Stjarnan - 01.03.1947, Blaðsíða 2

Stjarnan - 01.03.1947, Blaðsíða 2
26 STJAKNAN lestu nú sögu fyrir mig,” hrópaði hann fagnandi. Faðir hans las í bókinni, og í -þetta sinn talaði hún til hans um hvernig hann gæti fengið fyrirgefningu syndanna. í stað þess að fela bókina stakk hann henni nú í vasa sinn, og fór út í þann enda kálgarðsins, sem lengst var frá húsinu, settist þar á tré- stump, íbak við raðir af hávöxnum maís, og fór að lesa. Orðið talaði til hjarta hans. Að lokum féll hann á kné með bók sonar síns í hendinni og gaf Giuði hjarta sitt. Nú skal eg segja þér hvernig ÞÚ getur öðlast þennan kraft. Þú getur ekki keypt hann. Hann fæst gefins. En þú verður að biðja Guð um hann. Þessvegna segir Jesús: “Biðjið iog mun yður gefast.” Guð er jafn- vel fúsari til að gefa oss sinn Heilaga Anda heldur en foireldrar eru að gefa börnunum sínum góðar gjafir. En vér verðum að biðja um hann. Einu sinni var eg að ibíða eftir strætis- vagni á miðstöð í Oakland. Þegar þangað kom varð vagninn að snúa aftur sörnu leið. Vagnstjórinn iokaði dyrunum, tók peninga- kassann, gekk yfir í hinn enda vagnsins, opnaði dyrnar og dró niður stöngina, sem snerti rafmagnsvírana. Rétt í þessu kom einhver að tala við hann svo hann gleymdi að setja upp stöngina á hinum enda vagns- ins. Farþegamir komu inn og borguðu far- gjaldið, svo leit hann á úrið sitt sté á fjöðr- ina til að setja vagninn á stað og lokaði dyrunum. En vagninn hreyfðist ekki. Hann reyndi á ný en árangurslaust. Alt í einu mundi hann ihvað var að. Hann gefck yfir að hinum enda vagnsins, setti upp stöngina svo hjólið á enda hennar rann á rafmagnsvírunum, svo kom hann vagninum af stað hindrunarlaust. Krafturinn var þar uppi og vagninn var í góðu ilagi, en stöngin varð að snerta raf- magnsvlírinn, sem krafturinn var í, áður en vagninn gæti hreyfst. Guð hefir nógan kraft fyrir oss svo vér getum lifað sönnu, hreinu og heilögu lífi, en vér verðum að biðja um hann og meðtaba hann. Veiztu hvar Guðs heilagi andi óskar að búa? Hann óskar að búa í hjarta þínu. “Vitið þér ekki, að yðar líkami er musteri heilags anda, sem í yður býr, sem þér hafið frá Guði og þér eruð ekki yðar eigin eign.” I. Kor. 6:19. Guð vill vér höldum líkama vorum hreinum, gætium hans vel, varðveit- um hugsanir vorar og orð, svo alt sé Guði til dýrðar. Jafnvel það sem vér etum og drekkum á að vera það sem bezt er fyrir liíkamann og þannig Guði til dýrðar, svo Guðs andi geti búið hjá oss. “Hvort held- ur þér etið eða drekkið, eða hvað helzt þér gjörið, gjörið það alt Guði til dýrðar.” I. Kor. 10:31. Það var smásaga í amerísfcu blaði 1942 um latan einbúa nokkurn. Hann fojó í hrör- legum kofa uppi í fja'llshlíð einni. Einu sinni þegar ihann sat úti um kringdur af illgresi heyrði hann fótatak og hugsið yður, konungurinn frá stóriborginni stóð fyrir framan kofa hans og starði á hin tignar- legu fjöll hinum megin við dalinn. Loks segir konungurinn hrifinn: “Ó hvað þau eru fögur.” Nú varð honum litið á einbú- ann og sagði við hann: “Einbúi, vinur minn, má eg koma aftur og horfa á þessar indælu hæðir frá garðinum þínum? Þessi sjón er svo hrífandi fögur, að hún gjörir mig að ibetri manni.” Vesalings einbúinn fyrirvarð sig sivo hann gat ©kki orði upp komið, alt var svo óhreint og þakið illgresi hjá honum. Meðan hann með sneypu hengdi niður höfuðið fór konungurinn í burt. “Hann kemur aftur, eg verð að búa mig undir,” sagði einbúinn við sjálfan sig, svo hreinsaði hann fourtu illgresið og lagfærði stólinn sem var brotinn. Konungur kom aftur, sat á stólnum og starði á fegurð út- sýnisins. “Einfoúi, vinur minn, viltu gefa mér vatn að drefcka,” bað konungur. Vesa- lings einbúinn, bollinn hans var óhreinn og vatnsfatan tóm og uppsprettan þakin illgresi. Meðan hann vár að reyna að hreinsa boilann fór konungur á burt. “Hann kemur aftur, eg verð að búast við foonum,” hugsaði einbúinn. Hann hreinsaði kringum uppsprettulindina, fylti fötuna með vatni, bjó til borð og hafði vatn við hendina á hverjum degi. Kon- ungur kom aftur, sat á stólnum, drakk vatnið og sagði síðan við einbúann: “Vin- ur minn, eg er svo þreyttur, getur þú gefið mér svolítinn matarbita.” Aumingja lati einbúinn, hann hafði ékkert matarkyns við hendina nema fáein hálfrotin vtínber. Með- an hann stóð og hugsaði um vandræði sín fór konungur burtu.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.