Stjarnan - 01.02.1948, Page 5

Stjarnan - 01.02.1948, Page 5
STJARNAN 13 Sá sami í gœr í dag og að eilífu Vér heytram fólk oft segja að Guð gjöri ekki kraftaverk nú á dögum eins og á fyrri tíðum, og tali ekki til manna eins og hann gjörði á dögum spámannanna og postulan- na. En Jesús Kristur er í gær í dag og að eilífu einn og hinn sami. Vilbur A. Dunn sannar þettað með eftirfarandi frásögu: Fjöldinn af fólkinu á eyjunni Ceylon er heiðið. Þar finnast margir sem er djöful- óðir. í bænavikunni fyrir rúmu ári síðan var komið með unga stúlku á samkomur vorar. Þegar eg spuði hverjir óskuðu eftir sérstakri bæn stóð konan upp, sem hafði komið með ungu stúlkuna og óskaði að beðið væri fyrir henni því hún væri djöful- óð. Unga stúlkan féll á kné með okkur, en rétt strax kom hinn illi andi yfir hana, svo hún varð frá sér numin og bar sig til líkast vitfyrring. Hún þóttist hafa séð andann sem líktist fóstru hennar, er nú var dáin og unga stúlk- an saknaði hennar mikið því hún hafði verið góð við hana. Andinn birtist henni og benti henni að koma, stúlkan var freistuð til stjálfsmorðs, svo hún kæmist til fóstru sinnar. Trúsystir okkar hafði sagt ungu stúlk- unni að þetta gæti ekki verið fóstra hennar af því “Þeir dauðu vita ekkert”. Þegar hún skildi að þetta hlyti að vera illur andi þá reyndi hún að veita mótstöðu en andinn vildi ekki láta hana í friði og kvaldi hana ákaflega. Stúlkan var 19 ára gömul og hét Magða- lena. Hún hafði unnið hjá andatrúarkonu einni sem framdi undralækningar og Magðalena hafði hjálpað henni til þess. Alt í einu virtist eins og andinn yfirgæfi kon- una og tæki umráð yfir ungu stúlkunni. Þegar vér fórum að biðja barðist stúlkan við andann, og varð svo máttlaus og upp- gefin að lokinni bæn vorri að hún gat ekki farið á strætisvagn, svo eg varð að flytja hana heim í bílnum mínum. Hún virtist náttúrlega frísk í nokkra daga þar til hún fékk bréf frá andatrúar manni, í því var kross, sem blessun hafði verið lesin yfir, henni var líka send lítil flaska með olíu sem hafði verið blessuð. Nú fékk Magða- lena kast aftur og það gekk sfo langt að hún reyndi að drepa bróður sinn. Trúsystir vor sem kom með Magðalenu hafði alist upp með henni og tók hana nú heim til sín svo hún gæti betur hjálpað henni. Nú bað hún okkkur að koma til heimilis síns og biðja fyrir Magðalenu. Nú var unga stúlkan svo áköf að það tók þrjá menn til að halda henni niðri. Eftir að við höfðum verið langa stund á bæn sungum við sálma og höfðum svo aðra bænastund. Alt í einu varð stúlkan róleg. Hún sléttaði hár sitt lagaði fötin á sér og féll á kné með okkur. Að lokinni samkomu var hún mjög máttfarin, en hún var með réttu ráði. Eftir þetta kom hún reglubundið til kirk- junnar. Hún sagði að hvernig sem hún reyndi að halda huganum við ræðuna gæti hún það ekki það var alt eins og í þoku fyrir henni. Hún gat hvorki hlustað á né beðið. Vér höfðum bæn með henni aftur og réðum henni til að standa móti hinum illu áhrifum. Oft þegar hún var á gangi fanst henni eins og henni væri hrint svo hún féll á- fram. Reynsla þessarar stúlku minnir oss á Matt. 17:15-18 þar sem faðirinn kom með son sinn til Jesú og bað: “Herra miskuna þú syni mínum . . . Oft fellur hann í eld og vatn . . . og hann hastaði á hann og djöfull- inn fór út af honum, og sveinninn varð samstundis heilbrigður það gleður oss að Magðalena hefir líka verið frelsuð fyrir Guðs almáttuga kærleikskraft. Hún e r skírð og sameinuð söfnuðinum. Andlit hen- nar ljómar af gleði og kærleika Krists. Hún elskar orð hans. W. A. D. Ahrif heilags anda Jesús lofaði lærisveihum sínum að senda þeim sinn heilaga anda og sagði: “Þegar hann kemur mun hann sannfæra heiminn um synd, og um réttlæti og um dóm.” Jóh. 16:8. Það eru áhrif Guðs anda sem sannfæra manninn um synd og vekja samvisku hans, svo hann sér það er skylda sín, ekki síður en einkaréttindi að halda Guðs boðorð og tilbiðja hann, og þannig búa sig undir dóminn. Það er Guðs andi sem knýr synd- arann til að leita Krists sér til sáluhjálpar.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.