Stjarnan - 01.09.1947, Side 6
78
STJAKNAN
líf er gjöf Guðs til vor í hans syni Jesú
Kristi. Vér lesum:
“Laun syndarinnar er dauði en náðar-
gjöf Guðs er eilíft líf í Jesú Kristi Drotni
vorum”. Róm. 6:23. Kristinn maður deyr
syndinni, en öðlast nýtt andlegt líf frá
Guði, og með því fylgir loforðið um eilíft
líf eftir þetta jarðneska. “Þér eruð dánir,
en líf yðar er falið með Kristi í Guði. En
þegar Kristur vort líf opinberast, þá
munuð þér og ásamt honum í dýrð opin-
berast.” Kol. 3:3. 4.
Dauðinn er rólegur svefn. Jesús vekur
oss af svefninum þegar hann kemur. Orð-
ið gröf þýðir “svefnhús”. Páll postuli
segir:
“Ekki vil ég, bræður, láta yður vera
ókunnugt um hina burtsofnuðu, svo þér
séuð ekki hryggir eins og þeir sem vonar-
lausir eru. Því ef vér trúum því, að Krist-
ur sé dáinn og upp aftur risinn, þá mun
Guð sömuleiðis fyrir Jesúm ásamt honum
leiða til sín þá sem sofnaðir eru; því það
segi ég yður í Drottins orða stað, að vér
sem eftir verðum lífs við tilkomu Drott-
ins, munum ekki fyrri verða en hinir
burtsofnuðu; því sjálfur Drottinn mun
með ákalli, með höfuðengils raust og með
Guðs lúðri af himni niður stíga, og þeir
sem í Kristo eru dánir munu fyrst upp-
rísa; síðan munum vér, sem eftir erum
lifandi, verða hrifnir til skýja ásamt
þeim -til fundar við Drottinn í loftinu, og
munum vér síðan með Drottni vera alla
tíma. Huggið því hver annan með þessum
orðum”. I. Thess. 4:13—18.
Hversu skýrt og einfalt þetta er. Ó, hve
dýrlegt. “Munum vér síðan með Drotni
vera alla tíma.” Þetta sýnir að von Guðs
barna er ekki dauðastundin heldur upp-
risan þegar Jesús kemur. Þá er það sem
vér komum til frelsarans og verðum með
honum, ekki þegar vér deyjum heldur
þegar vér rísum upp í hans tilkomu.
Eftir að Guðs barn fellur í svefn veit
það ekkert hvað tímanum líður, það lokar
augunum með ástvini sína í kring um sig
og opnar þau aftur þegar Jesús opinberast
í dýrð sinni. Vér heyrum orð ástvinanna
og án þess að vita um tímalengd sem líður
á milli heyrum vér næst raust frelsarans
sem kallar oss til lífsins.
“Því eins og Faðirinn hefir lífið í sjálf-
um sér, svo gaf hann og syninum að hafa
lífið í sjálfum sér......Undrist ekki yfir
þessu því sá tími mun koma að allir þeir
sem í gröfunum eru munu heyra hans
raust og þeir munu ganga út. Þeir sem
gott hafa gjört til upprisu lífsins en þeir
sem ilt hafa aðhafst til upprisu dómsins”.
Jóh. 5:26—29.
Takið eftir, þegar þeir heyra raust hans
eru þeir hvorki í himnaríki né helvíti-
Lesið setninguna aftur: “Allir þeir sem í
gröíunum eru munu heyra hans raust”.
Einhver hin fegursta lýsing á þessu í
Biblíunni er í Jes. 26:19. Þar sem vér les-
um að hinir trúuðu vakni og syngi sigur-
söng. “Menn þínir sem dánir eru skulu
lifna. Mitt andvana fólk skal upprísa.
Vaknið, hefjið fagnaðarsöng þér sem bú-
ið í duftinu, því lífsins dögg er þín dögg,
og jörðin skal endurfæða hina framliðnu”.
Ó, hvílíkur fagnaðarsöngur það verður.
Engin sorg, alt fögnuður og gleði. Enginn
kvíði, alt gleðirík framtíð. Engin ástvina-
skilnaður. Alt gleðiríkir endurfundir. Það
verður heimkomu og samsöfnunar dagur
á himnum þegar Guðs börn frá öllum
öldum og kynslóðum ganga gegn um borg- .
arhliðin inn í borgina. Menn koma frá
jarðneskum erfiðleikum til hins himneska
heimilis, já, frá fangelsisklefum til fagnað-
arins bústaða. Til þeirra hljóma orð frels-
arans að bjóða þau velkomin: “Komið þér
ástvinir míns föðurs og eignist það ríki sem
yður var fyrirbúið frá upphafi verald-
ar.” Matt. 25:34.
Samferðamenn mínir á lífsleiðinni, ótt-
ist ekki, því það er líf eftir þetta líf. Eilíft
líf í Kristi.
Voice of Prophecy.
4- + -*■
Guðs orð bannar ákveðið að leita frétta
af framliðnum og segir: “Hver sem slíkt
aðhefst er Drottni andstyggilegur”. —
p. Mós. 18:11. 12.
4 4 4-
Mikið af kaffi því sem notað er í heim-
inum kemur frá Brazilíu. En það er aðeins
ein af útflutningsvörum landsins. Fyrir
nokkru síðan sendi Brazilía 7.500 skippund
af cocoa til Boston Massachusetts.
i