Stjarnan - 01.09.1947, Page 5

Stjarnan - 01.09.1947, Page 5
STJARNAN 77 °g áhyggju fyrir þessu lífi, og komi svo þessi dagur skyndilega yfir yður”. — !/úk. 21, 34. “Verið því ávalt vakandi og biðjandi, úl þess dð þér megnið að umflýja alt þetta, sem fram mun koma, og að stand- ast frammi fyrir mannsins syni. —• Lúk. 21, 36. “Þá vakið, því að þér vitið ekki, hvenær húsbóndinn kemur, hvort að kveldi eða um miðnætti, eða um hanagal, eða morgni, að hann hitti yður ekki sofandi, er hann kemur. En það sem ég segi yður, það segi ég öllum: Vakið!” — Mark. 13, 35—37. “Sáv sem vottar þetta, segir: já, ég kem skjótt! Amen. Kom þú, drottinn Jesú! Náðin drottins Jesú sé með hinum heilögu. Amen”. — Op. 22, 20. 21. Hafið hugann á Dauðinn er óvinur, það er allra skoðun, úæði nú og frá því fyrst fara sögur af. — Kristnib menn, þeir sem fylgja öðrum trú- arskoðunum, heiðnir, skurðgoðadýrkend- ur og vantrúarmenn, allir kannast við að rnenn óska eftir að lifa en ekki deyja. Það er almennt að þrá eilíft líf og vonast eftir því, en það gefur enga tryggingu fyr- ir að menn öðlist það fremur en óskin um góða heilsu tryggi öllum að fá hana. Vísindamenn nú á. dögum kannast við að einungis líf getur framleitt líf. Menn geta svift lífi en ekki veitt það. Vísindin hafa ekki getað uppgötvað upphaf lífsins. Þau eru alveg þögul viðvíkjandi lífi hin- ummegin grafarinnar. Fyrst vísindin geta ekki sýnt oss að til sé annað líf, hvar get- um við þá fengið fullvissu um það? Heilög Ritning ein getur upplýst oss um þetta efni. Guð, sem skapaði manninn veit meira um oss heldur en vér sjálfir. Hvað segir Guðs opinberaða orð? Er líf eftir dauðann? “Svo elskaði Guð heiminn að hann gaf sinn eingetinn son, til þess að hver sem á hann trúir ekki glatist heldur hafi eilíft líf”, — Jóh. 3:16. — Takið eftir hinum tveimur gagnstæðum hér “glatast” og “eilíft líf”. Alt er komið undir Guðs syni. Ef vér trúum á hann, höfum vér eilíft líf, án hans glötumst vér. Svo hér er skýrt haldið fram að menn geta öðlast eilíft líf en það er skilyrði bundið. Trúin á Jesúm er skilyrðið, svo ef hann ekki mætir skilyrðinu, trúir ekki á Jesúm, þá hefir hann ekki eilíft líf. “Þetta er vitnisburðurinn að Guð hefir gefið oss eilíft líf, og þetta líf er í hans syni. Sá sem hefir soninn hefir lífið, sá sem ekki hefir Guðs son hefir ekki lífið”. Nú lifum vér í trú á Krist og þegar hann hinu himneska opinberast þá mun hann ummynda oss frá dauðleika til ódauðleika. “Sjá, ég segi yð- ur leyndardóm, vér munurn ekki allir sofna, en allir umbreytast í vetfangi á einu augnabliki við hinn síðasta lúður- þyt, því lúðurinn mun gjalla og hinir dauðu upp rísa, óforgengilegir en vér um- breytast. Því hið forgengilega verður að íklæðást óforgengilegleikanum og hið dauðlega ódauðlegleikanum.” — 1. Kor. 15:51—53. Þér athugið að hér er dauðinn kallaður svefn. Guðs börn sofna í dauðanum, en Jesús mun vekja þau. Þá verður það að hið dauðlega íklæðist ódauðleikanum. Að vér þurfum að Hklæðast óforgengilegleika sýnir að vér ekki höfum hann. Postulinn talar hér aðeins til þeirra sem trúa á Krist, því ódauðleiki er hvergi lofaður þeim sem ekki trúa á hann. Upprisan var von Guðs barna á dögum postulanna, hún er von vor enn í dag “því ef dauðir ekki upprísa þá er Kristur ekki upprisinn, en ef Kristur er ekki uppris- inn þá er trú yðar ónýt, þér eruð þá enn í syndum yðar, og þeir sem sofnaðir eru í Kristi glataðir”. 16—18. vers. Það er skýrt af þessu, að ef engin upp- risa væri fyrir Guðs börn, þá yrði ekkert líf fyrir þau í framtíðinni, dauðinn yrði endir á öllu saman. “En nú er Kristur upprisinn frá dauðum, frumgróði allra þeirra sem dánir eru. Því þar eð dauðinn kom fyrir einn mann, kom og upprisa dauðra fyrir einn mann, því eins og allir deyja í Adam eins munu allir lífgast í Kristi, en sérhver í sinni röð. Kristur er frumgróðinn, þar næst munu þeir sem Kristi tilheyra upprísa í hans tilkomu. Allir eftirfylgjendur Jesús verða kall- aðir til lífsins þegar Jesús kemur. Eilíft

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.