Stjarnan - 01.09.1947, Qupperneq 3

Stjarnan - 01.09.1947, Qupperneq 3
STJARNAN 75 honum fyrir nokkrum mínútum.” Morg- uninn eftir var grein í blöðunum sem sagði: Sauðfjárlest fórst, allir drepnir sem nreð henni voru.” Svo var sagt frá að mað- ur hefði vanrækt að gefa merki svo tvær lestir höfðu rekist á og állir mennirnir farist. Faðirinn í þessari fjölskyldu var sjálf- stæður viljasterkur maður. Hann skyldi varla sjálfur hvernig á því stóð að hann fyldgdi uppástungu annars manns sem var a lestinni um eftirmiðdaginn þennan sama dag. Hann hafði ekki séð#þennan mann áður og sá hann aldrei aftur. Þessi maður hafði líka sauðfé á lestinni. Hann stakk uppá að þeir færu af með fé sitt og fóðr- uðu það á vissum stað þar sem fjárkvíar voru og færu svo seinna með annari lest til Omaha. Faðirinn fylgdi þessu ráði þó það meinti aukakostnað, og komst þannig hjá járnbrautarslysinu. Ó, að vér hefðum barnslegt trúnaðartraust Vér getum öðlast það. Það kemur með því að heyra Guðs orð og hlýða því. Róm 10:17. Þökkum Guði fyrir það sem hann veitir oss, og “treystum Guði” Mark.II:22. Ef vér erum ófúsir að fyrirgefa öðrum þá hindrar það bænheyrslu. Mark. 11:25.26. “Þegar þér standið og biðjist fyrir þá fyr- irgefið er yður þykir nokkuð við einhvern svo Faðirinn á himnum einnig fyrirgefi yðar afbrot. En ef þér ekki fyrirgefið öðr- um, mun faðir yðar himneskur ekki heldur fyrirgefa yður yðar afbrot.” Ósamlyndi milli manns og konu getur hindrað bæn- heyrslu. I:Pét. 3:7. Ef vér vísvitandi höfnum sannleika Guðs orðs, getum vér ekki vænst bænheyrslu. Orðskv. 28:9. Annar alvarlegur texti stend- ur í Sálm 66:17. “Hefði eg haft ranglæti í mínu hjarta, svo mundi Drottinn ekki hafa heyrt mig.” Vér verðum að hafna öllu sem vér vitum er syndsamlegt. Minnist þess líka að það er nafnið sem stendur undir ávísuninni sem gpfur henni gildi, þegar hún er tekin til gjaldkera bankans. Sá maður væri í meira lagi heimskur, sem héldi hann gæti dregið peninga úr bankanum ef hann aðeins væri í dýrum fötum og keyrði í skrautlegum bíl. Hann gæti eins vel verið í vinnufötum, það er ekki búningur eða útlit hans sem gildir, heldur nafnið undir ávísuninni. Sömuleiðis með bæn. Ef vér væntum að fá svar, þá verður bænin að vera í nafni hans sem er æðra öllum nöfnum. Bæn er öflug, ekki vegna þess hve vel hún er stýl- uð, eða hvernig hún er framborin, eða fyr- ir það hvað löng hún er, heldur fyrir það í hvers nafni hún er fram borin. Jesú dýr- mæta nafn er þá sem gildir. Hann sagði til lærisveina sinna: “Hvers þér biðjið föðurinn í mínu nafni það mun hann veita yður. Hingað til hafið þér einkis beðið í mínu nafni, biðjið og þér munuð Öðlast, svo að yðar fögnuður sé fullkominn.” Jóh. 16:23.24. Voice of Prophecy XXXI.- DÓMSDAGUR Tilkomudagur Krists, mun verða dóms- dagur fyrir heiminn. Ritningin segir: “Sjá, drottinn kemur með sínum heilögu þúsundum til að halda dóm yfir öllum”. — Júd. 14. “Allar þjóðir munu safnast saman frammi fyrir honum, og hann mun skilja þá hverja frá öðrum, eins og hirðirinn skilur sauðina frá höfrunum”. — Matt. 25, 32. — En áður en þessi dagur kemur, hefir guð aðvarað oss og látið oss vita, hvað verða mundi. Hann hefir ávalt varað mennina við komandi hegningu. Sumir hafa gefið gaum að viðvöruninni og breytt eftir orði guðs. Þeir hafa komist undan refsidóm- um, en hann hefir komið yfir hina óhlýðnu og vantrúuðu. Áður en guð eyðilagði jörðina með vatns flóði, sagði hann við Nóa: “Gakk. þú og alt þitt hús í örkina; því ég hefi séð þig réttlátan fýrir minni augsýn á þessari öld”. — 1. Mós. 7, 1. — Nói hlýddi guði og bjargaðist. Áður en Sódóma var eyðilögð, kom engill til Lots og sagði við hann: “Tak þig upp pg far úr þessum stað, því drottinn mun eyðileggja staðinn”. — 1. / 4

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.