Stjarnan - 01.01.1947, Síða 6

Stjarnan - 01.01.1947, Síða 6
6 STJARNAN var færð hin miikla fórn ifyrir synd heims- ins. Þegar Jesús dó á krossinum á Golgata, þó opnaðist ihinn nýi lífsins vegur, bæði fyrir heiðingjum og Gyðingum. Englarnir íögnuðu, þá er frelsarinn hrópaði: “Það er fullkomnað.” Hið heilaga endurlausnarverk var ifullkomnað. Með því að lifa í hlýðni, gátu Adams synir náð þeirri tign að vera færðiri fram fyrir aug- lit Guðs. Satan var yfirunninn; hann vissi, að vald hans var brotið. ♦ -f ♦ Er ávöxturinn ávinningur eða tap ? Vér setjum allir fé vort í eitt eða annað. Sumir setja það í jarðir, aðrir í banka, eða ýmislegt annað, í von um ávinning- Aðrir setja það á eittihvað, sem þeir vona að geti frelsað þá frá framtíðar eyðileggingu. Guð fékk Nóa alvarlegan boðskap til þáverandi kynslóðar, og um hann prédikaði Nói í “eirtt hundrað og tuttugu ár.” Á meðan Nói prédikaði Iþennan viðvörunar boðskap hlýðni við Guðs orð, setti hann fé sitt í stóra 'örk á þurru landi. Fjöldanum þótti þetta mjög heimskulegt 'fyrirtæki — sem hann vissulega mundi stór tapa á. En “í trú” Ihélt Ihann áfram að prédika og byggja örkina. Sjá 1. Mós. 6, Hebr. 11: 17, 1. Pét. 3,20. Á þessu tímabili “eitt ihundrað og tutt- ugu árum” talaði Guðs andi kröftuglega til fólksins um að taka sinnaskifti og trúa boðskapnum. En flestir 'héldu áfram að óhlýðnast og settu bæði fé sitt og tíma í önnur fyrirtæki. Þegar svo tíminn var kominn og örkin smaðuð, fór Nói og fjöl- skylda hans í örkina og “Drottinn læsti eftir honurn.” 1- Mós. 7: 16. Þá kom nokkuð fyrir — nokkuð sem aldrei hafði komið fyrir áður, nokkuð sem mannleg ihyggindi álitu að alls ekki gæti komið fyrir. Það fór að rigna og hélt á- fram Iþangað til vatnið hulldi jörðina og örkin fór á flot. “Og vötnin mögnuðust, svo að öll hin háu fjöll, sem eru undir öllum himninum fóru í kaf. 1. Mós. 7: 19. Nú varð alt fólkið, sem var fyrir utan örkina, að viðurkenna, en því miður of seint, að þeir, en ekki Nói höfðu haft rangt fyrir sér. Nú sáu þeir að alt, sem þeir höfðu sett fé sitt i var svift 1 burtu — heimili, atvinna, fjölskylda, og líf þeirra sjálfra. En Nói með fjölskyldu sinni var öruggur í örkinni, sem nú flaut á vatninu. Hann ihafði sett fé sitt í hana, já, alt, sem hann átti, í Ihlýðni við Guðs orð. Þessi sami kærleiksríki Guð, sem þá sendi fólkinu alvarlegan viðvörunar boð- skap um hina yfirvofandi eyðileggingu, sendir nú aðvörunarlboðskap til heimsins um eyðileggingu veraldarinnar, sem mjög bráðlega muni fara fram. “Og eins og var á dögum Nóa, svo mun og verða á dögum mannssonarins.” Á dögum Nóa var eyði- leggingin gjörð af vatni, en sú, sem er í aðsigi verður af eldi. Lúk, 17, 26, 2- Pét. 3, 10-13. Eins og Nói prédikaði boðskap sinn í “eitt hundrað og tuttugu ár”, og fólkið “vissi ekki að eyðilegging þeirra var ná- læg” fyr en flóðið kom og hreif þá alla burt”, “þannig” segir Jesú, “mun verða koma mannssonarins”. Fjöldinn vill ékki kannast við endurkomu ihans ’fyr en það er orðið of seinit að búa sig undir að mæta honum. Matt. 24,33. Af hverju vissi ekki fólkið að eyðilegg- ing þeirra var í aðsígi? — Af því, að þeir neituðu að trúa því, og láta sér umlhugað um það. Þeir kusu að fylgja sinni eigin dómgreind og þannig ólhlýðnast Guðs orði. Þeir héldu áfram að sökkva sér niður í störf sín og skemtanir — “átu og drukku, kvæntust og giftust, alt til þess dags er Nói gekk inn í örkina, og vissu ekki af fyr en flóðið kom og hreif þá alla burt, — þannig mun verða koma mannssonarins”. Matt. 24, 38-39. Látum oss því ekki fyrirlíta aðvörunar- boðskap Guðs, sem nú er boðaður um gjör- valla jörðina, en vera hlýðin, leyfa honum að hjálpa oss til að iðrast og frelsa oss þegar hann kemur. Biblían segir: “Sælir eru þeir, sem halda Guðs boðorð (ensk þýðing) til þess að þeir geti fengið aðgang að lífsins tré og megi ganga um hliðin inn í borgina.” Opb- 22, 14. Verum því Ihlýðnir meðeigendur á eign- um himinsins. A. L. Manous.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.