Stjarnan - 01.01.1947, Síða 3

Stjarnan - 01.01.1947, Síða 3
STJARNAN 3 dauðleiki og eilíft líf, og þeir munu ávalt síðan vera með Jesú. Þetta er fullkomin frelsun. “Þannig var Kristur eitt sinn fórnfærður til þess að burt taka margra syndir, en á annað sinn mun bann birtast án þess að vera syndafórn öllum, sem hans vænta til frelsunar.” Jörðin verður efeki leyst undan bölvun syndarinnar fyr en Jesús kemuri í þriðja sinn, sem verður þúsund árum eftir að hann kemur í annað sinn. Þá kemur hann til að dvelja hér á jörðinni. Þá verður synd og syndarar eyðilagðir í eldi þeim, sem hreinsar jörðina og eyðileggur handa- verk manna. Þá verður bölvunin burt numin og allar áfleiðingar syndarinnar. Þá mun Jesús koma með Ihöfuðborg alheims- ins, ihina Nýju Jenúsalem til þessarar jarð- ar, og upp ifrá iþví mun 'hann með sínum endurleystu búa á jörðunni sem ihefir ver- ið ummynduð og endurnýjuð fyrir afkom- endur Adams. Heimsóknir Guðs Sonar til jarðarinnar eru svo áríðandi fyrir þá, sem í heiminum eru, að Guð auglýsir þær fyrirfram. Löngu áður en hann kernur, kunngjörir hann mönnum áform sín og varar þá við að þeir búi sig undir þann mikilsverða atburð. Áður en Jesús kom í fyrsta skifti opin- beraði hann mönnum gegnum spámenn sína, jafnvel árið þegar Jesús yrði skírður og vígður til starfs síns, einnig tímann þeg- ar hann yrði krossfestur. Ef Guðs fólk hefði trúað Ritningunum, þá hefði það vænt hans og búið' sig undir komu hans. Þegar Jóhannes skírard byrjaði starf sitt í eyðimörfeu Júdeu sagði hann: “Tilbúið veg Drottins, beinið brautir hans.” Hann vissi að tíminn var kominn er Jesús mundi hef ja starf sitt, og hann aðivaraði menn um að undirbúa hjarta sitt til að imeðtaka hann, en fjöldinn af fólki lifði kærulaust áfram í syndum sínuim. Hjörtu þeirra voru of- þyngd af óihófi á mat og drvkk og búksiorg, fulir af hroka og sjálfsáliti, sVo þeir fundu enga iþörf fyrir frelsara til að frelsa þá frá þrældómi syndarinnar. Þeir stóðu ekki á verði bíðandi feomu hans og voru því ekki viðbúnir að taka á móti honum þegar hann feom. Einungis þeim, sem meðtóku hann gaf hann kraft til að verða Guðs börin. Þegar Jesús heimsækir jörðina aftur munu rnenn líta þá dýrðarsjón, sem aldrei hefir slik opinberast jarðneskum mönnum, því Jes'ús kemur i dýrð Föðursins, i sinni eigin dýrð og allir englarnir með honum. Og þegar hann birtist i slkýjunum, þá mun auglit hans verða margfalt bjartara en sól- in og klæði hans skínandi hvít. Augu hans verða sem eldslogi og á höfði hans margar kórónur. Hann verður skrýddur skikkju blóðlitaðri og nafn hans er “Kionungur konunganna og Drottinn drotnanna.” Þá verða ríki heimsins eins og sáðir á sumarláfa, sem vindurinn feykir í burt, en Jesús stoifnar sitt eilífa dýrðarríki. Þessi atburður ikemur ekki án þess mönnum sé gjört aðvart fyrir fram, svo þeir geti verið undirbúnir. Margir spádómar Gamla Testameníisins benda sikýrt á tírnann fyrir endurlkomu hans. Oss er efeki sagður á- kveðinn dagur eða stund, hvenær hann muni koma, en spádómarnir eru svo ná- kværnir að vér þurfurn ekki að vera í nein- um efa um hvenær vér megum vænta hans. Spádóimurinn i öðrum kapítula Daniíels- bókar bendir að Jesús muni koma á dögum ráikjanna í Evróipu, sem fyririmynduð eru með 10 tánum á líkneskinu. 1 Daníel 7. kap. og Opinberunarbókinni 13. fcaipátula er sýnt fram á að íhann komi þegar páfákirkjan nær hlámarki tignar sinnar log ofsækir Guðs börn, sem ekki vilja ganga undir merki fráfallsins. Enn er oss bent á að tilkoma Drottins nálgiist Iþegar til vandræða horfir milli vinnuveitenda og ver'kamanna. Jaik. 5. kap. Jesús sagði að tákn á sólu, tungli og stjörnum væru merki um nlálægð tilkomu hans, og það mundi verða angist og örvingl- an meðal þjóðanna, og menn mundu deyja af angistarfullri eftirvæntingu þess er yfir allan heiminn mundi koma. (Lúk. 21:25, 26.). Daníel sagði Jesús mundi koma þegar rnenn ferðuðust með hraða fram og aftur og þekkingin væri feomin á hærra stig. Jóihannes bendir á komu Krists til dóms þegar “heiðingjarnir ilskuðust.” Og Jóel segir að tíminn þegar hann kemur, verði auðlkendur með almennum undirbúningi unidir stríð, heiðingjarnir taka sig upp og þjóðirnar safnast saiman til hins síðasta stríðs við Harmageddon. Það verður al- heims stríð, þá geta imenn ekki lengun smíðað jarðyrkjuverkfæri eða áhöld til

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.