Stjarnan - 01.08.1947, Síða 7

Stjarnan - 01.08.1947, Síða 7
STJARNAN 71 Ekkert siðferðislögmál Malcolm W. Bingay meðritstjóri blaðs- ins Detroit Free Press, var einn meðal hinna 18 ritstjóra, sem sámkvæmt áskorun Eisenhower hershöfðingja fóru til Evrópu til að heimsækja fangastöðvar á Þýzka- iandi. Eftir að hann kom heim aftur, mætti hann á félagsfundi í Detroit og svaraði spurningum sem lagðar voru fyrir hann. Eru skelfingasögurnar frá Þýzkalandi ekki orðum auknar og uppspuni? Bingay: “Skýrslurnar voru engin upp- spuni, þær sögðu ekki fyllilega frá skelf- ingunum. Þeim verður ekki með orðum iýst. Hvernig gat annað eins átt sér stað? — Hvað lá bak við það? Bingay: “Alt hugsanalíf Nazista felst í tveimur orðum: “Ekkert siðferðislögmál”. Ef þér gangið alveg framhjá siðferðislög- málinu, þá getið þér skilið hvað fram fór í Evrópu.” Er nokkur ástæða til að ímynda sér að sömu lífsskoðanir sem framleiddu Nazista, eigi sér stað í Ameríku? “Öll Nazista hreyfingin hvílir á þremur stefnum sem vér allir sjáum greinilega votta fyrir hér í Bandaríkjunum. Ef vér nðeins nefnum þær getum vér betur skilið hvað fór fram í Evrópu. í Nazistastefn- unni finnst hatur það og umburðarleysi sem stjórnar Ku Klux Klan; glæpaaðferð A1 Caponés, sem lagði Chicago undir fastur hans, og vitsmunir Huey Longs til a<5 koma skrílnum af stað. Þetta þrent Bamleiddi *skelfingar Nazista. Það byrjaði nieð því að Hitler æsti þjóðina móti Gyð- ingum.” Hvers vegna lét fólkið leiðast til að fylgja Nazistum? Bingay: “Vér töluðum við menntamenn, jðnaðarmenn, vísindamenn og almenning J ^ýzkalandi og allir sögðu sömu söguna: Nei, vér trúðum ekki girundvallarreglum Nazista, en vér vorum neyddir til að fylgj- ast með, eða....” Þeir voru hræddir. Einst nokkuð þessu líkt hér í Ameríku? Bingay: “Alsstaðar hér í Ameríku finnur naaður þennan óttá, eða hræðsluanda hjá fólki sem er of þreytt til að mæta ábyrgð sinni sem góðir borgarar, fólk, sem er of ósjálfstætt, og hrætt við að eitthvað geti r komið fyrir. Það þæti tapað eignum sín- um eða stöðu sinni í félagslífinu, eða í stjórnmálum. Eg finn sama anda hér í okk- ar elskuðu Ameríku sem ég fann í helvíti því, sem einu sinni var voldugt og vel- megandi Þýzkaland. — Vér hér í Ameríku þurfum að athuga vor eigin hjörtu og hugsunarhátt. Ef vér berum hatur til nokkurs manns af því hann er Gyðingur, kaþólskur, mótmælandi, eða hvað sem trúarbrögð hans eru .... ef vér berum hat- ur til nokkurs manns hvaða ástæða sem fyrir því er, þá opnum vér vorar dyr fyrir því sem fram fór í Evrópu.” Hvað getum vér gjört svo Ameríka haldist frjáls? Bingay: “Ameríka verður að endurnýja trú sína og kristindóm, sýna hugrekki feðra vorra, og’læra að nýju lexíuna frá Olíufjallinu og Golgata. Annars erum vér í hættu, og sekt Þýzkalands verður vor sekt. Siðferðislögmálið og hlýðni við það getur frelsað oss. Það var hið fyrsta sem Nazistar höfnuðu þegar þeir byrjuðu hinn versta glæpaferil, sem heimurinn hefir séð”. W. C. Kerman. Kaldur vatnsdrykkur Þegar Japanar tóku Filippseyjarnar söfnuðu þeir saman öllum karlmönnum í einu litlu þorpi og létu þá stdnda í röð- um á leikvelli skólans. Þar urðu þeir að standa í steikjandi sólarhita í fleiri klukkutíma. Árangurslaust beiddu kon- urnar fyrir utan girðinguna, varðmennina um að lofa mönnunum að fá sér vatn að drekka, og þó var þorpsbrunnurinn aðeins fáein fet í burtu. Sumar konurnar sem gátu náð til vatns- ins rennvættu vasaklúta, hnoðuðu þá saman og hentu þeim inn yfir girðinguna, en varðmennirnir tróð'u þá óðar undir fótum sér. Mennirnir voru auðsjáanlega aðframkomnir af hita og þorsta. Alt í einu kemur berfætt lítil stúlka með könnu og bolla, hún fylti hvort tveggja við brunninn. Óhrædd og án þess að hugsa neitt um sjálfa sig gekk hún fram og aftur milli ráðanna og gaf mönn- unum að drekka. Aftur og aftur fór hún yfir að brunn- inum til að fylla könnuna og hélt þessu

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.