Stjarnan - 01.02.1948, Blaðsíða 7

Stjarnan - 01.02.1948, Blaðsíða 7
STJARNAN 15 Þegar trúbóðinn mintist á Biblíuna sína kom þorpsfólkið hlaupandi til hans og sagði: “Við trúum því sem stendur í bók- inni. Vertu hjá okkur og kendu okkur meira um þann Guð sem bókin talar um.” Trúboðinn staðnæmdist hjá þeim um tíma, hjálpaði þeim að byggja kirkju og kendi þeim meira um Guð og kærleika hans til mannanna. “Guð lét þig týna bókinni svo við gætum fundið hana og lært um Jesúm,” sagði fólkið. “Næðu þín orð til mín, tók eg við þeim með græðgi. Þín orð voru mér unan og fögnuður míns hjarta.” Jer. 15:16. INEZ BRASIER Áríðandi starf Vera má það sé of seint að frelsa heim- inn frá yfirvofandi eyðileggingu, en það er ekki of seint að frelsa einstaklinga svo þeir geti orðið erfingjar Guðs dýrðarríkis. Útlitilð í heiminum og sá raunverleiki að skamt er eftir, ætti að vera ómótstæðileg hvöt fyrir lærisveina Krists til að flytja fagnaðarboðskap Guðs frelsandi kærleika með meiri k r a f t i og áhuga heldur en nokkru sinni fyr. “Komið, því alt er til reiðu.” Þetta er boðskapurinn sem á að flytja með krafti út á stigu og þjóðvegi, og þrýsta mönnum til að koma. Lúk. 14:17-23. Jóhannes skrírari hvatti m e n n til að “umflýja tilkomandi hegningu”, þegar hann var að undirbúa menn fyrir komu Krists í heiminn. Matt. 3:7. Nú, þegar endurkoma Krists er í nánd eiga sendiboð- ar Guðs að flytja boðskapinn: “Óttist Guð og vegsamið hann því tími hans dóms er kominn.” Eins og englamir aðvöruðu Lot og fjöl- skyldu hans um að flýja hina bráðu eyði- leggingu Sódómu og Gómorru, þannig þurfa lærisveinar Krists með áhuga og al- vöru að knýja menn til að “Frelsa líf sitt og líta ekki aftur.” 1 Mós. 19:17. Þó sorglegt sé, vanrækja flestir prestar og söfnuðir að flytja þennan boðskap, en verja tíma sínum og kröftum til stjórnmála, umbóta og til að bæta félagslíf manna á milli. Þeir prédika aðlaðandi málefni, sem láta vel í eyrum manna, meðan heimurinn er rétt við eyðileggingu. Þeir líkjast mönnum sem eru að mála og laga utan hús, sem stendur á árbakka þar sem flóð- ið hefir þegar fylt kjallarann og er að eyðileggja undirstöðurnar. Þeir tala fögr- um orðum við íbúa hússins um litinn á málinu sem þeir eru að mála með, í stað þess að skipa fólkinu að flýja í skyndi til að frelsa líf sitt frá flóðinu, sem innan lítillar stundar mun eyðileggja húsið og flytja það með straumnum. Endir allra hluta er nálægur og Jesús kemur bráðum. Það er sannarlega tími til kominn að flytja með krafti “hinn eilífa fagnaðarboðskap til allra þjóða, kynkvísla, tungumála og fólks”. Aðvörunin verður að ná til allra. Allir verða að fá tækifæri til a,ð meðtaka eða hafna hinum síðasta boð- skap Guðs um náð og frelsun. S. T. Þetta var áður en frystivélar voru búnar til. Stórt íshús stóð í útjarðri bæjarins Iron- ton í Missouri, það var gluggalaust og hafði þykka veggi, svo að vor og sumarhiti ekki bræddi ísinn. Einn vetur sem oftar hjuggu menn stórar spildur af ís og pökkuðu þær í þykku lagi af sagi. Einn af verkamönnun- um saknaði úrsins síns. Hann var sann- færðður um að það hafði fallið út úr vasa hans og ofan í sagði. Það var gott úr svo hann sá eftir að missa það. Hann fékk sér ljósbera og hrífu og leitaði í saginu, en árangurslaust. Svo bauð hann rífleg fund- arlaun þeim sem fyndi úrið. Samverka- menn hans leituðu og leituðu en fundu ekki. Lítill drengur stóð í dyrunum og horfði á mennina leita. Þegar þeir fóru heim að borða læddist hann inn í íshúsið og þegar mennirnir komu aftur stóð hann fyrir utan dyrnar með úrið í hendinni. Eigandinn, sem var steinhissa greip drenginn og úrið og spurði: “Hvernig gastu fundið það?” “Eg lagðist þegjandi niður í sagið og hreifði mig ekki, rétt strax heyrði eg úrið ganga.” Ef vér erum kyrlátir og hlustum þá getum vér ef til vill heyrt Guð tala til vor: “Þetta er vegurinn. Fylgið honum.” C. O. G.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.