Stjarnan - 01.02.1948, Qupperneq 2

Stjarnan - 01.02.1948, Qupperneq 2
10 STJARNAN Þegar gufubáturinn “Princess Alice,” varð fyrir árekstri frá “Bywell Castle” á Thames fljótinu, þá var sjómaður nálægt á litlum róðrarbát, hann fór til að bjarga fólkinu, sökkhlóð bát sinn og reri svo burt. En er hann sá hin fölu andlit fólksins sem hrópuðu til hans: “Bjargaðu mér, yfirgefðu mig ekki.” þá fórnaði hann upp höndunum og sagðiró að eg hefði stærri bát.” Hjarta hans tók inn alla sem voru að því komnir að farast, en báturinn var of lítill svo hjálp hans var takmörkuð. Það er alt öðru máli að gegna með Krist. Hann sjálfur er björgunarbáturinn fyrir hinn glataða heim. Hann getur bjargað öllu mannkyninu því hann “dó íyrir alla”, 2 Kor. 5:15. Minnumst þess líka að Jesú forlikunarfórn var fyrir allar syndir og fyrir alla menn, á öllum tímum. Jesús Kristur færði eina algilda fórn, engin önn- ur líkist henni, og engin önnur fæst. Hans fórn var eilíf eins og hann er sjálfur. Hann var gegnstunginn á krossinum, en fórn hans er enn fyrir framan náðarstólinn. Hann var krossfestur fyrir 1900 árum síðan, en blóði hans var úthelt, samkvæmt loforði Guðs 4000 árum áður, og benjar hans forlíka fyri^ oss alt til þessa dags. Fórn hans er full- komin og fullgild fyrir alla og eilíflega. Kristnir menn tala oft um hið fullkomnaða verk Krists, og það með réttu. þetta á við það að hann fórnfærði sjálfum sér á kross- inum. En það er alveg eins í samræmi við heilaga Ritningu að tala um yfirstandandi starf hans, þegar vér minnumst þess að hann er vor æðsti prestur og biður fyrir oss síðan hann sté til himna. Þar, fyrir hásæti Guðs, stendur hann sem fulltrúi allra, “sem eru í Kristi”, svo vér “fyrir Jesú blóð höfum djörfung til að innganga í helgidóminn, hvert hann hefir opnað oss nýjan og sáluhjálplegan veg gegn um for- tjaldið það er hans eigin líkama”. Hebr. 10:19.20. Þar, við föðursins hægri hönd er Jesús í dag: “þá hann hafði fært eina einustu syndafórn situr hann að eilífu til Guðs hægri handar og bíður framvegis þangað til óvinir hans verða gjörðir að hans fóta- skör.” Eftir hverju bíður hann? Hann bíður eftir uppfylling hins guðdómlega loforðs um að fagnaðar erindið verði flutt um alla heimsbygðina og að hann verði sendur hrósandi eilífum sigri yfir öllum óvinum sínum. Ó hvílík framtíðarvon þetta er, og öll Guðs" börn eiga hlut í henni. Vér megum fagna með honum í voninni um að sjá hann opinberst í ríki sínu. Athugið enn einu sinni orðin: “Hann bíð- ur framvegis þangað til óvinir hans verða gjörðir að hans fótaskör.” Á krossinum var trygging gefin fyrir algjörðum sigri yfir hinu illa. Krossinn gaf fullvissu um al- gjörða eyðileggingu satans, syndarinnar og dauðans. Er Jesús sté til himna hefir hann litið fram í timann væntandi þeirrar stund- ar þegar endulausnar verkið verður full- komnað og óvinir hans, satan og dauðinn falla alveg úr sögunni. Sigurinn á krossin- leiðir með sér eyðilegging als hins illa. Ó hversu indæll þessi heimur væri, ef hvorki væri synd, dauði sorg né kvein. Guð hefir gefið oss loforð um slíka tilveru. Það stendur í Op 21:4.5. “Guð mun þerra hvert tár af þeirra augum, og dauðinn mun ekki framar til vera, hvoíki harmur né vein né mæða mun framar til vera, því það fyrra er farið. Sá sem í hásætinu sat sagði: Sjá eg gjöri alt nýtt.” Þetta er það sem Jesús bíður eftir. Eg undrast yfir hvort vér bíðum eftir því, hvort vér lifum fyrir það. Er þessi bless- aða von gróðursett djúpt í hjörtum vorum? Vér ættum að vera svo hugfangnir af því, svo fullir af eftirvæntingu að alt annað, vinna, leikur, erfiðleikar, sorg, gleði, skemt- anir, vinir og tímanlegar vonir hefðu minna gildi í vorum augum. Þegar Whitefield, hinn mikli prédikari kom til Ameríku, talaði hann eitt kvöld frá tröppunum á réttarsalnum í Phíladel- phia. Meðal fjölda áheyrendanna var lítill drengur, sem tók eftir því að Mr. Whitefield sá ekki vel til að lesa Biblíuna, svo hann hljóp og sótti ljósbera sinn kveikti á honum og hélt - honurn uppi fyrir Whitefield að lesa við ljósið. Whitefield var þakklátur honum. Litli drengurinn hlustaði á ræðuna með mestu athygli, hann hafði aldrei heyrt slíkan prédikara. Hann hlustaði með svo mikilli eftirtekt að hann gleymdi öllu öðru, jafnvel ljósberanum svo hann datt úr hönd- um hans ofaná tröppurnar og brotnaði. Mörgum árum seinna þegar Whitefield

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.