Stjarnan - 01.12.1946, Side 8

Stjarnan - 01.12.1946, Side 8
96 STJARNAN STJARNAN Authorized as second class mail, Post Office Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa, Ontario. Ritstjórn og afgreiðslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar, Man., Can. áreiðanlegleika Guðs fyrirheita. “Þó þús- und falli þér við hlið, og ííu þúsund þér til hægri handar, þig nálgast það ekki.” Y. I. ♦ -f ♦ Þér eruð verði keyptir “Það sem dró athygli mína að kristin- dóminum,” sagði prestur einn í Afriku, “var að sjá einn af trúboðum ykkar, mann af öðrum kynflokki og frá öðru landi, þvo og vefja umbúðir um þessi voðalegu sár, sem vort fólk hefir, og sem vér viljum ekki snerta við.” Sá sem veit að hann er sættur við Guð fyrir dauða sonar hans, hann veit líka að hann á sig ekki sjálfur, því hann er verði keyptur. Fyrir honum er enginn munur lengur milli Evrópumanna, Asíu eða Afr- íku búa, eða Suðurhafseyja manna. Þeir eru allir menn sem Kristur lét l'íf sitt fyrir. Með þessari þekkingu og kærleika Krists í hjartanu, sem knýr hann áfram, þá hefir hinn sannkristni aðeins eitt að gjöra, og það er að finna veg og tækifæri til að veita mönnum þekkingu á þeim gleðifréttum að “Guð var í Kristi og friðþægði heiminn við sjálfan sig, og tilreiknar ekki mönnun- um afbrot þeirra.” 2 Kor. 5: 15. C. E. Carlson. ■ ♦. -f ♦ Kæru vinir m'ínir, minnist þess, að Stjarnan hefir ekkert að lifa á nema það, sem þið sendið henni. Hjartans þakklæti til ykkar allra, sem hjálpuðuð mér með kostnaðinn við hana í sumar sem leið og léttuð mér áhyggju og erfiði með ferða- lögin út um landið. Guð launi ykkur þús- undfalt og gefi ykkur gleðilega og farsæla framtíð. S. Johnson. Smávegis Það er áætlað í borginni Chicago einni, að ljósleysið sem átti sér stað um tíma vegna verkfalls í kolanámunum, hafi ollað 110 milljón dollara fjártapi fyrir framleið- endur og verzlunarmenn, og yfir 21. og hálfa milljón tekjumissir fyrir verkafólk. Er trú þín og Mf í samræmi við trú og líffjöldans? Ef svo er, þá vara þig! Synda- flóðið kom yífir fjöldann á dögum Nóa. Á dögum Abra'hams var fjöldinn hjáguða- dýrkendur. Y dögum Mósesar fórst fjöld- inn á eyðimörkinni. Á dögum Elía dýrk- aði fjöldinn Baal. Á dögum Krists hafnaði fjöldinn frdlsaranum og krossfesti hann. Á dögum Lúthers var fjöldinn rómversk- kaþólskur. —Á vorum tíma hefir fjöldinn skin guðrækninnar, en afneitar hennar krafti. 2. Tím. 3, 5. “Þú skalt ekki fylgja fjöldan- um í því að gjöra íþað, sem ilt er.” 2. Mós. 23, 2. + + + Hæsti olíubrunnur í heiminum er í Colorado. Hann er f,rá 7,800 til 8,500 fet yfir sjávarmál. + + + Áður en settar voru reglur, sem drógu úr skemtiferðum meðan stráðið stóð yfir, keyrðu Ameríkumenn um 2 miljónir bíla árlega til skemtigarða ríkjanna. + + + Nú er hægt að kaupa farseðil til að fara ■ alla leið kring um hnöttinn með Pan ■ American flugferðafélaginu. Áætlað er að kostnaðurinn verði um tvö þúsund dollarar. + + + Álitið er að gullsafn heimsins sé um 25,702,000,000 dollara virði. Þar af áttu Bandaríkin nærri fjóra fimtu parta eða 20,036,000,000 í október 1945. ♦ ♦ * Árið 1941 framleiddi Ameríka 6,000 skippunid af gúmmí (rubber) en árið 1945 var framleiðslan 700,000 skippund. ♦ ♦ ♦ Eitit cent af hverjum dollar, sem sam- bamdsstjórn Bandaríkjanna tekur inn árið 1946, gengur til að tryggja atvinnuvegi, hjálpa nauðstöddum og því um líkt.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.