Stjarnan - 01.08.1950, Qupperneq 1

Stjarnan - 01.08.1950, Qupperneq 1
STJARNAN ÁGÚST 1950 LUNDAR, MANITOBA Þekking á guði Guð leitast á marga vegu við að opin- berast oss og fá oss í samfélag við sig. Náttúran talar án afláts til skilningarvita vorra. Opið hjarta verður vart við kær- leika guðs og dýrð, sem opinberast í verk- um hans handa. Þegar eyrað hlustar fær það heyrt og skilið rödd guðs í náttúrunni. Grænu ekrurnar, háu trén, brumið og blómin, skýin, sem líða í lopti, regnið, sem streymir niður, lækurinn, sem rennur suð- andi um grænar grundir, og dýrðarskraut himinsins tala til hjartna vorra og bjóða oss að komast í kynni við hann, sem skap- aði allt þetta. Frelsari vor tengdi sína dýrmætu íræðslu við náttúruna. Trén, fuglarnir, blómin í dalnum, hæðirnar, vatnið og hinn fagri himinn, atvik og viðburðir í daglega lífinu voru tengd orðum sannleikans og sett í samband við þau, svo að mennirnir mættu opt minnast fræðslu hans, jafnvel á annríkustu og erfiðustu stundum æfi sinnar. Það er guði þóknanlegt, að börnin hans hafi mætur á verkum hans og gleðjist við hina einföldu óbrotnu fegurð, sem hann hefur skreytt vor jarðnesku heimkynni með. Hann elskar hið fagra, en göfugt lunderni elskar hann fremur öllu því, sem er laðandi hið ytra. Hann vill að vér glæð- um hjá oss hreinleika og einfaldleika, hina kyrrlátu fegurð blómanna. Vér munum’ öðlast dýrmæta fræðslu um hlýðni og trúnaðartraust, ef vér áðeins viljum gefa gætur að verkum guðs handa. Öll náttúran hlýðir vilja skaparans, ailt frá stjörnunum, sem gengið hafa sína leið svo sem drottinn býður um óendanlegar aldaraðir, og niður til hins minnsta dupt- korns. Guð ber umhyggju fyrir öllu og heldur öllu við, er hann hefur skapað. Og hann, sem heldur við sólkerfunum ótelj- andi í hinu ómælilega rúmi, annast líka titlinginn, sem syngur óttalaus hina óbrotnu söngva sína. Himnafaðirinn vakir með ástríkri viðkvæmni yfir öllum; hann vakir yfir mönnunum þegar þeir ganga til sinna daglegu starfa og hann vakir yfir þeim þegar þeir leita hans í bæninni; hann vakir yfir þeim þegar þeir leggjast til hvíldar á kvöldin og þegar þeir fara á fætur á morgnana; hann vakir yfir auðuga manninum, er hann heldur veizlu í höll sinni, og hann vakir yfir fátæklingnum, er hann sezt með börnum sínum við sitt fá- réttaða borð. Ekkert tár fellur svo, að guð verði ekki var við og ekkert bros dyist hans altsjáanda auga. Allar fánýtar áhyggjur mundu hverfa ef vér aðeins vildum trúa þessu fyllilega. Líf vort mundi ekki verða svo vonbrigöa- fullt sem nú á sér stað; því að hvað eina, stórt og smátt, mundi verða falið í guðs hendur, og honum verða ekki áhyggjurn- ar erfiðar; þungi þeirra bugar hann ekki. Þá mundum vér eiga andlegri hvíld að fagna, sem margir hafa lengi farið á mis við. Þegar skilningarvit þín gleðjast við hrífandi yndisleik þessarar jarðar, þá skalt þú minnast hins komandi heims, þar sem aldrei verður vart við spilling syndarinnar og dauðans, þar, sem náttúran myrkvast ekki framar af skugga bölvunarinnar. Hugsaðu þér heimkynni hinna sáluhólpnu og minnstu þess, að það mun verða dýrð- legra en svo, að skarpasta hugsun þín geti leitt fram mynd þess. Vér sjáum aðeins hinn veikasta bjarma af dýrð guðs í hin- um margvíslegu gjöfum hans í náttúrunni, eins og skrifað stendur: „Auga hefur ekki séð, eyra ekki heyrt og í einskis huga kom- ið það, sem guð hefur þeim fyirbúið, sem hann elska.“ Skáldin og náttúrufræðingarnir kunna frá mörgu að segja um náttúruna, en krist-

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.