa spurningu: “Ert þú sá, sem koma á, eða eigum vér að vænta annars?” Þegar sendimennirnir komu til Jesú, var hann umkringdur af bágstöddu og sjúku fólki, sem hann læknaði og hjálpaði. Þeir urðu að bíða allan daginu, meðan hann án afláts vann að því að hjálpa hinum bág- stöddu. Að síðustu sagði hann: “Farið og kunngjörið Jóhannesi það, sem þér heyrið og sjáið: Blindir fá sýn og haltir ganga, líkþráir hreinsast og daufir heyra og dauðir upprísa og fátækum er boðað fagnaðarerindi”. (Matt. 11, 3—5). í hálft fjórða ár, gekk Jesús þannig “um kring og gjörði gott”. Svo kom sá tími, er hann skyldi hætta að starfa hér á jörðunni. Hann átti að fara með lærisvein- um sínum til Jerúsalem til þess að verða svikinn, dæmdur og krossfestur. Þannig áttu hans eigin orð að uppfyllast: “Góði hirðirinn gefur líf sitt út fyrir sauðina”. (Jóh. 10, 11). Franska stúlkan sem seldi bækur Hún var að selja franska bók og hafði erfiðan dag. Presturinn hafði aðvarað fólk- ið og bannað því að kaupa mótmælenda bók. Hún segir svo sjálf frá: “Eg sneri heim að veitingahúsinu heldur hrygg í huga. Veitingamaðurinn mætti mér í dýrunum og sagði: “Miss Caryon, prest- urinn er hér og óskar að tala við þig.” Eg fór inn á skrifstofu veitingahússins, þar beið mín presturinn og lögregluþjónn. Mér fanst ekki mikið til mín þegar eg stóð frammi fyrir þessum miklu mönnum. Eg titraði svolítið, en mintist strax Nehemía

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.